www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
Stelpur og konur
Föstudagur, 27. júní 2003

Stelpa - Fullorðin stelpa - Kona - Kelling ?Meirihluti þeirra kvenna sem ég þekki vilja ekki að þær séu kallaðar konur. Þær vilja vera kallaðar stelpur.

Mér er alveg sama hvort ég er kölluð en finnst samt meira kúl ef myndalegur karlmaður referrar til mín sem konu, því það er svo sannarlega það sem ég er.

Stelpur eru með tígaspena og í stuttum pilsum, saklausar og sætar.

Konur eru betur klæddar, væla minna, vita hvað þær vilja, löngu hættar að þykjast vera saklausar og kunna flest betur en stelpur. Konur eru fallegar, ekki sætar. Konur eru bara svo miklu, miklu flottari en stelpur. Auk þess er bara eitthvað perralegt við hitt...

Ég hef hinsvegar lítinn áhuga á að verða kelling. Þessvegna þarf ég að hætta að reykja. Til að ég fari nú ekki að fá hrukkur langt fyrir aldur fram.

Kannski þarf maður að sofa eitthvað líka...

Ég var stelpa, er orðin kona ætla að verða "eldri" kona og svo "gömul" kona.

Verð líka að segja að mér finnst orðið "karlmaður" töluvert meira turn on en "strákur". Sem betur fer má nota það orð yfir menn sem eru komnir yfir tvítugt...

Annars er þetta ekkert hjartans mál hjá mér. Stundum finnst mér gaman að vera kölluð stelpa. Mér finnst líka ekkert að því að segja: "Hvað segiði stelpur, á að skella sér út á lífið?" við jafnöldrur mínar...


| anna | 19:18 |
comments

þetta er svolítið skrítið með stelpur, konur og kerlingaroogle
Ég var stelpa til 17 ára aldurs. Þá stökk ég yfir konutímabilið og varð kerling[weteyes]
Það er ég svo kölluð innan veggja heimilisins nema þegar mamma kemur í heimsókn. Þá svarar hún alltaf þegar "maðurinn" minn kallar "kelling"!!
Mér var svosem sama með þetta "gælunafn" fram að þrítugu en núna langar mig meira að vera konaembarassed
Þú veist, áður en ég verð hugsanlega kelling í alvöru....

En ég er samt alltaf til í að fara út á lífið með stelpunumcool

Nr. 1 | posted by: Harpa | 27.06.2003 | 22:56:52 | [+] |

Kvenkyninu má skipta upp í fjóra flokka og teljast börn ekki með heldur skal miða við aldur ca. frá 18 ára og eldri.

Stelpur
Fullorðnar stelpur
Konur
Kerlingar

Það er rétt hjá honum vini þínum að það er hugarfarið segir til um það hvar í flokki hver lendir. En rangt þetta með útlitið og klæðaburðinn. Hugarfarið hefur áhrif á útlitið og klæðaburðinn og fasið allt. Og aldurinn skiptir máli í þessu samhengi því það eru meiri líkur á því að eftir því sem kvenfólk eldist þá færist það upp um flokk en þó ekki algilt. Það er því fræðilega hægt að vera í sama flokki alla ævi þó líkurnar séu meiri á því að færast upp um flokka eftir því sem árunum fjölgar. En ansi mörgum tekst að halda sér lengi í flokki tvö sem er bara gott mál og persónulega líst mér best á flokka 2 og 3.

Nr. 2 | posted by: Igor | 28.06.2003 | 1:32:28 | [+] |

Annars fór ég með tígó í bíó áðan. Er kannski með stelpu-duld.

Í hvaða flokka er hægt að skipta karlmönnum í?

Strákar
Ungir menn
Karlmenn
Kallar

?

Nr. 3 | posted by: anna | 28.06.2003 | 1:56:42 | [+] |

Ekki kom klámmynd upp í hugann á mér? Dirty mind?

Nákvæmari skilgreining er svona:

Stelpur = þarf ekki nánari skilgreiningar við
Fullorðnar stelpur = líta út eins og stelpur en hafa þroska á við konur
Konur = líka út eins og konur og hafa þroska á við konur
Kerlingar = þarf ekki nánari skilgreiningar við

Fullorðnar stelpur klæðast oft jogging göllum en þeir þurfa ekki að vera larfar. Sóðar klæðast lörfum og til eru sóðar í öllum flokkum.

Að vera með hárið í hnút eða ekki getur ekki eitt og sér sett kvenmann í einhvern flokk heldur er það heildarmyndin og hugarfarið.

Nr. 4 | posted by: igor | 28.06.2003 | 2:03:42 | [+] |

Hárrétt athugað þetta hjá þér með karlkynið. Þú ert að ná þessu.

Nr. 5 | posted by: Igor | 28.06.2003 | 2:07:01 | [+] |

Ég fell, skv. þinni skilgreiningu, undir fullorðnar stelpur og hef vissulega dirty mind. Skammast mín ekkert fyrir það. Ég hef dirty mind í sömu hlutföllum og ímyndunnarafl.

Joggingföt geta verið larfar þó að þau séu ekki sóðaleg. Fruit of the loom jogging buxur verða t.d. mjög fljótt larfalegar þó þær séu tandurhreinar. Annars er ég þekkt fyrir að nota íslenska tungu rangt og gæti verið að meina eitthvað allt annað en larfa þegar ég nota það orð. [biggrin]

Í hvaða flokki ert þú? Ég veðja á karlmaður.

Nr. 6 | posted by: anna | 28.06.2003 | 2:16:41 | [+] |

Ekkert að skammast sín fyrir þó það sé auðvitað ekki mitt að dæma um það. En ef ímyndinunaraflið hjá þér er almennt eins og kemur fram í greininni þinni um "namedroppings" þá roðnar maður bara.

Larfar. Comment noted. Ég hafði reyndar í huga ákveðna tegund jogging buxna sem eru sérlega "fullorðins stelpulegar".

Erfið spurning. Ég myndi segja að ég væri einhversstaðar á milli, sveiflast jafnvel á milli þess að vera í flokknum karlmaður og ungir menn. Gæti túlkast sem flótti frá raunveruleikanum en mér finnst ég alltaf vera í flokki 2 en flestum finnst ég sennilega vera í flokki 3.

Nr. 7 | posted by: Igor | 28.06.2003 | 2:33:58 | [+] |

Ef þú roðnar þá veistu hvað ég er að meina. LOL Nei common. Ég hélt að það væri bara þannig að þeir sem eru með púls eru með dirty mind. Einskonar heilsutvenna.

Ég sé fyrir mér *kellingalegar* joggingbuxur.. þær eru úr glansefni... appelsínugular með grænum hliðarröndum og eru rosalega flottar við háhælaða skó. Þessi samsetning sést oft í Kringlunni.

Það sagði einhver: "Þú ert eins gamall og þér líður". Skv. því ertu flokkur 2.

Nr. 8 | posted by: anna | 28.06.2003 | 2:45:35 | [+] |

Key issue: Stelpur eru lousy in bed.

Nr. 9 | posted by: organistinn | 28.06.2003 | 6:48:04 | [+] |

Anna.

Ég tel að við höfum náð saman í þessu máli og séum nú sammála í flokkun beggja kynja, hver teljist hvar og hvaða aðferðir skuli nota við flokkun.

Hvað varðar dirty mind má vera að þú hafir rétt fyrir þér. Skal ekki útiloka það.

Góða helgi.

Nr. 10 | posted by: Igor | 28.06.2003 | 10:22:00 | [+] |

Það er við manninn mælt, ekki eru bara rollurnar dregnar í dilka, heldur þarf mannkynið á Íslandi að gera hið sama. Enn ein umræðan sem rídjúsar umræðuna niður í kynfærin. Og því miður er aðeins rétt kroppað í yfirborð íslenskrar málflóru.

- Drusla, dós (kona í fýlu út í aðra konu)
- Pía, skutla, skvísa, hörku boddí (ekki bara wannabe unglingar á efri árum = 18-24, heldur líka þeir sem halda að þeir séu 22 alla ævina)....................................................................

Puuuuuuuuuuhhhhhhhhhhhhhhh......................................

tc

Nr. 11 | posted by: Tony Clilfton | 28.06.2003 | 22:31:21 | [+] |

Puuuuuuuuuuhhhhhhhhhhhhhhh

Nr. 12 | posted by: anna | 28.06.2003 | 22:45:15 | [+] |

Hver er þessi sultry stelpa á myndinni?

Nr. 13 | posted by: organistinn | 28.06.2003 | 23:44:55 | [+] |

Ég ekki skilja?? Puuuuuuuhhhhhhhh???
Tc- talaðu frekar um Zetoroogle þá kannski skil ég.....
En, kannski á maður ekki endilega að skilja allt confused

Nr. 14 | posted by: Harpa | 28.06.2003 | 23:57:27 | [+] |

Organisti:

Þetta er ég. Ég hélt að þetta væri svona fullorðins-stelpu mynd. silent

Nr. 15 | posted by: anna | 29.06.2003 | 1:21:53 | [+] |

Þetta er ung kona á myndinni; ég skrifaði "stelpa" til að stríða þér.

Þetta er mögnuð kombínasjón: good looks og skemmtilegur penni. Áfram anna-punktur-is.

Nr. 16 | posted by: organistinn | 29.06.2003 | 1:43:13 | [+] |

OG geri við þvottavélar!

I'm every woman, it's all in me... [biggrin]

Nr. 17 | posted by: anna | 29.06.2003 | 5:11:43 | [+] |

He, he, he...uppþvottavélin okkar þvær ekki almennilega lengur. Organistinn var að koma frá Ralphs (þeir eru opnir 24 tíma) með Lime-A-Way til að sjá hvort það bjargar málinu. Ef það gengur ekki verð ég að hringja í þig.

Getur þú komið í samfestingi og með derhúfu?

Nr. 18 | posted by: organistinn | 29.06.2003 | 7:38:43 | [+] |

R E S P E C T !!

tounguetc

ps. Harpa -- áttir þú ekki líka einn gamlan MF?

Nr. 19 | posted by: Tony Clifton | 29.06.2003 | 8:02:54 | [+] |

Tony:

Whip it to me! toungue

Organisti:

Auðvitað get ég komið í samfesting og með derhúfu. Ég hef reyndar aldrei gert við uppþvottavél en einu sinni er allt fyrst. I'm listed. happy

Nr. 20 | posted by: anna | 29.06.2003 | 11:28:45 | [+] |

Ég gleymdi, flott mynd.

Nr. 21 | posted by: beggi dot com | 29.06.2003 | 16:29:37 | [+] |

Ó boj.. eins gott að ég á eftir að taka málfræði í íslensku.. ég skil þessa beygingu engan vegin!

Hvað eru að gera þig svona bissí?

Nr. 22 | posted by: anna | 29.06.2003 | 18:43:24 | [+] |

Mér finnst rétt að minnast á að mér finnst "ungar konur" betra en "fullorðnar stelpur". smile

Nr. 23 | posted by: anna | 29.06.2003 | 23:44:32 | [+] |


recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web