www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
Lokaspretturinn
Sunnudagur, 13. júlí 2003

Ég er svo móð að ég næ varla andanum. Skreið upp síðustu tröppurnar upp á hæðina mína og dróst með veggjum að útihurðinni. Ég hef aldrei verið svona þreytt eftir tvær ferðir (fram og tilbaka) í sundlaug vesturbæjar fyrr.

Það er bót í máli að mig langar ekki að reykja. Ætlaði að hætta að reykja í dag og er búin með sígaretturnar. Nú er bara að sjá hvort ég geti staðist mátið á eftir þegar Melabúðin opnar...

Harpa heldur að ég haldi að hún reki hótel þar sem ég mun koma mér fyrir í sér herbergi og eyða tíma mínum í að drekka pinja colada og lesa allan daginn. Þetta er misskilningur. Ég er búin að pakka öllum málninga og druslugöllum sem ég hef rekist á í skápunum hjá mér, stígvélum og strigaskóm. Auk þess mun ég taka með mér koffeintöflur, magic og gingseng í fljótandi formi sem maður sprautar beint í æð. Held mér veiti ekki af ef ég á að vinna eitthvað í heyskap. Ekki virkaði að fara í sund til að byggja upp þol... nema maður þurfi að fara oftar.


| anna | 11:53 |
comments

Ég þekki tilfinninguna. Varð líka svona þreyttur eftir að hafa hlaupið maraþon. Hef samt aldrei reykt.

Nr. 1 | posted by: igor | 13.07.2003 | 21:02:43 | [+] |

Dsjís, Anna!
Nei það held ég ekki. Ég hef meiri áhyggjur af því að þú gangir fram af mér í framkvæmdargleði þinni [eyebrows]
Þú sem ert búin að lýsa því yfir að þú getir vakað heilu sólarhringana! Ég þarf að sofa álíka mikið og ungabarn.happy

Nr. 2 | posted by: Harpa | 13.07.2003 | 21:04:57 | [+] |

Lokaspretturinn var líka erfiðastur. Ef hægt var að kalla þetta sprett. Var 4:01:14

Nr. 3 | posted by: igor | 13.07.2003 | 21:05:13 | [+] |

vó! Þetta er unfair. Þarftu að hlaupa maraþon til að þér líði svona??

Nr. 4 | posted by: anna | 13.07.2003 | 21:05:28 | [+] |

Nei, nei.. ég geng ekkert fram af mér. Ef ég geng þá nokkuð. Er að spá í að koma með línuskauta með mér.. toungue

Nr. 5 | posted by: anna | 13.07.2003 | 21:06:42 | [+] |

Þú varst að misskilja Anna.
Ég er hrædd um að þú gangir fram af MÉR!! Í dugnaði og framkvæmdagleði.toungue

Nr. 6 | posted by: Harpa | 13.07.2003 | 21:11:49 | [+] |

Áttu hengirúm? Ef þú átt svoleiðis er engin hætta á að ég geri neitt.... happy

Nr. 7 | posted by: anna | 13.07.2003 | 21:13:10 | [+] |

TEHE já ég á hengirúm.
Það er hinsvegar í u.þ.b. 6 metra hæð í hlöðunni sem er galtóm að öðru leyti, en ef þér tekst að skríða upp í hengirúmið þá bíður þín þar 9 ára gömul kókakóla flaska sem þú mátt sötra að vild og þú færð frí í viku. Hafðu með þér bók ef þú ákveður að klífa upp toungue

Nr. 8 | posted by: Harpa | 13.07.2003 | 22:51:22 | [+] |

Váááá igor hefur hlaupið maraþon.[eyebrows]

Nr. 9 | posted by: beggi dot com | 14.07.2003 | 1:01:13 | [+] |


recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web