Föstudagur, 20. júní 2003
Það var einmitt á speeddater kvöldi í gær sem ég frétti þetta með bleika litinn og jafnréttissinnaða einstaklinga. Ég var boðin á opnunarkvöld speeddater á Íslandi og þar sem þetta fyrirbæri er einkum fyrir fólk sem hefur hvorki tíma né nennu í að hanga á skemmtistöðum til að kynnast fólki, sem er annaðhvort á perunni eða útúr dópað, ákvað ég að skella mér.
Vinkona mín ætlaði með mér þangað til að hún var þvinguð til að fara í afmæli Össurar Skarp. Skilst að það hafi verið fullt út úr dyrum og að handrukkarar hafi verið niðrí bæ að hóta fólki líkamsmeiðingum ef það sýndi ekki lit og mætti á Kjarvalsstaði.
Ég var mætt á Metz (sem var Rex, sem var svo eitthvað annað, sem er núna Metz*) klukkan átta til að tékka á speeddate stemmingunni. Í einu horninu var femínista kreðsa sem var mikið í bleiku og með bleik barmmerki (WAHAHAHAHAHAHA BARMmerki.. ok.. kannski fatta ekki allir bleiku barma húmorinn minn).
Stuttu eftir að ég hafði hlammað mér á borð settust hjá mér ungar stúlkur. Þær hafa verið ca tvítugar. Jafnvel yngri. Við kjöftuðum saman, aðallega um það að okkur sýndust konur vera í miklum meirihluta þarna inni og höfðum skiljanlega áhyggjur af því að engir karlmenn myndu láta sjá sig. Þegar fólk um sjötugt fór að drífa að var okkur hætt að lítast á blikuna.
Þar sem við sátum þarna þrjár og sáum ekkert nema konur fórum við að ræða um lesbíur og hvort að þetta væri kannski lesbíukvöld. Anyway. Önnur þeirra sagði að ég ætti nú ekki eftir að eiga í vandræðum með að ná mér í konu þar sem ég væri með svona Dana International look.
What the fuck? Lít ég út eins og karlmaður með make-up? Sjís... vonandi er það bara hárið!
Það verður auðvitað að taka með í reikninginn að þetta var kynningarkvöld á speeddating og það mun víst útskýra þessa furðulegu aldursdreyfingu. Þar sem ég er mjög tímabundin mátti ég ekki vera að því að bíða til klukkan hálf tíu eftir að sjálft speeddate-ið byrjaði en get staðfest að þegar ég fór, klukkan rúmlega níu, voru heilmargir karlmenn mættir á svæðið. Þeir hafa líklega þurft að drekka aðeins í sig smá þor áður en þeir mættu.
Það er rétt að segja frá því að ég örvænti ekki þar sem ég fékk nóg af augngotum frá karlmönnunum sem mættu. Dettur mér í hug... voru þeir kannski að horfa á mig af því að þeir héldu að ég væri transsexual????? HOLY SHIT!!!!
*Finnst rétt að minnast á þetta í sögulegu samhengi