www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
Gleraugu
Föstudagur, 11. júlí 2003

Ég fór að skoða gleraugu í gær og aftur í dag. Í dag fór ég með linsur svo ég sæi mig með gleraugun sem ég var að máta.

Valið stendur á milli tveggja umgjarða. Önnur er mjög töff en ekkert rosalega áberandi og þegar ég er með þau er ég bara "venjuleg", soldið grimmileg en ekkert meira en venjulega. Hin umgjörðin, sem sölukonan og Dórið sögðu bæði að ég ætti að fá mér, er mjög töff en mjög áberandi. Hún fer mér mjög vel en ég er ekki "venjuleg" þegar ég er með þau.
Það eru týpu-gleraugu.

Í gær fannst mér þessi sem gera mig "venjulega" flottari en týpu-gleraugun en í dag, með linsur, er ég ekki eins viss. Í dag fannst mér týpu-gleraugun flottari.

Sem betur fer þarf ég ekki að taka ákvörðun um hvora umgjörðina ég kaupi því ég hef ekki efni á að kaupa mér ný gleraugu.


| anna | 14:41 |
comments

Ég legg til að allir sem kíkja á síðuna sendi svosem 500 krónur til Önnu í gleraugnasjóð svo við fáum mynd af henni með týpugleraugun á síðuna....


....hún er DRULLUFLOTT með týpugleraugun, enda er hún týpa stelpan

Nr. 1 | posted by: Dorinn | 11.07.2003 | 17:10:03 | [+] |

Nei, nei. Bráðum mun fara af stað landssöfnunin: "Björgum Önnu". Þá ætti ég að geta keypt gleraugu og föt og svoleiðis. Kannski nýjan bíl og bát jafnvel! happy

Nr. 2 | posted by: anna | 11.07.2003 | 17:42:30 | [+] |

Fáúm Sigurð Pétur til að sjá um gleraugnasöfnunina....

Sé þetta fyrir mér "Sjónin heim"

Nr. 3 | posted by: Dorinn | 11.07.2003 | 17:47:40 | [+] |


Þó að Anna fengi ekki nema eina krónu fyrir hvert hit á síðuna þá held ég að hún gæti keypt sér eitthvað meira en bara gleraugu mjög fljótlega. Ég fékk nebbla að sjá bókhaldið hennar yfir heimsóknir í gær og VÁ! Hún er án alls efa vinsælasti bloggari landsins cool
Og kerfið hennar er eins og við má búast enginn ókeypis teljari frá teljari.is eins og við meðalljónin látum okkur duga, og telur í hvert sinn sem mar refressar, heldur alvöru græja.

Anna, nú er bara að fara í támjóu skóna og þú veist....[eyebrows]

Má borga í lambakjöti? [biggrin]

Nr. 4 | posted by: Harpa | 11.07.2003 | 20:27:06 | [+] |

Harpa.

Ertu virkilega hissa að anna skuli vera vinsælasti bloggari landsins? Ég er ekki hissa á því.

e.s. dorinn fær greinilega að sjá meira en við hin.

Nr. 5 | posted by: igor | 11.07.2003 | 21:07:35 | [+] |

Nei ég er ekki hissa. Fékk bara staðfestingu á því í gær. Hún er ekki eins og sumir bloggarar sem refressa síðuna sína sjálfir í gríð og erg í keppninni um hver sé vinsælasti bloggarinn hendur sleppir öllum opinberum tölum og hefur þetta útaf fyrir sig, eins lítillát og hún er.

Anna, ég veit að þú varst bara að sýna mér þetta. Ég vona að ég sé ekki að bregðast trúnaði að vera að gaspra með þetta. Viltu taka út færsluna mína ef þér finnst ég hafa farið út fyrir siðamörk að vera að tjá mig um þín málefni og þín vinnubrögð o.s.frv. Ég er farin að fá móral confused

Nr. 6 | posted by: Harpa | 11.07.2003 | 21:21:13 | [+] |

errr.. myglaðar marglyttur*! Ég er nú alveg örugglega ekki vinsælansti bloggari landsins og bið ykkur að hætta að halda það strax! Ég fyrirgef ykkur aldrei ef paparazzi Íslands fer að sitja um mig toungue

Harpa: Þér er fyrirgefið. happy

Það má líka alveg borga í lambakjöti. Krakkarnir voru einmitt að borða upphitaðar kjötbollur frá því í gær og Jóhanna spurði mig hvernig kjöt væri í kjötbollum. Ég sagði henni að það væri lambakjöt og við fengjum að sjá fullt af svoleiðis í sveitinni hennar Hörpu, meira segja sumt á lífi ennþá. Doddi er farin að telja niður og spyr mig fimm sinnum á dag: "Hvenær förum við í sveitina?"

Dórinn plataði mig út úr húsi um daginn og inn í gleraugnabúð, vissi ekki að hann myndi líka plata mig til að skoða umgjarðir og planta þrá í hjarta mitt eftir einni, hvað þá tveimur!

Dórinn fær að sjá meira af mér en þið (fyrir utan Hörpu sem ég ætla að heimsækja á mánudaginn) af því að hann þekkir mig í raunheimum. Taugahrúguna Önnu sem svalar listamannseðli sínu með að málar skrattann á veggi og striga. Prozac popping lunatic, svefnlausa, komplexaða, bitra, reiða og... eins og GMS.. allt þetta og svo miklu, miklu meira! Stundum fæ ég leyfi og þá fer Dórið með mig í gleraugnabúðir, niður á tjörn að skoða endurnar eða í Hveragerði að fá ís. Stundum fer hann í ljós og þá fæ ég að lita í litabókina sem hann geymir í bílnum en það er voða sjaldan. Hann er samt eiginlega hættur að fara með mig í Hveragerði til að fá ís því ég sulla svo niður og honum þykir vænt um bílinn sinn. Ég fer aldrei út án þess að hafa litla bláa teppið mitt með mér, annaðhvort í töskunni eða um hálsinn. Dórinn veit að ég er mjög sérstök.

*blótsyrði.. er ekki að dissa neinn... smile

Ef þú ert að lesa líftryggingarmaður, þá finnst mér rétt að taka fram að ég er bara að plata og geri það stundum á síðunni minni eins og þegar ég sagðist vera einstæð móðir með sex börn og byggi í Breiðholti og þegar ég sagðist vera búin að vinna í lottóinu. Ég er yfirleitt frekar ánægð með lífið og tilveruna og er meira að segja soldil Pollýanna í mér ef marka má Dórið. Hann sagði allavega að gleraugnafærslan væri rosalega jákvæð. Alveg satt.

Þér er alveg óhætt að líftryggja mig. Þó ég segist stundum langa til að henda mér fram af svölunum á fimmtu hæð þá er það líka bara djók. Ég bý á 2. hæð og myndi í mesta lagi örkumlast.. en það er alveg óhætt að sjúkratryggja mig því ég myndi sko ekkert gera það í alvörunni. Ef ég ætlaði að enda þetta myndi ég leiða pústið í bílinn með... neee.. ok ég er hætt.

Nr. 7 | posted by: anna | 11.07.2003 | 21:45:51 | [+] |

Niðurstöðurnar hjá þér í könnuninni: "Hvar ertu mest á netinu" vöktu athygli mína.

Þegar ég svaraði þá höfðu 70,6% svarað því til að það væri heima hjá þeim en 11,8% í vinnunni.

Þegar ég hef kannað netnotkun á Íslandi sem er alloft þá er langmest notkunin á virkum dögum á milli klukka 14:00 - 16:00. Og mánudagar eru einna stærstir. Enginn munur er milli árstíða.

Samkvæmt því koma aðeins þrír kostir til greina.

1. Annaðhvort ljúga allir í könnun anna.is

2. Mjög fáir eru á vinnustað á virkum dögum á milli klukkan 14.00 - 16.00. Þeir hljóta þá að skjótast heim til að komast á netið.

3. Notendur anna.is eru óvenju sérstakir

Nr. 8 | posted by: igor | 11.07.2003 | 21:54:42 | [+] |

Ég laug bara að hálfu leiti í könnuninni. ég mátti nebbla bara kjósa einu sinni og kaus þá "heima". Sem er alveg rétt. Hins vegar er ég líka heilmikið á netinu í vinnunni. Það er sko vegna þess að minn vinnustaður er heima hjá mér [biggrin]

Anna. Takk fyrir fyrirgefningu synda minna.
Vonandi fær Jóhanna að sjá hvernig kjötbollur eru búnar til. Vona að hún haldi samt áfram að borða þær.
Grrrrr, hlakka til eftir helgi cool

Nr. 9 | posted by: Harpa | 11.07.2003 | 22:06:51 | [+] |

Ég sá nú bara eitt dapurt komment á gestabókinni sem er það nýjasta. Segir það meira um þann sem setti komentið en síðuna þína enda viðkomandi ekki alveg skrifandi ennþá.

Þú þekkir nú eflaust betur þessa netheima til að dæma um það hvort henda á út svona vitleysu eða ekki.

Nr. 10 | posted by: igor | 11.07.2003 | 22:18:46 | [+] |

Tvennt sem ég þarf að nefna.... það er ekki útaf því að þú sullaðir niður ísnum sem ég hætti að taka þig með til HvergerðiGerðigrikkísumar..... (Sorrí, tók sig upp gamalt ríótríólag) ....með til hveragerðist, Bragi í Eden sagði mér að stíga aldrei aftur fæti inní Hvergagerði með þig í eftirdragi eftir að þú sveiflaðir þér í trjánum.

Annað sem ég vil að komi fram að þið eruð komin út fyrir efnið.... þetta snýst um gleraugun, Anna var svo flott með Alain Mikli brillurnar að hún verður að eignast þær.

Ég held að það væri réttast að safna fyrir stelpu rakkadið. Nú höldum við anna.is fónaþon þarsem Hemmi Gunn og Gylfi Ægis taka við fjárframlögum í síma.

Nr. 11 | posted by: Dorinn | 12.07.2003 | 0:01:26 | [+] |

HALLDÓR! Bragi lýgur! Þetta var einhver runni þarna fyrir framan.

Ekkert Hemma/Gylfa þon. Ég verð þreytt af því að hugsa um það.

Nr. 12 | posted by: anna | 12.07.2003 | 0:06:34 | [+] |

Eða kannski ekki svo mikið þreytt... meira þunglynd... oogle

Nr. 13 | posted by: anna | 12.07.2003 | 0:07:11 | [+] |

Hemma/Gylfa þon hljómar ekki mjög vel, verð ég að segjasick

Nr. 14 | posted by: beggi dot com | 12.07.2003 | 0:09:17 | [+] |

Hey!

Þetta eru mennirnir sem gerðu ævintýraplöturnar um Rauðhettu og úlfinn og fleira...
...hverjum langar ekki að heyra söngævintýraplötu um Harry Potter !?!?

Nr. 15 | posted by: Dorinn | 12.07.2003 | 0:23:26 | [+] |

Sammála. Ég segi nei takk við íslenskri söngævintýraplötu um Harry Potter. speechless

Nr. 16 | posted by: anna | 12.07.2003 | 0:34:40 | [+] |

Ekki láta svona, hver vill að Hemmi fái höfnunartilfinningu og flytji til Tælands aftur ?

.....hm, ekki svara !

Nr. 17 | posted by: Dorinn | 12.07.2003 | 0:55:18 | [+] |


recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web