www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
Ég er búin
Sunnudagur, 06. júlí 2003

Búin að raða í möppu bókhaldi fyrir árin 2000, 2001, 2002 og það sem af er árinu 2003. Nú get ég flett upp reikningum alveg hægri vinstri og ef ég vil virkilega leggjast í þunglyndi þá tek ég bara nýjustu möppuna með mér uppí rúm og les.

Ég réðist líka á blaðahauginn inni á hinu skrifborðinu. Haugurinn þakti borðið alveg og náði mest 80 cm hæð. Ég mældi það áður en ég byrjaði. Hefði tekið mynd ef ég ætti filmu.

Henti einum og hálfum svörtum ruslapoka af pappírsdrasli. Tek fram að ekkert af þessu voru dagblöð. Ég skil ekki af hverju ég sanka að mér svona miklum pappír. Ég minnkaði þetta niður í tvo bréfabakka sem standa á skrifborðinu sem var eiginlega hálf nakið svo ég dreifði tindátunum hans Dodda um allt borðið. Maður verður að gera svona dramatískar breytingar smátt og smátt. Má ekki fara offari.

Þegar maður tekur til í svona haugum finnur maður alltaf eitthvað skemmtilegt. Ég fann t.d. kvittunn sem ég er búin að leita að mánuðum saman, inneignarnótu hjá Griffli upp á fimm þúsundkall sem rennur út eftir fimm daga, innskráningarupplýsingarnar í Íslendingabók svo nú get ég byrjað að skoða falsaða ættartréð mitt aftur, beltið mitt svo nú get ég farið að ganga í buxum sem passa ekki á mig aftur. Reiknivélina fann ég líka, því miður. Ég fann boðsmiðann út að borða og á sýningu á Broadway sem ég komst ekki á, einkunnirnar mínar úr Iðnskólanum sem ég þurfti að láta faxa til mín af skrifstofu Iðnskólans þar sem ég fann þær hvergi o.s.frv.

Ég fann sönnun fyrir því að víst var búið að greiða maí reikninginn af leikskólagjöldunum og ætla að senda afrit af honum til Intrum sem var að senda mér bréf þar sem stendur m.a.: "NÚ ER MÁLIÐ ORÐIÐ ALVARLEGT!". Sjís.. I'm shaking in my boots! Áður en þeir sendu þessa orðsendingu sendu þeir: "ÞAÐ BORGAR SIG FYRIR ÞIG AÐ LOSNA FRÁ ÞESSARI SKULD". og hvað eiga þeir að gera sem eiga ekki fyrir skuldinni? Hengja sig? Dásamlegar innheimtuaðferðir og yndislegt þegar þeir taka upp á að rukka eitthvað sem er löngu greitt og þvinga mann til að taka til heima hjá sér til að sanna það.

Annars var ég lang lengst að fara í gegnum teikningar Jóhönnu og Dodda. Doddi er dásamlegur súrealisti og Jóhanna er einfaldlega listamaður. Það er mottó hjá mér að eiga alltaf pappír og liti fyrir þau svo daginn sem ég henti fullt af pappír fór ég og keypti meira...

Mér líst hinsvegar ekkert á hvernig horfir. Ég hef ekkert náð að spila playstation það sem af er fríinu. Ég þarf að herða mig. Núna ætla ég hinsvegar í bað...


| anna | 2:52 |
comments

Þú ert nocturnal eins og rotturnar í Reykjavík. [suspicious]

Fannstu eitthvað athyglisvert í Íslendingabók?

Nr. 1 | posted by: Organistinn | 6.07.2003 | 5:17:03 | [+] |

Eigin herra.

Konan var að vinna í gær. Og dóttirin fjarri. Því vorum við feðgarnir okkar eigin herrar i gær. Gátum gert það sem okkur sýndist þegar okkur sýndist. Þess vegna ryksugaði ég húsið fyrir hádegi. Hreinsaði þakið á ruslakompunni í hádeginu. Skúraði og þreif klósettið eftir hádegi. Og setti í uppþvottavélina eftir veisluna sem konan hélt í fyrrakvöld á meðan ég var í miðnæturgolfi. Það er yndislegt að geta ráðið sér sjálfur. Mér leið eins og byltingarmanni.

Þangað til konan hringdi úr vinnunni og spurði hvort ég væri búinn að ryksuga, skúra, gera við þakið og þrífa klósettið, setja í uppþvottavélina og taka úr henni. Þá fór helsti sjarminn af byltingunni.

Feðgaveisla.

Þegar maður er eigin herra þá þarf maður að elda líka. Þá kemur sér vel að vera með stúdentspróf í matreiðslu. Í gær töfraði ég fram hádegisverð fyrir okkur feðgana kl. 14:30. Sannkölluð veislumáltið að okkar mati. Oftast eru uppskrifir alls ekki nægjanlega tæmandi og kemur það sér oft illa fyrir þá sem ekki eru vanir að elda eða ekki með próf í eldamennsku. Þess vegna ætla ég að hafa annan hátt á og hafa uppskriftina mjög nákvæma og nákvæma lýsingu á öllu ferlinu. Það getur komið sér vel fyrir marga. Uppskriftin er svona.

Áhöld:
1 stk. pottur tæplega hálffullur af vatni
Eldavél sem potturinn er settur á
Eldhúsofn
Þrír litlir diskar
Einn lítill bolli
Einn lítill gaffall
Einn stór gaffall
Ein teskeið.
Engin glös

Hér skal bent sérstaklega á að eftir því sem áhöld eru færri þá er minna uppvask seinna. En svona hlutir lærast með reynslu. Einnig er hugsanlegt að nota pappadiska fyrir þá sem ekki eiga uppþvottavél.

Hráefni:
Fimm brauð skorin langsum
Fimm pulsur
Steiktur laukur
Jalapenó í krukku
Sterkt sinnep
Sætt sinnep
Tómatsósa
Upptakari
Tvær litlar kók í gleri

Matseld:
Hita pulsur í potti og hita brauð í ofni.

Röðun á borð:
Tveir diskanna eru settir fyrir framan stólana sem sitja skal á. Einn diskur er settur á mitt borðið og pulsur settar á hann og stóri gaffallinn setur þar líka. Tómasósa og báðar sinnepsflöskur eru settar á borðið, dreifa jafnt. Steikti laukurinn er settur í litla bollann og teskeiðin þar í. Jalapenó krukkan er opnuð og sett á borðið og litli gaffallinn þar í. Upptakari settur á borðið. Kókflöskur í gleri skal geyma í ísskáp alveg fram á síðustu stundu. Þá eru þær teknar fram, opnaðar og settar fyrir framan fyrrnefnda diska.

Framreiðsla fyrir fullorðna.
Ein rönd af tómasósu sprautað í brauðið, 7 jalapenó bitar settir í brauðið ásamt steiktum lauk, sterku sinnepi sprautað yfir, pulsa lögð í brauð, tómatsósu og sterku sinnepi sprautað yfir. Borðað. Lítil kók í gleri drukkin með beint af stút. Gert aftur. Borðað. Lítil kók í gleri drukkin með beint af stút. Borðhaldi lokið.

Framreiðsla fyrir börn:
Ein rönd af sætu sinnepi sprautað í brauð, pulsa sett í brauð og tómatsósu sprautað yfir. Borðað. Lítil kók í gleri drukkin með beint af stút. Gert aftur. Borðað. Lítil kók í gleri drukkin með beint af stút. Borðhaldi lokið.

Frágangur:
Afgöngum hent í ruslið. Ónotað hráefni sett í ísskápinn. Gler sett í flokkunargrind. Áhöld þvegin upp eða sett í uppþvottavél. Þvegið. Tekið úr uppþvottavél og sett í skápa og skúffur.

E.s. gat ekki laumast í golf vegna anna.

Nr. 2 | posted by: igor | 6.07.2003 | 10:24:06 | [+] |

Ef maður á uppþvottavél þá þarf maður ekki að nota pappadiska.

Ég bara verð að spyrja:

Þó svona survival matur sé skemmtilegur... hvort er skemmtilegra, Lambalæri ala konan þín með brúnuðum kartöflum og alles borið fram á postulínsfati, kertaljós á borðinu og servéttur hjá diskunum, eða pappadiskamáltíð?

Það er kannski bara ég... en mér finnst uppreisnin flott. Það skiptir höfuðmáli að ráða hvenær maður gerir hlutina. smile

Nr. 3 | posted by: anna | 6.07.2003 | 10:52:01 | [+] |

Fáðu þér þitt eigið blogg maður. Þetta er farið að ganga út yfir allan þjófabálk hjá þér[eyebrows]

Nr. 4 | posted by: beggi dot com | 6.07.2003 | 10:52:48 | [+] |

Anna.

Einmitt það sem ég sagði. Uppþvottavél = engir pappadiskar. Ég reiknaði það einu sinni út í fullri alvöru kostnað við að kaupa uppþvottavél og reka á móti því að notast eingöngu við einnota áhöld. Ég gat ekki betur séð en seinni kosturinn kæmi hagkvæmar út. Konan benti mér á að ekki ætti að reikna allt út heldur skiptu aðrir hlutir máli líka. Ég hef heyrt fleiri halda þessu fram.

Og þá komum við að spurningunni þinni. Hvort er skemmtilegra. Well.

Pólitíkst rétta svarið er auðvitað að það sé skemmtilegra eins og þú lýsir þessu. En málið er að ef þú tekur allt ferlið inní dæmið (eldun, át, uppvask) og hugsar málið alveg til enda eins og ég geri alltaf, ok, næstum alltaf, þá er skemmtilegra að hespa þessu bara af með einfaldri máltíð.

En ég neita því ekki að með aldrinum, þessi miðaldra sem þú ert alltaf að minnast á, þá fer tilstandið að verða skemmtilegra og skemmtilegra. Rauðvín og alles.

Takk fyrir stuðninginn anna. Það getur verið einmannalegt að vera byltingarmaður. Sérstaklega þegar konan er ekki heima til að styðja mann.


Beggi dot com.
Ég er með sérstakt leyfi frá önnu til að vera með sérstaklega löng komment sem gætu hugsanlega talist vera blogg. Það er gert til að fóðra hana önnu enda er hún kommentsuga.

Nr. 5 | posted by: igor | 6.07.2003 | 12:10:09 | [+] |

Anna.

Ég er ekki frá því að aldurinn skipti máli en reyndar hefur heilaþvotturinn staðið yfir í nokkra áratugi. Mér fer fram með hverjum tugnum sem líður.

Fyrir mörgum árum reyndi ég við rómantíkina. Bauð konunni heim í kvöldverð og flottheit. Hún settist í einhverskonar rólustól í stofunni. Stóllinn hékk í járnhanka sem var festur við voldugan hring sem var á gólfinu undir stólnum. Ég helli rauðvíni í glös og færi konunni í stólnum. Rek tánna í járnhringinn og helli fullu glasinu yfir konuna. Var lengi að jafna mig á rómantíkinni eftir þetta.

Nr. 6 | posted by: igor | 6.07.2003 | 14:27:30 | [+] |

Igor. Ég held að þú sért klaufi. Ekki það.. að vera klaufi getur líka verið sjarmerandi. happy

Ég missi ennþá niður á mig mat stundum þegar ég borða. Hann bara rennur af gafflinum og á brjóstin á mér eða lærin. Þegar ég var barn sagði mamma mér að eftir því sem ég æfðist við að nota hnífapör myndi ég missa sjaldnar mat niður á mig. Það var alveg rétt hjá henni. Þetta gerist sjaldnar og sjaldnar en mikið vildi ég óska að ég gæti bara hætt þessu alveg.

Nr. 7 | posted by: anna | 6.07.2003 | 15:40:03 | [+] |

Það má nú deila um hvort það er sjarmerandi að hella rauðvíni yfir sína heittelskuðuwink

Ég er heldur ekki viss um að það sé sjarmerandi að missa mat niður á sig þegar maður er að borða. Hefurðu prófað að sitja nær borðinu? Svo má lengi nota smekktoungue

En það er leiðinlegt að borða af pappadiskum, góðan mat borðar maður ekki af þannig. Auk þess er það stórlega orðum aukið að það sé leiðinlegt að vaska upp. Amk ef maður er ekki að vaska upp eftir matarboð þar sem voru tugir matargesta. Ef það að vaska upp væri það leiðinlegasta sem ég lenti í væri enn skemmtilegra að lifa.

Mér finnst svo gaman að búa til mat og borða hann að það er bara minni háttar drawback að það þarf að vaska upp. BTW, þá fellur það að hita pulsur tæpast undir matseld í minni orðabók.[shades]

Nr. 8 | posted by: beggi dot com | 6.07.2003 | 21:40:23 | [+] |

Bindi til skiptanna.

Eins og margar konur er ég alltaf með bindi til skiptanna. Það kemur ekki til af góðu. Ég á nefnilega við sama vandamál og anna að stríða. Missi stundum niður á mig mat. Það er orð á því gerandi ef ég slepp í gegnum heilt matarboð án óhapps. Og venjulega er það bindið sem tekur við. Þess vegna er ég með bindi til skiptanna. Stundum sleppur þó bindið. Það gerðist einmitt í Birmingham á Englandi.

Ég var á leiðinni á fund. Skrái mig inn á hótel rétt utan við borgina. Ægilega fínt hótel. Halda átti fundinn í ráðstefnusal á hótelinu morguninn eftir. Ég fer því snemma að sofa.

Vakna eldsnemma og fer í mitt fínasta púss. Buxur, skjanna hvíta skyrtu og bindi. Jakkinn yfir. Sest við borð í morgunverðarsalnum með Financial Times. Set jakkann á stólbakið. Á næsta borði voru sex konur að borða morgunverð.

Ég stend upp og fer að hlaðborðinu. Raða á diskinn. Beikon. Scrambled eggs. Steiktur tómatur. Sterkt sinnep. Djús í glas. Fer að borðinu aftur og sest niður. Lít í blaðið. Þjóninn hellir kaffi í bollann. Tek upp hníf og gaffal og í því sem ég sting gafflinum á kaf í steikta tómatinn lít ég upp og sé að ein konan lítur yfir að borðinu mínu. Í sama mund sprautast rauður safinn úr tómatinum yfir skyrtuna og myndar glæsilegt rautt mynstur frá brjósti og upp að hálsi. Konan hnígur niður af hlátri og byrjar að lýsa atburðum fyrir vinkonum sínum. Ég stálheppinn aldrei þessu vant því bindið lá skakkt og slapp við bununa. Ég brosi til kvenanna á næsta borði og legg bindið varlega yfir mynstrið. Fer í jakkann og upp á herbergi. Safinn fór aldrei úr skyrtunni þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir með Ariel Ultra.

Var einhver að tala um klaufa?

Nr. 9 | posted by: igor | 6.07.2003 | 22:54:31 | [+] |

Það skiptir engu máli þótt ég sitji alveg við borðið. Ég er bara klaufi Beggi. Ég var vikulegur gestur á slysó sem barn og get t.d. hrasað á jafnsléttu. Segi það ekki, ég hef skánað heilmikið.. en ég rek mig ennþá í og missi hluti á tærnar á mér. Núna síðast BRAUN hitamæli, (þennan fyrir eyrun) beint á eina tánna. Núna er nöglin á þessari tá svört.

Þegar ég fer að spá í það hef ég stórlagast. Ég fór síðast upp á slysó.. jah.. ég man ekki út af hverju það er svo langt síðan...

Ég er kannski að lagast svona með aldrinum?

Nr. 10 | posted by: anna | 6.07.2003 | 23:05:02 | [+] |


recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web