www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
Multitasking
Fimmtudagur, 10. júlí 2003

Um daginn var ég að pirrast yfir því að ég væri ekki með sjónvarpskort í vélinni minni svo ég gæti haft bíómyndir opnar í glugga á meðan ég er að vinna. Þetta var áður en ég fattaði að ég get einmitt gert þetta með DVD.

Ég er búin að "horfa" á Gattaca með Jude dúllu og núna er Notting Hill byrjuð og þegar hún er búin ætla ég að setja Sleepy Hollow af stað.

Það hentar mér mjög vel að horfa á bíómyndir á sama tíma og ég kjafta á msn og skoða heimasíður eða skrifa blogg.

Ég hef hljóðið í headphones og bara á öðru eyranu því ég þarf að fylgjast með leiknum hjá krökkunum líka. Öðru hvoru hrópa ég t.d.: "Þú þarft að fara í borðið með vélinni sem þú hleypur af stað til að finna það".

Ég er multitasking, no doubt about it.


| anna | 22:01 |
comments

Multitasking, magna fyrirbæri....

....þetta geta bara konur !

Ég reyndi einusinni að múltítaska, stakk gaffli í augað á mér.
Mun ekki reyna aftur að borða og stunda morgunleikfimi um leið.

Nr. 1 | posted by: Dorinn | 11.07.2003 | 1:37:59 | [+] |

Single tasking.

Er ekki sagt um karlmenn að þeir geti bara hugsað um eitt verk í einu. Sumum karlmönnum tekst jafnvel ekki að hugsa um neitt verk í einu. Því segi ég ykkur þessa dæmisögu sem hér kemur.

Mjólk er góð - í hófi.

Hér er saga af gömlum vinnustað mínum í bænum. Þetta er það langt síðan að ekki var búið að finna upp fjörmjólkina. Súrmjólkin var enn vinsæl en hætt var að selja nýmjólk í þríhyrndum fernum. Nýbúið var að taka tvö núll aftan af krónunni. Verðbólgan stefndi í 130 prósent.

Eitt hádegið uppgötvuðu menn að mjólkin í kaffið var búin. Nú voru góð ráð dýr en að lokum var sumardrengurinn sendur til að kaupa mjólk. Tuttugu pela(250ml) af nýmjólk. Vel í lagt en ekki vildum við mjólkurleysi aftur.

Margir okkar voru af þeirri kynslóð sem mundu vel mjólkurverkföllin. Þegar jafnvel ungabörnum var fórnað í kjarabaráttunni. Leið nú og beið og ekki kom mjólkin. Verslunin var ekki langt frá þannig að mönnum var farið að lengja eftir mjólkinni. Hádegið að renna sitt skeið og stefndi í mjólkurlaust kaffi. Vont mál.

Stigi lá upp á kaffistofuna og seint og um síðir heyrist más og blás. Eins og reykingamaður með berkla sé að klifra upp stigann með tvo súrefniskúta á bakinu og froskalappir á fótum.

Sumardrengurinn birtist í stigaopinu með tvo plastpoka. Svitinn bogaði af honum. Náði varla andanum. Hendurnar orðnar helmingi lengri en áður. Plasthandföngin höfðu skorist upp í fingurna. Gjörsamlega búinn.

Sumardrengurinn hafði keypt 20 LÍTRA af nýmjólk. Sumardrengurinn var ég.

Nr. 2 | posted by: igor | 11.07.2003 | 21:13:15 | [+] |

Margir karlmenn geta lesið þegar þeir eru á klósettinu.

Það get ég ekki...

Voru vinnufélagarnir ekki kátir? Var hægt að skila mjólkinni eða var þetta fyrir tíma Neytendasamtakanna? happy

Nr. 3 | posted by: anna | 11.07.2003 | 21:53:58 | [+] |

Þetta var flokkað sem handvömm og því ekki hægt að skila mjólkinni.

Vinnufélagarnir urðu mjög kátir því eina ráðið í stöðunni var að setja á auka kaffitíma á hverjum degi næstu 3 vikur til þess að ná að klára mjólkina. Það tókst næstum en við þurfum að henda tveimur lítrum.

Nr. 4 | posted by: igor | 11.07.2003 | 22:02:03 | [+] |

Ætti ég að koma með fræðilega (nördalega) útskýringu á multitasking í tölvum? Nah. Það eru bara leiðindi[shades]

Nr. 5 | posted by: beggi dot com | 11.07.2003 | 22:55:15 | [+] |

Nei common. Nördalegar skýringar eru góðar til að læra af. Láttu vaða!

Nr. 6 | posted by: anna | 11.07.2003 | 22:58:37 | [+] |

OK.

Í upphafi var orðið... Nei, vitlaus texti, (flett, flett)...

Venjulegar tölvur, með einungis einn örgjörva, geta einungis gert einn hlut í einu. En þar sem þær geta farmkvæmt þær aðgerðir sem framkvæma þarf mjög hratt er hægt að svindla. Það er að segja búa til stýrikerfi sem virðist geta gert marga hluti í einu (multitasking) eða getur jafnvel látið marga notendur halda að þeir einir séu að nota tölvuna (multiuser). Multitasking stýrikerfi skiptir einfaldlega það hratt á milli þeirra verkefna sem það er að vinna í að það virðist vera að gera þá samtímis.

Alveg eins og þegar Anna.is tekur augun eldsnöggt af Jude Law til þess að athuga hverning börnunum gengur í tölvuleiknum, þá er hún ekki að gera tvo hluti í einu, hún horfir ekki á Mr. Law og börnin sín samtímis, heldur skiptir það snöggt á milli að það virðist eins og hún sé að gera fleira en eitt í einu.

Þetta er allt saman ,,virtual" eða eins og konan sagði ,,Virtually virtual" (Hvaða kona í hvað mynd?)

Nr. 7 | posted by: beggi dot com | 11.07.2003 | 23:22:46 | [+] |

Ahhh en þetta er ekki rétt því ég lít ekki upp úr t.d. msn spjallinu til að vita hvað ég á að segja krökkunum því ég heyri hvert þau eru komin. Eins skrifa ég bloggið en horfi á Jude um leið. Fer um mann sæluhrollur... Ekkert virtual hérna toungue

Virtually, virtual. Don't have a clue!

Nr. 8 | posted by: anna | 11.07.2003 | 23:39:55 | [+] |

Þegar boð koma frá mikilvægu inntakstæki, lyklaborði, mús, netkorti, eyrum, er sent ,,interupt" til örgjörvans þannig að viðkomandi aðgerðir fá forgangcool

Mig minnir að þetta hafi Verið Uma Thurman, en get ekki rifjað upp hvað mynd þetta var. Man bara að hún var löng og sýnd ótextuð í bíóembarassed

Nr. 9 | posted by: beggi dot com | 12.07.2003 | 0:02:21 | [+] |

Það er sennilega rétt að ég biðji þig um það sama og Hörpu, viltu ekki vera svo væn að hafa linkinn beint á ,,beggi.com" ég er nefnilega að endurskipuleggja, ,,bloggið" færist örugglega.

Og, auðvitað, takk fyrir linkinnsmile.

Nr. 10 | posted by: beggi dot com | 12.07.2003 | 0:04:45 | [+] |

WAHAHAHAHAHAHAHAHAHAHAHAHA

Guess what. Þetta var upprunalega á beggi.com. Það var bóndi úti á landi sem benti mér á að hafa það á bloggið þitt, sem mér fannst reyndar viturlegra. Ég breyti þessu hér með til baka. laughing

Uma segirðu... löng mynd... hmmm

Já en ef "viðfangsefnið" hættir ekki að pikka á meðan?

Nr. 11 | posted by: anna | 12.07.2003 | 0:12:01 | [+] |

Arg, afarskondið komment dó [weteyes]

Nr. 12 | posted by: beggi dot com | 12.07.2003 | 0:22:14 | [+] |

Pikkið fer í biðminni.

Í alvöru stýrikerfum (Window$ er nú varla þar á meðal) er prentun sett í biðminni þar sem prentarinn getur ekki prentað eins hratt og örgjörvinn getur sent upplýsingar á hann. Því eru upplýsingarnar settar í biðminni sem matar prentarann án afskipta örgjörvans og hann (örgjörvinn) getur snúið sér að öðru mikilvægara.

Eins er með pikkið hjá þér, meðan þú horfir alveg hugfanginn á Mr. Law, halda fingurnir áfram að pikka á ,,autopilot"cool

Nr. 13 | posted by: beggi dot com | 12.07.2003 | 0:25:48 | [+] |

ok.. ég get ekki neitað því. Pikkið er á autopilot þar sem ég er búin að ákveða hvað ég ætla að segja. happy

Hvaða komment dó? Ég sé ekkert lík

Nr. 14 | posted by: anna | 12.07.2003 | 0:32:49 | [+] |

Ég fékk ,,address not found, return to sender", eða þannigwink.
Semsagt ,,the page could not ..." þegar ég póstaði þetta með biðminnið fyrst.confused

Nr. 15 | posted by: beggi dot com | 12.07.2003 | 0:36:21 | [+] |

hvusslax! smile

Ég fór á síðu áðan um geispa og hef ekki getað hætt að geispa síðan... held ég fari og hit the hey... silent

Nr. 16 | posted by: anna | 12.07.2003 | 0:41:11 | [+] |

Ég ætti sennilega að fara að gera það líka, tveggja tíma munur þú veist.toungue

Nr. 17 | posted by: beggi dot com | 12.07.2003 | 0:43:02 | [+] |

Farðu bara á geispa síðuna. Þú steinliggur eftir það!

Nr. 18 | posted by: anna | 12.07.2003 | 0:48:32 | [+] |


recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web