Sunnudagur, 13. júlí 2003
Jæja... þá er það komið á hreint. Ég er orðin hænuhaus. Fór í afmæli í gær og drakk 3 stóra bjóra. Var á perunni. Dreif mig heim klukkan hálf ellefu og langaði að draga barnapíuna á tálar. Oh well... ég er allavega ekki timbruð.
Dreymdi furðulegan draum, eins og næstum alltaf þegar ég finn á mér þegar ég fer að sofa. Var að versla í Nóatúni. Verslaði m.a. pizzu. Á kassanum tók miðaldra kassadaman upp sokk og þurrkaði af pizzunni. Ég trompaðist og tók af henni sokkinn. Allt í einu var Nóatún orðið frontur fyrir alþjóðleg glæpasamtök sem eru að smygla varalitum út um allan heim. Ég er komin með ruthless Nóatúns-glæpamenn á eftir mér sem ætla að koma mér í fangelsi fyrir að stela sokk frá þeim...
Ó.. í gær keypti ég mér líka gæludýr. Ég keypti mér eðlu. Hún er auðvitað ekki lifandi en hún er úr plasti sem auðvelt er að þrífa og það er hægt að opna hana á maganum og fylla af vatni svo hún sé stöðug. Ég held að þetta sé "hann" og skýrði hann Elías. Jóhönnu finnst það asnalegt nafn á eðlu en ég er ekki sammála. Þegar ég eignast digital myndavél birti ég mynd af Elíasi á síðunni minni. Hann býr upp á skjánum mínum hjá Cheshire Cat og Meowth.