Laugardagur, 05. júlí 2003
Full Throttle
Magnað ævintýri kryddað með hillarious parodíu. Ég held mest upp á Cameron Diaz af þeim. Hún þorir að vera hallærisleg.
Annars er tónlistin í myndinni, klæðnaðurinn og make-up-ið snilld og þrykkir manni aftur um tuttugu ár. Plottið er þunnt, sagan engin en það skiptir bara engu máli. Eini maðurinn sem mér fannst out of place var John Cleese. Maðurinn er bara orðinn of gamall. Langt frá því að vera miðaldra. Meira gamalmenni.
Maður getur eiginlega ekki sagt skoðun sína á þessari mynd án þess að minnast á Demi Moore, sem er orðin eins og Terminator með skorinn líkama og sílíkon brjóst. Úff.. ef þetta er það sem karlmenn vilja then God help us all (konum um víða veröld). Að horfa á Demi í bikiníatriðinu minnti mig á forsíðu á einhverju kven-líkamsræktarblaði sem ég sá um daginn á tannlæknastofunni. Maður sér í vöðva á konunni sem maður vissi ekki að væru til á konum! Ljótt. En mikið djöfull er hún flott í fötum!
Það er nokkuð ljóst að ljósu strípurnar verða að fara...