Miðvikudagur, 30. júlí 2003
Mig dreymdi furðulegan draum í nótt. Ég var í háskóla að læra verkfræði (held ég) og þegar ég var að skrifa komment á eitthvað blogg í herberginu mínu á vistinni kom strákur og bað mig að hjálpa sér.
Hann, og allir vinir hans, voru að reyna að pressa appelsínur en það gekk ekki hjá þeim vegna þess að pressan var biluð. Ég skildi ekki af hverju þeir vildu að ég hjálpaði þeim en fór á staðinn og með frisbee disk gat ég lagað pressuna. (það sem var að.. var að pressan fór ekki nógu langt niður og ég nenni ekki að útskýra hvernig hún leit út eða virkaði.. allavega virkaði að hækka neðra borðið með fisbee disk) Þegar ég var búin að laga pressuna fyrir þá fór ég að borða appelsínubörk.
Ég fór aftur í herbergið mitt, las kommentið og það var ekki eitt einasta orð rétt stafsett.
Ástæðan fyrir því að ég bjó á heimavistinni var sú að pabbi hafði tekið að sér tígrisdýr og ég þurfti að flytja að heiman...