Laugardagur, 05. júlí 2003
Ég ætlaði að vera með country þema næstu vikur í song of the week og er orðin svo blá af því að hlusta á öll þau ömurlegu örlög sem sungið er um í þessum lögum að ég leitaði skjóls í Dirty Diana. Hinu laginu sem Elton John hafði fyrir að frumsemja fyrir Díönu.
Neee Elton fór bara í endurvinnsluna fyrir hana og ég er auðvitað að tala um lagið hans Michael Jackson. Ég á lagið bæði með söng og án. Hlusta oftar á það án. Gítarinn er að gera eitthvað fyrir mig í þessu lagi. Enda miðaldra maður sem spilar á hann. hehe Á meðan ég dansaði í stólnum að reyna að hrista af mér country doðann fór ég að hugsa um nágrannana í næstu blokk. Ég er með room with a view og það gæti sést til mín í stólnum með headphones headbanging og takandi luftguitar þegar ég er komin upp á stól.
Þess á milli geta nágrannar mínir fylgst með mér þar sem ég eigra aimlessly um íbúðina og naga neglurnar.
Djöfullinn. Working for the weekend virkar ennþá. Ótrúlegt... Þið sem eruð búin að sjá Angels... boy þekkti ég mig sem Helen í bílnum hjá O'Grady. UNBEFUCKINGBELIEVABLE -nema mitt date drap engan...