www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
háspenna
Sunnudagur, 13. júlí 2003

Ég fór í bað í morgun, svo fór ég í sund, svo fór ég aftur í bað seinnipartinn og svo aftur eftir kvöldmat og er að spá í að fara núna fyrir svefninn.

Ég er búin að fara ca 19 sinnum á klósettið að pissa og er með krónískan magaverk. Ég er líka komin með skrítinn kipp í augnlokið vinstra megin. Það eru 12 tímar í brottför og ég er búin með neglur til að naga.

Ég keypti mér landakort og merkti leiðina með rauðum permanent túss á kortið. Ég trúi varla að ég sé að fara út úr Reykjavík og inn í óvissuna. Þar sem lifandi dýr spígspora um allstaðar. Þá er nú eins gott að hafa Elías hjá sér. Ég fékk 100 ofnæmistöflur hjá lækninum to be on the safe side og fyllti út organ donor kort á heilsugæslustöðinni.

Hey! Djöfuls gargandi snilld. Peysan mín hljóp í þurrkaranum og nú smellpassa ermarnar á mig!


| anna | 23:35 |
comments

Ertu búin að tékka á hvort þú nærð ennþá í táneglurnar ? [suspicious]
Hlökkum til [eyebrows] alle sammen...

Nr. 1 | posted by: Harpa | 13.07.2003 | 23:56:23 | [+] |

Góða ferð í sveitina! Hún er ekki eins slæm og af er látið.

Nr. 2 | posted by: beggi dot com | 14.07.2003 | 0:40:45 | [+] |

anna.

Ert þú fyrirmyndin að móðurinni í myndinni Pontiac Moon frá 1994. Var sýnd á RÚV síðasta föstudag.

Nr. 3 | posted by: igor | 14.07.2003 | 7:50:15 | [+] |

Á þessum árstíma fer spennan líka vaxandi hjá mér. Það byrjaði allt fyrir 7 árum. Það má líkja þessu við fíkn. Óviðráðanlegt.

Eins og ég segi byrjaði þetta sakleysislega fyrir 7 árum. Sennilega myndi Billy Joel syngja "It was the summer of ´96." Sumarið áður hafði hústjaldið fokið ofanaf okkur í útilegu. Urðum að fara fyrr heim og náðum einungis 3 dögum. Shame? Not really.

Igor var því sendur út af örkinni. Samningaviðræðurnar stóðu yfir í langan tíma. Að lokum var tjaldvagninn minn. Ásamt borði og tveimur stólum. Ávöxtur samningaviðræðna. Krókurinn á bílinn kom í kjölfarið.

Allt var til reiðu. En áður en lagt var af stað var komið við hjá Combi Camp félaginu. Igor orðinn meðlimur. Mögnuð fríðindi. En strembin markmið. Teljari settur á vagninn og þegar tíuþúsund kílómetrum yrði náð kæmist igor í hóp heiðursfélaga og fengi fría ferð til Noregs með Norrænu. Haustið 2003.

Fyrsta sumarið gaf af sér fimm nætur í vagni. Næst voru það sjö. Síðan tíu. Þá átta (ælupest). Þá tólf. Í hitteðfyrra 15 og að lokum nýtt met, 16 nætur í vagni. Kílómetrarnir hlóðust upp. Noregur nálgaðist óðfluga.

Nú leggur igor af stað sjöunda sumarið í röð. Næturnar skipta ekki lengur máli. Markmiðið sett á 1300 kílómetra til að ná markmiðinu. Noregur í sjónmáli. Spennan í hámarki.

Nr. 4 | posted by: igor | 14.07.2003 | 22:43:40 | [+] |


recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web