www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
detox
Laugardagur, 19. júlí 2003

Annars er það í fréttum af mér að ég ætla í detox um helgina. Það er m.a. þessvegna sem ég er búin að keðjureykja í kvöld.. til að ég komi ekki til með að eiga neinar sígarettur þegar ég vakna við nikótín ákall heilabúsins í fyrramálið. Ég hef ákveðið að gera eins og alkarnir nema ég ætla ekki að taka einn dag í einu. Ég ætla að taka einn klukkutíma í einu. Alltaf þegar mig langar í sígarettu ætla ég að fresta því um einn klukkutíma og ef ég get þraukað þennan eina klukkutíma get ég kannski þraukað annan. Ég ætla að byrja að naga neglurnar til að auka líkurnar á árangri. Er búin að safna birgðum sem ættu að endast út fyrstu vikuna, en hún er lang erfiðust.

Ég er búin að hringja í alla ættingja, ekkert á döfinni, engin dauðsföll yfirvofandi svo ég fæ vonandi ekki einhverjar hræðilegar fréttir fyrstu vikurnar í detoxinu sem verða til þess að ég fell og leita á náðir nikótínsins aftur.

Ég er búin með allt kók sem ég fann í íbúðinni (já ég var byrjuð að drekka það aftur) líka það sem ég var búin að fela í klósettkassanum (helst rosalega kalt þar) og reykti novelty emergency sígarettuna mína sem ég fékk að gjöf þegar ég var 16 ára. Það var rosalega vond sígaretta.

Það sem fékk mig til að ákveða þetta detox mitt var kaffibolli sem ég drakk í morgun. Af einhverjum ástæðum var ég búin að gleyma að þegar ég drekk kaffi svimar mig, brenni á mér tunguna, fæ hausverk, skelf öll og fer að svitna ógurlega. Ég hætti að sjá í fókus og missi hæfni til að keyra bíl. Ég er með einskonar kaffi óþol.

Þegar ég sat heima hjá mér seinnipartinn og skalf öll með sígarettu í munnvikinu - húkandi á stól inní eldhúsi í góða veðrinu fékk ég vitrun. Fyrir utan heyrði ég mann öskra: "þú ert nú meiri auminginn" og tók það strax til mín. Það rann upp fyrir mér ljós. Ég verð búin að drepa mig á kaffiþambi og reykingum fyrir 35 með þessu áframhaldi. Já, svo fylgir þessu paranoia líka. Ég þorði ekki að sitja úti á svölum því ég var viss um að einhver væri að reyna að skjóta mig.

Það er sem sagt ekkert kók, ekkert kaffi, ekkert appelsín, engin sykur for that matter, engar sígarettur og ekkert annað - gott.

Ef þetta er ekki tilefni til að fara í bað... þá veit ég ekki hvað.


| anna | 0:40 |
comments

Sleppa kaffinu ?

Ertu viss um að þú getir lokað á mocca eða snúið baki við javanu, þolirðu pressuna án espresso, eru hlutirnir ekki léttari með latte ? verður varið í þetta án Kaffi Super Crema ? nú, eða cappuccino, þú verður svekktari án swiss mocca er það ekki ?

Ég trúi ekki að þetta sé að fara að gerast, hvað næst ? Ómar Ragnarsson leggur frá sér farsímann ?

Guð verði með þér á þessari þrautagöngu, þetta verður ekki létt !

Nr. 1 | posted by: dorinn | 19.07.2003 | 0:56:18 | [+] |

Hmm. Heldurðu að þetta séu ekki of drastískar aðgerðir. Að hætta á öllum helstu eiturtegundunum -- sykri, koffíni, nikótíni og appelsíni-- í einu? May the force be with you smile

Nr. 2 | posted by: beggi dot com | 19.07.2003 | 0:59:42 | [+] |

Ég mæli með lakkrísreimum. Appolo venjulegar. Ekki fylltar. Ók einu sinni til Keflavíkur og til baka til að kaupa lakkrísreimar. Það var þegar aðeins BSÍ var opið eftir miðnætti og þeir seldu ekki lakkrísreimar heldur sviðahausa.

Mæli reyndar líka með lítill kók í gleri. Kaffi. Sykri. Rauðvíni.
Mæli ekki með Appelsíni og sígarettum.

Nr. 3 | posted by: igor | 19.07.2003 | 1:03:04 | [+] |

Ég verð ómöguleg í 48 klukkutíma, svo fer ég í einskonar heiladautt mode.. stari út í tómið í ca 12 tíma. Svo sef ég í aðra tólf tíma, fer í bað.. og þá er þetta komið. Clean Anna. Anna Clean. Ljótt eftirnafn maður!

Nr. 4 | posted by: anna | 19.07.2003 | 1:03:58 | [+] |

Hvað með:

blank, bright, cleansed, clear, delicate, dirtless, elegant, faultless, flawless, fresh, graceful, neat, pure, sanitary, shining, snowy, sparkling, speckless, spotless, squeaky, stainless, taintless, tidy, trim, unblemished, unpolluted, unsmudged, unsoiled, unspotted, unstained, unsullied, untarnished, washed, well-kept, white, blameless, decent, exemplary, faultless, good, guiltless, honorable, inculpable, innocent, modest, moral, respectable, sinless, undefiled, unguilty, unsullied, upright, virtuous, wholesome

Svo dæmi séu nefndtoungue

Nr. 5 | posted by: beggi dot com | 19.07.2003 | 1:08:43 | [+] |

Ég verð taugaveikluð af lakkrís, ofvirk af gler-kóki, dysfunctional af kaffi og fæ hausverk OG ógleði af rauðvíni.

Ég væri dauð ef gamla mottóið "survival of the fittest" væri í fullu gildi. Hefði drepist árið 2000 úr innanmeini (var það ekki orðið sem þeir notuðu í gamla daga?). Það er magnað.

Nr. 6 | posted by: anna | 19.07.2003 | 1:09:09 | [+] |

Anna Moral finnst mér flott.. Moral er svo líkt Moran.. sem er aftur of líkt Moron.. en ég fílaði Bob Moran í den.

Anna Upright er snilld, Anna Innocent hefur líka ring to it.. Anna Blank gefur of mikið til kynna, eins og Anna Squeaky.. Anna Tidy.. nee.. ekki flott. Ég vil bara vera Anna Helgadóttir áfram. Og Fanney betur.

Nr. 7 | posted by: anna | 19.07.2003 | 1:12:42 | [+] |

Fanney gefur náttúrulega til kynna þetta með hreinleikan. Ekkert er hreinna en nýfallin fönnhappy

Nr. 8 | posted by: beggi dot com | 19.07.2003 | 1:16:40 | [+] |

Þú ert erfið en ég mæli með þessu.

Mánudaga til fimmtudaga:
Cappuchino kl. 07:30 og svo venjulegt kaffi á 30 mínútna fresti til hádegis. Þá lítil kók í gleri. Síðan kaffi á 30 mínútna fresti til kl. 19:00. Eftir það vatn, kók, bjór, rauðvín eða hvítvín.

Föstudaga:
Cappuchino kl. 07:00, kaffi úr vél með vínarbrauði kl. 07:30 og svo venjulegt kaffi á 30 mínútna fresti til hádegis. Þá lítil kók í gleri. Síðan kaffi á 30 mínútna fresti til kl. 19:00. Eftir það vatn, kók, bjór, rauðvín eða hvítvín.

Helgar:
Kaffi úr vél kl. 07:30 og síðan vel sterkt heimalagað kaffi ala igor um kl. 10:00. Hádegið vatn eða kók. Síðan vel sterkt heimalagað kaffi ala igor um kl. 15:00. Eftir það vatn, kók, bjór, rauðvín eða hvítvín.

Þetta mun halda þér síkvikri allan daginn og rauðvínið mun síðan sljóvga þig um kvöldið þangað til þú dettur á koddann.

Nr. 9 | posted by: igor | 19.07.2003 | 1:25:27 | [+] |

Ég held að Igor sé að reyna að drepa mig. En það gæti verið kaffi paranoian...

Nr. 10 | posted by: anna | 19.07.2003 | 1:57:37 | [+] |

Ég er ekki viss um að það sé bara hún

Nr. 11 | posted by: beggi dot com | 19.07.2003 | 8:02:18 | [+] |

Hvað ætlarðu að leggja þetta á þig lengi? Slurp. (Ég er einmitt að drekka fyrsta kaffibolla laugardagsins og ég finn að þeir eiga eftir að vera margir í dag).Þú átt samúð mína. Slurp. Svo keypti ég mér trítla í Bónus áðan. Kjamms.wink

Nr. 12 | posted by: Tóta P. | 19.07.2003 | 12:47:31 | [+] |

Planið er að halda þetta út indefinately. En það hefur svosem ekkert plan virkað hingað til hjá mér.

Btw, mér finnst kaffi actually vont og trítlar verri. Sýg yfirleitt af þeim súkkulaðið og spýti þeim svo í ruslið. smile

Er búið að opna í Bónus?

Nr. 13 | posted by: anna | 19.07.2003 | 12:54:07 | [+] |

Mér finnst allt í lagi að reykja vindill við og við, óþarfi að yfirgera öllu með boði og bönnum. Nú, einn góðan eða slæman veðurdag, deyjum við öll, og eftir því sem ég best veit, úr einhverju. Það er ekki lengd lifsins sem þetta snýst um fyrir mig, meira innihaldið frá A-Ö. Hins vegar tek ég yfirleitt tillit til aðstæðna og umhverfis þegar ég púa þetta. Það hefur breyst soldið viðhorfið til reykinga undanfarinn ár, það er stundum litið á mann eins og maður sé með berkla eða AIDS, en almenningsálitið er nú einu sini eins og vindhani.

Nr. 14 | posted by: Refurinn Loki | 19.07.2003 | 14:35:59 | [+] |

Mér hefur fundist litið á reykingafólk meira eins og holdsveikisjúklinga.

Ég er alveg sammála þér, maður á að njóta lífsins frá A-Ö og drepast svo úr einhverju. Preferrebly villtu kynlífi á tíræðisaldri.

Ég hélt einu sinni að ég myndi bara fíla það að láta taka úr mér lungun og fá súrefniskút. Sá fyrir mér að ég myndi sitja í hjólastól á Vífilstöðum og gefa hinum vistmönnunum miðfingurinn öðru hverju og tauta: "fuck it, aumingjar..."

Mottóið mitt var: "fuck it", en það er ekki mottóið mitt lengur.
Nýja mottóið mitt er: "never, ever give up!".

Nr. 15 | posted by: anna | 19.07.2003 | 15:29:37 | [+] |

Nú, þegar ég reyndi að hætta 100%, kastaði ég mér bara yfir eitthvað annað og þandist út eins og Michelinmaðurinn. Mitt nánasta umhverfi varð líka þreytt á mér, maður var svo fúll og uppstökkur að það var engu lagi líkt. En auðvitað er þetta veikleiki og sjálfsagt skortur á karakter að geta illa án tóbaks verið. Jú, jú ég hef verið upp á Vífilstöðum einhvern tíma í den. En margt af þessu fólki var stórreykingamenn, sem kveikti í þeirri næstu um leið og það slökkti í þeirri síðustu. En auðvitað væri best að hætta þessu alveg, eins og þú. Flott hjá þér.

Nr. 16 | posted by: Refurinn Loki | 19.07.2003 | 16:01:15 | [+] |

Þar síðast þegar ég hætti fór ég að borða nammi af mikilli ástríðu. Þyngdist um 9 kg en var rosalega hress. Mér ofbauð þetta gjörsamlega og hætti að borða nammi. Léttist um 9 kg og byrjaði þá aftur að reykja.

Tölur frá árinu 2000 segja að 1 af hverjum fjórum ísl. drepst af slysförum, 2 af hverjum fjórum úr elli og 1 af hverjum fjórum úr reykingum. Ég er klaufi svo ég vil minnka líkurnar allavega um reykingarnar. Ég vil drepast úr elli. Eða villtu kynlífi á elliárum. Eða jafnvel óverdósa á mozart kúlum. Ég er samt hjartanlega sammála Woody Allen þegar hann sagði: "I'm not afraid to die.. I just don't want to be there when it happens".

Nr. 17 | posted by: anna | 19.07.2003 | 21:43:45 | [+] |


recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web