www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
FRÍÍÍÍÍÍÍÍÍÍÍ
Föstudagur, 04. júlí 2003

Ahhhhhh ég er komin í frí. Ég byrjaði fríið á að fara í áttræðisafmæli hjá konu sem er líklega komin af léttasta skeiði. Hún sagði mér að það væri rosalega gaman að vera áttræður og ég yrði það örugglega líka. Hjúkk!

Nú, þegar ég er komin í frí, er ég hálf eirðarlaus. Ég kann líklega ekki að vera í fríi. Ég er búin að ákveða að spila playstation til 4 í nótt og sofa út á morgun. That's it. Nema ég veit að þann 14. legg ég af stað með kræklingana mína út úr bænum á vit ævintýranna úti í óbyggðum. Svo get ég alltaf raðað bókhaldinu í möppur...

Úúúú vaknar Monican í mér. Ég þarf ca fjórar möppur, best að hafa þær allar svartar... búa til custom made merkimiða á kjölinn... kaupa milliblöð.. allskonar penna og áherslutússa og merkingarvél og flokka reikninga. Vei!!

Best að leggja sig fyrst...


| anna | 19:29 |
comments

Þú heppin að geta Mónikkast svona !

Ég er með með hliðarsjúkdóm við les og skrifblindu... þetta er bókhaldsblinda, á líka bágt með að lesa gluggapóst


....það skrítna við það er að það skilar sér í auknum pósti.... með gluggum

Nr. 1 | posted by: Dorinn | 4.07.2003 | 19:32:30 | [+] |

Geturðu ekki farið að áreita útburðinn eitthvað á *sérstakan* hátt? Þá kannski hættir hann að koma. Ertu kannski líka mað mail-man blindu?

Nr. 2 | posted by: anna | 4.07.2003 | 19:49:53 | [+] |

Ég kem bara með merkivélina mína og möppurnar með mér. Monica-st soldið hjá þér tíhíhí laughing

Nr. 3 | posted by: anna | 4.07.2003 | 21:35:24 | [+] |

Hehehe, hvað ertu í löngu fríi ?
Ég er ekkert að grínast, ástandið er skuggalegt [eyebrows]

Nr. 4 | posted by: Harpa | 4.07.2003 | 22:25:07 | [+] |

Hvernig er það, Harpa, er búið að senda Zetorana út á tún í sláttinn?

Þurrkið þið eða rúllið?

[reyndir að halda við sveitamannatermínólógíunni]

Möppur og reikningar -- puhhh, það sást ekki endurskoðandi í sveitinni hjá okkur eftir að þar gekk á milli bæja bruggkútur mikill sem sló menn út eins og flugur.

tc

Nr. 5 | posted by: Tony Clifton | 4.07.2003 | 23:59:08 | [+] |

Brautryðjandi.

Fór einu sinni í frí í nokkra daga fyrir allmörgum árum síðan. Sennilega 10 árum. Í laxveiði með félögunum. Hef aldrei verið mikill bjórdrykkjumaður en ákvað að kaupa mér bjór fyrir ferðina.

Legg leið mína í ÁTVR í Ikea og tek bjórinn úr hillunni og fer að kassanum. Stöðvaður. Bannað að kaupa aðeins tvær dósir í einu. Verð að kaupa minnst sex. Sný við og næ í sixpakk.

Fer í röðina aftur við kassann og set sixpakkinn hróðugur á borðið og dreg upp Visakortið. Tökum ekki Visa segir kassadaman. Ég skila bjórnum í hilluna og fer tómhentur út.

Í dag skilst mér að ekkert mál sé að kaupa einn bjór og borga með Visa. Svona getur verið vont að vera svona langt á undan sinni samtíð.

Ástleitni.

Datt í hug einn daginn á leið úr vinnu að koma við í ríkinu og kaupa rauðvín og koma konunni á óvart. Vel þessa líka fínu flösku, flottur miði, borga með Visa og set flöskuna í brúnan bréfpoka. Legg bílnum í stæðið við húsið og stíg út og flaskan rennur með tilþrifum úr pokanum og beint á stéttina. Þúsund rauðir molar. Pokinn heill.

Hef síðan sent konuna í ríkið.

Nr. 6 | posted by: igor | 5.07.2003 | 2:04:09 | [+] |

Hvenær sefur þú?

Nr. 7 | posted by: anna | 5.07.2003 | 2:18:19 | [+] |

Eins lítið og mögulegt er, alla jafna, en vinn það síðan upp svona á eins til tveggja mánaða fresti með því að fara að sofa 1-2 kvöld um 9 leitið og sef þá kannski til sex, jafnvel átta á góðum degi.

Nr. 8 | posted by: igor | 5.07.2003 | 2:28:06 | [+] |

Var annars að koma úr golfi núna og því blog...kommentera ég svona seint. 18 holur. Frábært veður. Þyrfti samt að vera í betri þjálfun.

Nr. 9 | posted by: igor | 5.07.2003 | 2:30:17 | [+] |

Ég hef frétt að golf sé að verða craze á Íslandi. Ótrúlegasta fólk er farið að klæða sig í furðuleg föt og fjárfesta í golfsetti.

Er þetta ekki meira félagsskapurinn en hitt? En já ég veit hvað þetta er rosalega góð hreyfing og allt það...

ok. ég finn að ég er að breytast í Önnu ungling. Þarf aðeins að túna mig niður. Best að setja Barry Manilow á fóninn. Instant doði... Verð að hætta að kaupa mér kók í bíó.

Er konan þín líka vinnufíkill? Leiðist henni ekkert þegar þú ert alltaf í vinnunni?

Nr. 10 | posted by: anna | 5.07.2003 | 2:48:42 | [+] |

Það er ekkert að því að laumast. Á meðan það er bara í golf.

Nr. 11 | posted by: anna | 5.07.2003 | 3:16:53 | [+] |


recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web