www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
Á vegum úti
Laugardagur, 12. júlí 2003

Síðast þegar ég fór út úr bænum tók ég Harrý og Heimir með mér á geisladiskum og það reddaði ferðinni gjörsamlega. Ég var reyndar nærri búin að keyra útaf í verstu hlátursköstunum en náði að hemja mig áður en illa fór.

Ég hef líka prufað að fara með barnalög ýmiskonar til að hafa ofanaf fyrir krökkunum á leiðinni en það er alveg rosalega leiðigjarnt og þegar ég var búin að hlusta á Maístjörnuna, flutta af einhverjum depressing barnakór, í fimmta skipti var ég næstum því búin að keyra viljandi út í skurð og enda þetta bara. Tek það lag ekki aftur í fríið. Ég hef aldrei heyrt eins depressing lag og Maístjörnuna og skil ekki af hverju börnum á leikskólum er kennt að syngja það. Má ég þá frekar biðja um Sól, sól skín á mig!

Einhverjir foreldrar hafa tekið Felix og Gunna með í ferðalagið en börnin mín vita ekki hverjir það eru svo þau hafa aldrei beðið mig um það.

Af öllu því efni sem hægt er að taka með sér til að stytta keyrsluna í fríið eru Harrý og Heimir lang bestir því það má hlusta á þá aftur og aftur og aftur... og... krakkarnir veltast um af hlátri ekkert síður en þeir fullorðnu.

Það er reyndar soldið erfitt að útskýra:

Heimir: Harrý... ég var að spöklera...
Harrý: Já
Heimir: ég var að velta því fyrir mér hvort að
Harrý: Já Harrý... út með það!
Heimir: Nú allt í lagi
Harrý: Nei ekki þetta Heimir, inn með það aftur!
Harrý: Það er svo erfitt að gera þér til hæfis Harrý...

-fyrir þeim.. en samt ekki.

Ég hef það eftir áræðanlegum heimildum að það taki okkur ca 4 tíma að keyra í Vatnsdal og ég spái því að okkur eigi ekki eftir að leiðast á leiðinni.


| anna | 8:30 |
comments

Já, en Maístjarnan er svo falleg.

Nr. 1 | posted by: beggi dot com | 12.07.2003 | 8:46:51 | [+] |

Harry og Heimir eru hrein snilld.

Nr. 2 | posted by: igor | 12.07.2003 | 8:48:09 | [+] |

Þetta gæti verið eigingirni en ég hef áhyggjur af þessu fríi þínu. Það gæti þýtt það að anna.is yrði ekki uppfærð reglulega og bloggsugan fengi ekki nægju sína. Ég hélt þetta væri svona 24/7 vefur. Verður þú kannski með neyðarvakt fyrir bloggsugur sem eru að verða næringarskorti að bráð?

Nr. 3 | posted by: igor | 12.07.2003 | 8:53:53 | [+] |

Ég hugsaði þetta betur og þetta er eigingirni. En spurningin stendur.

Nr. 4 | posted by: igor | 12.07.2003 | 8:55:18 | [+] |

Ég er að fara á mikið menningarheimili í Vatnsdalnum sem býður bæði upp á PS2 og nettengingu. Ég mun örugglega uppfæra vefinn reglulega og segja frá ævintýrum mínum í sveitinni! happy

Beggi, ég vona að þú sért að djóka. Maístjarnan er bönnuð á geðdeildum þar sem hún er óvinur þunglynda mannsins...

Nr. 5 | posted by: anna | 12.07.2003 | 9:05:18 | [+] |

Ekkert veit ég um það enda ekki þunglyndur, heldur fremur léttlyndur. Einn vinur minn heldur því til dæmis fram að það sé ekki hægt að móðga mig.laughing

Nr. 6 | posted by: beggi dot com | 12.07.2003 | 9:19:45 | [+] |

Ég lofa að hleypa Önnu í tölvuna mína eins oft of hún kærir sig um [biggrin]. Spurning samt hvort hún hætti ekki að sækjast í tölvuna þegar hún sér hversu hæg- og brokkgeng hún er.

Annars erum við Anna með snilldarplott í gangi. Hún ætlar að koma með einhvern svaka flottan PC leik með sér sem við ætlum að gera kallinn minn húkkt á. Hann er þó það stór að hann ætti að frysta tölvutraktorinn minn hæfilega mikið og oft til að hann sjái sér ekki annað fært en að fjárfesta í nýrri tölvu, fyrr en síðar! toungue

Nr. 7 | posted by: Harpa | 12.07.2003 | 11:10:59 | [+] |

Maístjarnan er hrikalega falleg, en kannski ekki það mest hressandi sem hægt er að hlusta á á löngu ferðalagi smile

Nr. 8 | posted by: Harpa | 12.07.2003 | 11:15:33 | [+] |

Falleg en ekki fyrir þunglynda.

Ekki hægt að móðga þig? Sárnar þér aldrei? Verður þú aldrei svekktur? Það er skrítið. Getur það verið.. ég meina.. heldurðu kannski... að þú sért... geimvera? toungue

Ég er yfirleitt frekar ánægð, en það er alveg hægt að móðga mig og særa og svekkja. silent

Nr. 9 | posted by: anna | 12.07.2003 | 13:16:27 | [+] |

Getur vel verið að ég sé tregur og eigi gott með að misskilja en hver ykkar var með upptöku af Harry og Heimi að syngja Maístjörnuna ?

Nr. 10 | posted by: Dorinn | 12.07.2003 | 14:00:42 | [+] |

Hmmmm, eftir tveggja daga ferðalag til Kanada, með Papana í farteskinu, er ég um það bil að verða heimsfræg, fyrir traustan tónlistarsmekk, fyrir okkur Islendingana hér í St.John´s... get hiklaust mælt með nýja diskinum, ekki síst fyrir blessuð barnabörnin.. Já Anna mín, maður er hvergi óhultur fyrir foreldrum sínum, jafnvel á langferðum til Kanada nær maður að bögga börnin sín, sem eru reyndar engin börn lengur, heldur að nálgast miðjan aldur óðfluga eða eins og óð fluga.... Bið að heilsa í Vatnsdalinn! Var Vatnsenda-Rósa ekki uppalin þar?

Nr. 11 | posted by: mamma | 12.07.2003 | 14:36:01 | [+] |

Múttan er lúnkin, kemur með það án þess að segja það....

....ef eitthvað er gott að hafa á spilaranum á leið út á land þá er það vísur Vatnsenda-Rósu.

....en það nennir eflaust enginn að hlusta á það afþví að það er íslenskt, þyrfti að vera á ensku, t.d. SoggyBottom-Rose

Nr. 12 | posted by: Dorinn | 12.07.2003 | 14:46:45 | [+] |

hefðirðu sagt þessa línu 17 árum fyrr og það um verslunarmannahelgi
"Hey mamma! Hvar eru útilegugræjurnar sem þú ætlaðir að lána mér í ferðalagið? Ah.. bara að stríða.. ég þarf ekki tjald lengur"

Þá hefði mútter leigt þotu til að komast heim strax.....

.....skrítið hvað margt breytist með tímanum.

Nr. 13 | posted by: Dorinn | 12.07.2003 | 15:12:44 | [+] |

En þar sem ég hef ekki farið út úr bænum um verslunarmannahelgi frá því ég var 14 ára og hef aldrei farið á útihátíðir af neinu tagi held ég að þetta dæmi sé unrealistic.

You see... þegar ég varð 15 ára neitaði ég að fara út úr bænum með mömmu og pabba og hef verið í bænum um verslunarmannahelgi síðan. Því miður er orðið allt of algengt að fólk haldi sig í bænum þessa helgi, í den var þetta dásamlegt. Borgin tóm og göturnar auðar. Ekki lögga in sight. Þá var gaman að vera með bílpróf.

Nr. 14 | posted by: anna | 12.07.2003 | 15:19:25 | [+] |

Já.. ég verð stundum líka svekkt yfir eigin heimsku og það er eigin heimska sem veldur mér sárindum líka.

Af hverju reyna sumir að móðga aðra? Ég skil það ekki.

Ég helli mér heldur ekki yfir fólk eins og löggur og stöðumælaverði. Þegar ég borga ekki í stöðumæli er ég að gambla. Stundum tapa ég en oftar vinn ég... Löggan hefur bara tekið mig tvisvar og ég græt hvorugt skiptið.

Hef aldrei verið spurð að því hvort ég sé ekki fúl í þeim aðstæðum sem þú talar um. Kannski sýnist mönnum ég vera það. Samt... varla.

Ég er líka geimvera. Bý á plánetu sem heitir Jörðin. happy

Nr. 15 | posted by: anna | 13.07.2003 | 8:48:50 | [+] |

Þú verður að fara að lesa Hitch Hikers. Ford Prefect var einmitt frá plánetu í grennd við Betlegás.wink

Nr. 16 | posted by: beggi dot com | 13.07.2003 | 9:36:25 | [+] |

Já ég er einmitt á leiðinni á bókasafnið í dag. Ég er búin að vera á leiðinni að fara að lesa þetta frá því ég var unglingur. Best að fara að drífa í þessu. Lesa þessa og Brief history of time. Ég er að komast í lestrarstuð...

Nr. 17 | posted by: anna | 13.07.2003 | 9:39:13 | [+] |

Brief history of time er algjör snilld. Enda er ,,the wheelchair guy", eins og Hómer kallaði hann, óneitanlega snillingur.

Nr. 18 | posted by: beggi dot com | 13.07.2003 | 9:43:54 | [+] |

Anna, Anna, Anna!!
Heldurðu að þú sért að fara í einhverjar sumarbúðir?
Þér verður sko haldið að verki. Ég er búin að vera að tína saman öll biluð tæki á heimilinu og það er orðin býsna stór hrúga,.... með uppþvottavélini sko toungue
Þér á ekki eftir að gefast mikill tími til lestrar [biggrin]

Nr. 19 | posted by: Harpa | 13.07.2003 | 10:35:10 | [+] |


recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web