www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
Is this a wig?
Miðvikudagur, 02. júlí 2003

Ég plataði systur mína til að setja í mig strípur í kvöld.
Núna lít ég út eins og hálfviti.

Þetta er ekki henni að kenna. Hún gerði ekkert sem ég skipaði henni ekki að gera.

Ég ofmetnaðist og hélt að ég gæti sko alveg gert mig eins flotta og Elín vinkona með því að fjarstýra systur minni. En quess what.

I was wrong.

Ég er reyndar ennþá með blautt hár svo þetta er ekki "alveg" að marka. Systir mín flúði áður en ég þvoði litinn úr. Annars var hún ekki í neinni hættu. Ég var búin að lofa að skamma hana ekkert. Allavega ekki svo hún heyrði.

Var að spegla mig. Ég er alveg drulluflott!

Tóta: í Melabúðinni, ef þú konu í gallabuxum, háhæluðum brúnum leðurstígvélum, gallajakka með hár sem nær vel niður fyrir axlir og er ljóst ofaná hausnum en svarbrúnt þegar það er komið niður fyrir eyru.. þá er það ég!


| anna | 23:11 |
comments

Afneitun?

Ég var einu sinni rauðhærður. Vinur minn líka en hann vildi meina að hann væri með kastaníubrúnt hár. Við létum hann halda það. Afneitun?

Á tímabili lét ég setja í mig strípur og hélt því áfram þó hárið væri farið að þynnast óþægilega mikið. Afneitun? Ég hefði alveg eins getað haldið því fram að ég væri með kastaníubrúnt hár.

Svo hætti ég að setja strípur í hárið. Skipti um klippara og samdi við nýjan um að hann klippti mig fyrir 500 kall. Það þótti mér góður díll og honum sennilega líka. Afneitun?

Svo keypti ég mér rafmagnsrakvél og raka sjálfur á mér hausinn. Konum finnst það ægilega flott. Lendi jafnvel í því að ókunnar konur vilja strjúka höfuðið á mér. Sérstaklega hnakkann. Á skemmtistöðum. Furðuleg tilfinning. Engin afneitun lengur. Engar strípur lengur. Fullkomnun.

Nr. 1 | posted by: igor | 3.07.2003 | 0:13:52 | [+] |

Afneitun? Nei, nei, nei, nei. Ég er ekki í afneitun.

Ég hef samt verið sköllótt. Það var þegar ég var búin að eyðileggja á mér hárið því ég fékk mér permanent og ákvað, þegar ég var andvaka eina nóttina, að klippa bara hárið á mér allt af. Sem ég gerði. Ég klippti það af og leit út eins og gyðingur í útrýmingarbúðum nasista með smá tæjur af hári hér og þar. Varð bara að raka allt draslið af. Leið miklu betur og sofnaði um leið og ég lagði skallann á koddann.

Það var ÉG sem startaði húfutískunni sem hefur gripið unglinga hins vestræna heims.

Ég er ekki í afneitun núna. Hárið á mér *er* rosalega flott.
Allavega í myrkri.

Nr. 2 | posted by: anna | 3.07.2003 | 0:37:03 | [+] |

Trúi þér. Ertu búin að þakka systur þinni fyrir.

Nr. 3 | posted by: igor | 3.07.2003 | 0:56:34 | [+] |

Hva, er Hallgrímur Helgason farin að kommenta á síðunni þinni?

Nr. 4 | posted by: organistinn | 3.07.2003 | 7:38:48 | [+] |

Hallgrímur Helgason? Neeee varla. Er hann með fyrirtæki, konu og börn? Ég hélt að hann væri bara með skalla.

Nr. 5 | posted by: anna | 3.07.2003 | 7:54:30 | [+] |

Ég þakkaði systur minni before, during and after.

Nr. 6 | posted by: anna | 3.07.2003 | 8:32:54 | [+] |

Organisti.

Ég tek þetta sem hrós. Veit ekki hvort Hallgrímur geri það.

Anna.

Þú ert greinilega með gott minni. Góður eiginleiki sem ekki margir hafa. Maður getur komist helvíti langt á góðu minni.

Nr. 7 | posted by: igor | 3.07.2003 | 9:42:54 | [+] |

já.. og ég er búin með rúman fjórðung! laughing

Nr. 8 | posted by: anna | 3.07.2003 | 10:03:11 | [+] |

Igor: Anna er þrælskörp. Skil ekkert hvað hún var að þvælast í Iðnskólann. Organistinn hefði þó svarað þessu rétt á krossaprófi.

Anna: Hvernig stendu á því að þú dregur að þér miðaldra karlmenn með konu, börn (og fyrirtæki), sbr hriðina?

Nr. 9 | posted by: organistinn | 3.07.2003 | 10:07:26 | [+] |

Organisti.

Er eitthvað að Iðnskólanum? Er eitthvað snobb í gangi?

Það hlýtur að vera gallajakkinn með síða hárið sem dregur svona að.

Anna.

Öfugt við tölvur þá batnar minni mannsins við aukna notkun.

Nr. 10 | posted by: igor | 3.07.2003 | 10:18:56 | [+] |

Igor: Ertu að gefa í skyn að minni tölva versni með notkun?speechless

Það eru merkileg tíðindi svo ekki sé dýpra í árina tekið.

Nr. 11 | posted by: beggi dot com | 3.07.2003 | 10:32:37 | [+] |

beggi dot com.

Ég er ekki að gefa það í skyn. Ég er að segja það. Þetta er einfaldlega upplifun tölvunotanda. Við aukna notkun hrakar minninu. Að minnsta kosti segir tölvan mín það. Og ég trúi henni.

"not enough memory to perform this operation". En það má vel vera að það sé eitthvað annað sem valdi þessum stöðugu yfirlýsingum tölvunnar. En þetta er a.m.k. hennar niðurstaða og varla fer ég að saka hana um lygar.

Þetta gerist ekki með mannsheilan því hann funkerar alltaf betur og betur eftir því sem hann er notaður meira.

Nr. 12 | posted by: igor | 3.07.2003 | 10:51:19 | [+] |

Organisti:

Ég fór í Iðnskólann að læra að sauma. Það er erfitt að geta gert nánast hvað sem manni dettur í hug, því þá er úr svo mörgu að velja. Ég öfundaði alltaf æskuvin minn sem vissi að hann gæti bara skrifað.

Það er soldið fyndið að í cyberspace virðast það vera miðaldra menn sem laðast að mér, a.m.k. miðað við kommentin. Í raunheimum er það allur skalinn frá 19 og uppúr.

Beggi og Igor:

Aldrei hef ég farið í minnisstækkun en tölvan mín hefur gert það þrisvar. Samt ótrúlegir hlutir sem ég man. Enda er æska mín complete blur svo það ætti að vera nóg af plássi þarna!

Nr. 13 | posted by: anna | 3.07.2003 | 11:26:13 | [+] |

Minni í tölvum hrakar ekki.

Hvaða útgáfu af Window$ ertu með?

Nr. 14 | posted by: beggi dot com | 3.07.2003 | 11:38:00 | [+] |


recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web