Fimmtudagur, 03. júlí 2003
Í gærmorgun, þegar ég var búin að klæða mig, leit ég í spegil og fannst ég bara líta helv. vel út. Dismissaði þetta fljótt sem insanity. Auk þess var ég ekki með gleraugu.
Í morgun gerðist nákvæmlega það sama. Ég klæddi mig og fór fram. Mætti sjálfri mér í speglinum á ganginum og þrátt fyrir að ég væri með gleraugu fannst mér ég líta helv. vel út.
Þetta er furðulegt. Annaðhvort er ég að uppskera ávinning tannkúrsins eða þetta er losti.
Ef þetta er tannkúrinn þá eru góðar líkur á að ég verði svona áfram. Ef þetta er losti, þá verð ég óhugguleg innan nokkurra daga. Nema einhver viðhaldi honum.
Sem minnir mig á... ég fór til tannlæknis á mánudaginn. Engin hola og bara tveir tannsteinar sem hann fjarlægði sársaukalaust. Svo tók hann mynd af einni tönninni (þessari sem ég minntist á um árið... flottustu tönninni uppí mér... endajaxlinn vinstra megin) með fínu digital vélinni sinni.
Það er rosalega scary þegar tannlæknirinn manns spyr, með mörg hundruð þúsund króna digital myndavél um hálsinn: "Má ég taka mynd af þér?"
Mér datt strax í hug að þetta væri eitthvað af eftirfarandi:
1. Hann er perri og langar að eiga mynd af mér í tannlæknastólnum.
Sem er ósanngjarnt því mig langar í mynd af honum með borinn.
2. Hann er með kúnna sem burstar ekki nógu vel tennurnar. Hann vill taka myndir af tönnunum í mér til að sýna viðkomandi hversu ógeðslegar tennurnar geta orðið ef maður kann ekki að bursta.
3. What the fuck? Hvað meinar maðurinn? Taka mynd hvað? Nú hefði verið gott að vera búin að plokka sig! Sjís...
Hann sýndi mér myndina á prewiev skjánum og mikið rosalega er þessi endajaxl flottur. Miklu flottari en krónurnar sem ég er með. Djöfull er þetta góður tannlæknir!
Ég þarf ekki að koma aftur til hans fyrr en í desember. Sorglegt.
Ef ég hætti alveg að bursta í mér tennurnar... ætli ég fengi ekki tannpínu um leið?