Föstudagur, 13. júní 2003
Ég varð fyrir þeirri ógeðslegu lífsreynslu áðan að taka literally flugu í nös. Var eitthvað að taka til draslið í kökuna þegar ég ákvað ómeðvitað að draga andann innum nefið. Í sömu andrá flaug míní fluga undir nefið á mér festist í uppstreyminu og sogaðist upp... - í nefið. Samstundis fékk ég hellu fyrir eyrun.
Ég tók leiftursnöggt við mér og snýtti mér út í loftið, yfir betty crocker, til að koma flugunni út og veit ekki hvort það tókst. Fór inn á bað að snýta mér en það kom ekkert. Ekki einu sinni hor. Ég er næstum því handviss um að ég náði að snýta flugunni út í loftið áður en ég saug hana upp í munn.. auk þess sem ég held ég hefði fundið fyrir því ef ég hefði kyngt henni.
Ég sem hætti að horfa á Survivor þegar fólkið fór að borða pöddur. Núna klæjar mig um allan líkamann. Sérstaklega í vinstra eyrað.