Sunnudagur, 29. júní 2003
Sjís ég er ennþá með í maganum.
Afi Úlfur ákvað að bjóða mér og krökkunum í Tívolí í dag og við ákváðum að láta smá rigningarúða ekkert aftra okkur. Ég sagði honum að það yrði nú ekki dýrt því Doddi væri hálf hræddur við tækin og Jóhanna færi frekar rólega í þetta allt saman. Það mætti halda að ég hefði kynnst börnunum mínum í gær.
Reyndar fórum við Doddi fyrst í orma-rússíbana sem lítur svona út.
Dodda var soldið hræddur en fannst rosalega gaman svo næst prufuðum við að fara í Twister. Mér varð hálf óglatt eftir þá ferð en Doddi hafði uppgvötvað the thrill.
Ég man ekki hvenær ég skemmti mér svona vel í Tívolí og það kæmi mér ekki á óvart ef við skelltum okkur aftur í sumar!