Fimmtudagur, 10. júlí 2003
Ég setti reglu um daginn og skrifaði hana niður og hengdi upp á vegg. Doddi sagði mér að þetta væri ekki "alvöru" regla nema hún væri skrifuð niður og hengd upp á vegg. Reglan hljóðar svona:
"Það er bannað að öskra og grenja þegar maður spilar tölvuleiki."
Ég setti regluna því þegar börnin mín eru orðin spennt við að leika sér eiga þau til að verða rosalega pirruð og reið og þá vil ég að þau slökkvi og fari að gera eitthvað annað. Þessi regla hefur gefist rosalega vel.
Nú er ég yfirleitt ubercool þegar ég spila tölvuleiki og hef haldið því fram að það þurfi ekki að vera með óhemjuskap þegar maður er að spila. Þetta var áður en ég fór að spila Sly Racoon.
Við krakkarnir skiptumst á að spila, hver og einn á sinn leik save-aðann og í gær fór ég í borð sem var rosalega erfitt. Ég var í keppni við einhverja helvítis hraunsnigla sem borðuðu tölvur og ég átti að ná upp í 60 tölvur á undan þeim.
Ég tók þrjár atrennur og í þeirri síðustu var ég gjörsamlega að fara á límingunum og þegar helvítis sniglarnir náðu 60 þá var ég með 58. Ég stóð upp, henti joy-stick-inu í sófann og öskraði: "OH COME ON! FOR FUCK SAKE! FIMMTÍU OG FOKKING ÁTTA! ÉG TRÚI ÞESSU EKKI!!!!"
Þá heyrðist í Dodda: "mamma, ef þú ætlar að vera með svona læti verðum við að slökkva á tölvunni".
Touche!