www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
Dagur 1.02
Laugardagur, 19. júlí 2003

Ef Anna ætti páfagauk

Jebb... ég var reyklaus til klukkan þrjú. Þá komu sígarettur í heimsókn. Klukkutíma seinna var ég fallin. Ég er samt ekki búin að kaupa mér pakka, svo afneitunin í mér segir að ég sé ekki fallin. Meira.. fallin í freistni - gestafreistni.

Ég gat bara borðað tvo bita af súkkulaðinu í morgun, gaf krökkunum restina. Ég er ekki alslæm. Fékk mér samt kókglas áðan í heimsókn hjá fleiri sígarettum. Sjís.. er samt ekki búin að kaupa mér kók. Held að ég þurfi að loka mig inni fyrstu dagana í detox... setja símsvaran á... setja dánartilkynningu í moggann...


| anna | 21:16 |
comments

Þetta hefst allt hjá þér smile
Passaðu þig bara að koma ekki í heimsókn til mín á næstunni á meðan þú ert að afeitrast, Valdi er vís með að kaupa fjöldann allan af sígarettum handa þér í þeirri von að þú stoppir aðeins lengur. Hér er heldur ekki gott að vera ætli maður að hætta að drekka kók [eyebrows]
Við verðum að finna út úr þessu.
Tillaga: Southern Comfort dry toungue

Nr. 1 | posted by: Harpa | 19.07.2003 | 23:40:51 | [+] |

Manstu hvernig gæinn í Trainspotting bjó sig undir heróínafeitrunina? Fullt af drasli, ein fata undir saur, önnur undir ælu og svo negldi hann fyrir hurðina. Kannski er þetta eitthvað fyrir yður?

Nr. 2 | posted by: Tóta P. | 20.07.2003 | 9:23:50 | [+] |

Nei, það er ekki fyrir mig. Það er ekkert í Trainspotting fyrir mig. smile

Mér fannst Trainspotting ógeðsleg mynd sem mig langar ekki að sjá aftur og verð að viðurkenna að ég man ekki eftir þessu atriði. Atriðið sem ég hinsvegar hef reynt að gleyma er þegar barnið lá dáið í vöggunni, uppþornað minnir mig. Það fer ekki.

Mér fannst Trainspotting líka senda þau skilaboð (ef ég man rétt) að þú "getur" dópað og farið "næstum" alla leið til helvítis.. en náð þér eins auðveldlega upp og "gæinn" gerði í Trainspotting. Labbað svo sæl/l og kát/ur, clean, og talið upp í huganum allt sem sjúkum alkóhólistum og þunglyndum antihetjudýrkendum finnst "smáborgaralegt". Hefði ég gert þessa mynd hefði "gæinn" drepist í endann í eigin ælu, hlandi og saur. Eins og þeir gera flestir þessir ógæfumenn.

Má ég þá biðja um Requiem for a Dream.

Nr. 3 | posted by: anna | 20.07.2003 | 10:16:44 | [+] |


recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web