www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
"smart"
Mánudagur, 09. júní 2003

Er orðið sem Salvör Gissurardóttir notar yfir lúkkið á síðunni minni. Ég er sátt við það en hund fúl yfir því að hafa ekki komist á blað yfir flotta bloggara hjá henni. Verð að sætta mig við að vera smart og með góðan smekk.. líklega.

Haltu kjafti og vertu sæt.. dettur mér í hug. Er í fúlu skapi. Langar að sparka í kött, eða eitthvað kvikindi.


| anna | 20:11 |
comments

Fúff !

Er þessi Salvör til eða er þetta eitthvað sem þú fannst upp til að útskýra innanpíkubleikt ? Þessi borderlitur er alveg agalegur, ég myndi notað eitthvað annað en SMART til að lýsa honum.

En kannski Salvör bjargi þessu með því að hafa SÚBBSTANNS á síðunni en ég mun aldrei komast að því þarsem ég trúi ekki á lestur. (segir maðurinn sem tók tveggja tíma fótabað og las Bukowsky)

Nr. 1 | posted by: Dórinn | 9.06.2003 | 21:06:41 | [+] |

Hmm. Sammála um algeran skort á smekk á þessum borderlit hjá Salvöru. Hef ekki enn getað fengið neinn prófessor til að samþykja ,,innanpíkurannsóknir" sem mastersverkefni svo ég get ekki tjáð mig um hvort þessi border er í þeim lit. Ekki er þó öll nótt úti í þeim efnum, það hefur nefnilega ekki verið þverfótað fyrir frídögum hér undanfarið og prófessorar því ekki á hverju strái. pirate

Nr. 2 | posted by: beggi dot com | 9.06.2003 | 21:17:51 | [+] |

Ég gleymdi, Anna ekki sparka í kött, verandi bæði ljón og tígur verð ég að mótmæla því. Sparkaðu frekar í hund.

Nr. 3 | posted by: beggi dot com | 9.06.2003 | 21:21:22 | [+] |

Gott að fá sérfræðiálit á litnumsmile Ekki dettur mér í hug að mótmæla, langt síðan ég lærði að rífast ekki við kvenfólk um liti, þær sjá fleiri en við veikara kyniðwink

Nr. 4 | posted by: beggi dot com | 9.06.2003 | 22:52:25 | [+] |

Djöfull kemur þú sterkur inn að viðurkenna þetta með veikara kynið. Sem þið eruð auðvitað.

Ég skrifaði svo langt svar að það endaði sem blogg. Og ég heyri raddir úr veggnum í stofunni. Fannst rétt að minnast á það.

Nr. 5 | posted by: anna | 9.06.2003 | 23:52:19 | [+] |

Raddir út úr veggnum eru ekki góð tíðindi. Ertu skyggn? Ef ekki þá er þetta jafnvel verra vandamálsad

Nr. 6 | posted by: beggi dot com | 10.06.2003 | 0:23:33 | [+] |

Varðandi OF FJÓLUBLÁTT og INNANPÍKUBLEIKT þá vil ég benda að eftir því sem innar dregur er ljósmagnið minna og þá getur komið út svona salvararfjólublátt/bleikt

Nóg um það.... Anna, þú segist vera of góð til að sparka ó lifandi dýr... er það þessvegna sem þú notar dúkahníf oh plastpoka og.... hmmm, kannski við ræðum þetta bara undir fjögur seinna, þessi pirrandi dýraverndunarsamtök eru allstaðar með spæjara....

Nr. 7 | posted by: Dorinn | 10.06.2003 | 0:35:25 | [+] |

Þetta með raddirnar.. voru bara gestir hjá konunni við hliðiná. Dóri. Þú veist að ég geri bara flugum mein.

Nr. 8 | posted by: anna | 10.06.2003 | 16:22:12 | [+] |


recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web