www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
Bein í nefinu?
Mánudagur, 21. júlí 2003

Ég reis upp við blogg áðan. Já.. ég hafði byrjað að skrifa blogg þegar ég lognaðist út af og sofnaði fram á lyklaborðið. Nefið á mér hefur lent á "h" því þegar ég reis upp þá var ég búin að skrifa færsluna endalausu sem inniheldur einungis stafin "h". Vissi ekki að ég gæti skrifað með nefinu.


| anna | 18:35 |
comments

Þú hefur kannski fréttanef ?

Allaveganna með bein í nefinu til að blogga með !

Nr. 1 | posted by: dorinn | 21.07.2003 | 20:55:16 | [+] |

Þetta er ekki einsdæmi. Sonur minn var að segja mér frá manni sem vaknaði upp við að hafa skrifað 1973 síður af l á tölvuna. Og fullyrðir að hann hafi eytt því öllu aftur með því að ýta á backspace, þó líklega með fingrinum en ekki nefinu.

Nr. 2 | posted by: Nanna | 21.07.2003 | 21:12:47 | [+] |

Ég trúi þér ekki! Ég valdi nú bara "select all" og svo delete. Maður hefur svo miklu meiri möguleika ef maður notar puttana. Svo ég tali nú ekki um heilann!! smile

Nr. 3 | posted by: anna | 21.07.2003 | 21:28:26 | [+] |

En heilinn er kannski ekki alveg í sambandi þegar menn hrökkva upp um miðja nótt eftir að hafa sofnað fram á lyklaborðið ... oogle. Veit heldur ekki alveg hvernig ástand mannsins (og heilans) var þegar hann lognaðist út af.

Nr. 4 | posted by: Nanna | 21.07.2003 | 23:36:02 | [+] |

Nei ég veit. Ég reiknaði líka með því að hann hefði verið hálf ringlaður. smile

Annars virkar heilinn í mér stundum ekki þó ég sé vakandi. Einu sinni kallaði ég í kerfisstjórann minn vegna þess ég gat ekki loggað mig inn á vélina mína. Kom í ljós að ég hafði ýtt á Caps Lock.. Maður á náttúrlega ekki að segja frá þessu... embarassed

Nr. 5 | posted by: anna | 21.07.2003 | 23:44:19 | [+] |

Anna, þessu áttu nú bara að halda fyrir þig toungue
Ekki dettur mér í hug að segja nokkrum manni frá því að heilinn í mér virki "bara" stundum. Það á enginn eftir að komast að þessu litla leyndarmáli mínu embarassed nema ÞÚ kjaftir frá![eyebrows]

Nr. 6 | posted by: Harpa | 22.07.2003 | 0:14:09 | [+] |

Ég er alveg á móti þessu centerdæmi með fyrirsagnirnar hæed ég, sjá fyrri fræslu....................

Nr. 7 | posted by: beggi dot com | 22.07.2003 | 0:21:42 | [+] |

Æi ég er að breyta. When in doubt: refresh!

Nr. 8 | posted by: anna | 22.07.2003 | 0:22:15 | [+] |

Harpa. Ég lofa með tíu fingur upp til Guðs.. ég segi engum angel

Nr. 9 | posted by: anna | 22.07.2003 | 0:23:08 | [+] |

Flottir nýju smælingjarnir nerdy

Nr. 10 | posted by: Harpa | 22.07.2003 | 10:45:50 | [+] |

Takk colgate

Nr. 11 | posted by: anna | 22.07.2003 | 11:07:04 | [+] |


recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web