Miðvikudagur, 30. júlí 2003
Ég er búin að púsla öll púsluspil sem eru í íbúðinni. Tvö 1000 stykkja, eitt 1500 stykkja o.s.frv. Ég er búin að sitja við síðan átta í morgun. Rétt leit upp til að henda skyri í krakkana í kvöldmat og lét þau borða inní stofu svo þau fengju ekki sígarettureykinn með skyrinu þar sem pússlu-bækistöðvar mínar eru á eldhúsborðinu. Ég er góð mamma.
Þegar ég stóð áðan með púsluspil fyrir aldurshópinn 2-5 ára með mynd af Gosa hvíslaði lítil rödd að mér að þetta væri orðið sjúkt. Classic. Ég er farin að heyra raddir líka. Ég púslaði Gosa sjö sinnum.
Þvílíkur léttir sem það verður að fá útborgað og hafa efni á að fara út úr húsi aftur.