Mánudagur, 28. júlí 2003
Ég er búin að hengslast heimahjá mér í hvítri skyrtu einni fata nánast alla helgina fyrir utan eitt matarboð sem ég þáði og fór fullklædd í. Engin hefur boðist til að gefa mér nýja þvottavél og æðri máttur er out. Það er bara svona einfalt... í nútíma þjóðfélagi þarf að sýna fram á constant competence.. æðri máttur er engin undantekning.
Ég ætlaði að leggjast *aðeins* upp í rúm og hvíla mig *smá* um sjöleytið í gær.. gerði það.. sofnaði.. vaknaði eftir miðnætti. Lagðist í vídeógláp í hvítu skyrtunni.
Andleysi herjar á mig.