Sunnudagur, 01. júní 2003
Beggi.com veltir því fyrir sér hvort ég sé biluð eða snillingur. Ég spyr: Hver er munurinn? Eru til snillingar sem eru ekki bilaðir? Annars er mín geðfötlun bara minimal.. a.m.k. sér ríkið ekki ástæðu til að láta sjúkrasamlagið borga krónu til að laga það.. sem er þá líklega ekkert. Sieg heil!
Ergo: ég er hvorki snillingur né biluð. Ég er bara venjulegur smáborgari sem dreymir um lítið einbýlishús með walk in closet, white picket fence og litlum garði þar sem ég get ræktað graslauk og gulrætur.. það er ekki merkilegra en það... kann ekki að prjóna en get búið til mean motherfucking grjónagraut og gert við bremsur á bílum og skipt um flesta slitparta vandræðalaust... sjís.. hvað var nú þetta?
Hvað varðar Mil Millington þá finnst mér verst hvað það virðast vera margir menn out there, ef marka má gestabókina hans, sem skilja ekki hvað konur eins og Margaret eru dásamlegar verur. Það má kannski kalla það bilun.. en ég held að Mil sannarlega elski þessa konu.
Ég hef ekki lesið bókina hans ennþá en það styttist í að ég finni mér tíma til þess.