www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
Dagur 2
Sunnudagur, 20. júlí 2003

Ég vaknaði snemma í morgun. Snemma miðað við að það er sunnudagur.
-Held ég.

Ég vaknaði klukkan korter í níu, af martröð, og langaði ekki í neitt meira en sígarettu. Ég lá í rúminu til klukkan korter í tíu og hugsaði. Aðallega um hvað mig langaði mikið í sígarettu. Ekki í nammi, ekki í kók... bara sígarettu. Bara eina. Yeah right. Ég hugsaði um hvort ég ætti kannski eina sígarettu einhverstaðar í íbúðinni og hvort ég gæti fundið hana. Kannski er eitthvað undir sófa... í jakkavasa á gömlum jakka inní skáp...

Pathetic.

Þetta er ekki í fyrsta sinn sem ég hugsa svona en líklega í fyrsta sinn sem ég sleppi því að rústa íbúðinni í leit af fíkniefninu mínu.

Þegar ég fór á fætur fékk ég mér morgunmat. Epli og ávaxtasafa. Heilsutvennu. Zyban. Ég er með hausverk.

Kannski.. ef ég skrifa niður og held utanum hversu pathetic ég er... hjálpar það mér þegar ég er um það bil að falla. Hver vill vera svona?

Ég spái því að morgundagurinn verði verri. Ég er samt í ótrúlega góðu skapi í dag. Er að hlusta á Miles Davis og John Coltrane. Ætla í sund á eftir með krökkunum og svo jafnvel eitthvað í heimsókn. Á reyklaust heimili hehehe

Veit einhver hvenær er eðlilegt að byrja að hósta upp drullu og skít þegar maður hættir að reykja?


| anna | 10:31 |
comments


recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web