Þriðjudagur, 08. júlí 2003
Hér var færsla sem hét "góðir viðmælendur" sem ég ákvað bara að taka út því hún var bull og vitleysa sem auðvelt var að misskilja.
Hinsvegar fékk ég furðulega tilfinningu í kvöld og hef velt því fyrir mér síðan hvort ég sé í alvöru með paranoiu eða eitthvað þaðan af verra.
Ég held ég sé að verða veik... með hita og alles. Ég rugla.
Save your love my darling
save your love
sem minnir mig á fertugsafmælið hans pabba í Daltúninu.
Ég var að horfa á Blood Work með Clint Eastwood, hating every minute of it. Fyrir það fyrsta þá er Clint orðin gamalmenni sem á ekki að vera að kyssa ungar konur í bíómyndum. Maður fattaði á fyrsta korterinu hver morðingin var og af hverju konan var drepin. Ég hraðspólaði yfir þegar Clint tók lokabardagann við No One. What a waste of time.
Nú jæja. Ég get skrifað eitthvað af viti um bíómyndir. Ég er þá ekki gonner yet.