www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
Geðklofi?
Þriðjudagur, 29. júlí 2003

Hexia De TrixEins og komið hefur fram er ég einföld manneskja og auðblekkt. Það er einmitt þessvegna sem ég skildi ekki alveg þessa færslu hjá Hexíu. Ekki það.. ég skil alveg hvað "að fara á drekk" þýðir og held að allar konur hafi gott af því að stunda það svolítið... -mikið stundum.

Það sem ég náði ekki alveg utanum var þegar Hexía talaði um að hún og nornin fóru saman á drekk.

Ég fór að velta því fyrir mér hvort nafnið Nornasveimurinn væri kannski notað yfir geðklofa þess sem skrifaði en fannst ólíklegt að svo veik manneskja kæmist í tölvu. Auk þess sem bloggið er allt of skemmtilegt til að vera eftir skitsó. Nema það sé málið.. en nei. Ég skildi þetta ekki.
Fór í bað en var engu nær.

Það var ekki fyrr en Norn póstaði sem það rofaði til í heilabúi mínu og ég áttaði mig á því að þetta eru tvær manneskjur/nornir sem eru að blogga. Annarsvegar Hexía og hinsvegar Norn.

Þessi uppgötvun mín róaði mig töluvert en mun ekki verða til þess að ég hætti að lesa Nornasveiminn. Ég bara skil hann aðeins betur.

Að lokum er vert að upplýsa að ég er tilnefnd til skarpskyggnisverðlauna Nóbels í ár.


| anna | 17:46 |
comments

Mmmmmmm.. hef ekki svarið. Er að reyna að átta mig á þessu líka. Er bara ný farin að lesa þetta blogg.
Gamanaððí.

Nr. 1 | posted by: Harpa | 29.07.2003 | 22:42:39 | [+] |

Verð að vera sammála þessu með nornina og geðklofann. Ég lokaði tölvunni minni í skelfingu þegar ég las að hún vaknaði á pizzukössum en um leið fiskaði öskubakka upp úr vösunum vegna stelsýki. Hélt ég væri alvarlega búin að missa mig.
toungue
Segi jafnframt að þetta er mjög skemmtilegt blogg sem þú skrifar og vona að þér sé sama þó ég setji inn eitt komment hér boggled
Meinvill

Nr. 2 | posted by: Meinvill | 29.07.2003 | 23:22:40 | [+] |

Ehh. I alvøru Anna weepy

Nr. 3 | posted by: beggi dot com | 30.07.2003 | 7:19:25 | [+] |

Í alvöru hvað?

Nr. 4 | posted by: anna | 30.07.2003 | 11:58:22 | [+] |

Gildir ,,Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes" nuna. Eda fattadirdu thetta ekki i alvøru? what

Nr. 5 | posted by: beggi dot com | 30.07.2003 | 12:08:09 | [+] |

Ó... nei auðvitað gildir þetta ekki. Allt sem ég skrifa er dagsatt. Ég vil bara ekki að neinn viti það.

Nr. 6 | posted by: anna | 30.07.2003 | 12:11:32 | [+] |

Hmmmm, veit varla hvar skal byrja.

Í fyrsta lagi, þá er töluverður munur á ritstíl okkar sveimara. Minn er einfaldlega fegurri. Í öðru lagi er Nornin afkastaminni sem helgast af því að hún er alltaf í meðferð og má ekki vera með lapptopp með sér í náttfatapartíinu. Í þriðja lagi þá finnst mér frábært ef fólk verður hrætt við bloggsíðuna mína, þá er takmarkinu náð.

Þakka annars hól, mér finnst blogg almennt leiðinleg lesning, með einstaka undantekningum. Síðan þín er ein af þeim.

Hexia, hin illa.

Nr. 7 | posted by: Hexia | 30.07.2003 | 13:42:06 | [+] |

Sit ekki undir svona svívirðingum og lygaþvaðri frá hinum helmingnum af mér. Hexia fáðu þér í glas og hættu þessum ofskynjunum og ofmati á sjálfri þér annars verð ég að slíta af mér útlim. Ég bý einfaldlega yfir meiri glæsileika og svo get ég líka drukkið meira en þú. Ég er hins vegar sammála hinum helmingnum að flest blogg eru leiðinleg. Ótrúlegt hvað fólk er almennt leiðinlegt.

Nr. 8 | posted by: Norn | 30.07.2003 | 13:56:49 | [+] |


recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web