Mánudagur, 21. júlí 2003
Ég tók mig til og lagfærði á anna.is það sem ég er búin að vera á leiðinni að lagfæra síðan ég kláraði badabing.is síðuna.
Ég held að endurbæturnar skýri sig sjálfar að flestu leyti.
Ég er að reyna að hugsa upp styrktaraðila fyrir movie hall of fame og datt helst í hug að hefja samstarf við eitthvað veitingahús og hafa verðlaunin fyrir að geta getraunina 10 sinnum rétta "út að borða með Önnu". Aðallega af því ég fer ekki nógu mikið út að borða og líka af því ég þekki engan sem vill/hefur efni á að fara með mig út að borða.
Þetta er bagalegt þar sem ég nenni stundum ekki að elda.