Mánudagur, 21. júlí 2003
Ég hálf skammast mín fyrir að hafa valsað um jörðina öll þessi ár, án þess að gera mér grein fyrir að það væri svona auðvelt að hita upp grjónagraut í örbylgjuofni. Oh well... ég veit það núna.
Mig dreymdi tóma steypu í nótt sem involveraði m.a. tannlækninn minn. Hann var að þrífa tannlæknastofuna á meðan ég og fleiri viðskiptavinir biðum... eftir hverju við vorum að bíða veit ég ekki því þegar hann var búin að þrífa (sópaði m.a. sígarettustubbum út af stofunni!!) fór hann. Heim til sín líklega. Ég ætla ekki að fara nánar út í hvað gerðist næst.. nema ég get sagt að keðjureykjandi hafnarverkamaður, steypurenna, kringlumýrabrautin og gúmmístígvél komu við sögu.
Í morgun hugsaði ég um hvað mig langaði í sígarettu áður en ég náði meðvitund. -Auk þess sem allar persónurnar í draumnum mínum í nótt voru keðjureykingamenn. Nema ég og tannlæknirinn. Áhugavert.
Þegar ég hinsvegar náði meðvitund áttaði ég mig á því að ég hef handleggi. Þ.e. vöðva á handleggjunum. Það mun vera sundið í gær.
Í morgun fékk ég mér banana, heilsutvennu, zyban og vatn í morgunmat.
Mér líður eins og vofu og hegða mér eins. Líð um íbúðina og smýg í gegnum veggi og hurðir. Nei.. sit meira og stari út í loftið.