www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
Dagur 1
Laugardagur, 19. júlí 2003

Aðeins þremur mínútum eftir að ég vaknaði mundi ég eftir detoxinu mínu og furðulegt nokk... mig langaði eiginlega ekkert í sígarettu.

Það er ekkert að marka það, ég er ennþá determined, minningin um kaffið í gær ennþá fersk. Hún dvínar.

Ég fékk mér hinsvegar nikótíntyggjó, heilsutvennu, zyban, AB-mjólk og vatn í morgunmat. Það var eitt sem ég gleymdi að hugsa fyrir... ég gleymdi að kaupa mér birgðir af silfur extra í gær. Ég mun bæta úr því í Bónus í dag. Þar kostar pokinn 95 krónur en í 10-11 og Nóatúni 125 kr. Ég tygg svo mikið tyggjó fyrstu vikurnar í detoxi að ég hef ekki efni á að kaupa það annarstaðar en í Bónus.

Mitt síðasta verk í gærkvöldi, áður en ég fór að sofa, var að skrifa blogg þar sem ég lýsi því yfir að ég hafi verið í andlegu ójafnvægi þegar ég hét því að hætta öllu sem er vont fyrir mig. Ætlaði að birta það eftir morgunferðina á bensínstöðina en.. nú lítur út fyrir að ég muni ekki fara þá ferð. Þ.e. ef ég gefst ekki upp fyrir kók-hausverknum sem ég er með. Kannsi ég fái mér parkódín bara. Eeeeh... sjáum hvort ég þrauki þetta ekki.


| anna | 11:02 |
comments


recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web