www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
Safnarinn
Þriðjudagur, 17. júní 2003

Mér er ekki ætlað að safna hlutum. Ég nennti ekki að safna servíettum þegar ég var lítil og í eina skiptið sem mér tókst vel upp í að safna einhverju var þegar ég og vinkona mín fórum að safna límmiðum. Að lokum missti ég áhugann og hef ekki hugmynd um hvar allir límmiðarnir eru í dag.

Reyndar er ég nokkuð lunkin við að safna rusli. Pappírsrusli aðallega.

Glöggur aðkomumaður spurði mig áðan: "Hefurðu séð hvað er mikil ló undir stólnum þínum?"

Núna brýt ég heilann um hvernig er best að geyma og flokka ló. Hef ekki rekist á neinar bækur eða möppur á netinu. Eða ætli sé betra að nota litla kassa? Eldspýtustokka jafnvel.. hmm..


| anna | 17:38 |
comments

Vertu bara fegin, ég safna skuldum!

Nr. 1 | posted by: Ingólfur Júlíusson | 17.06.2003 | 20:19:28 | [+] |

Það er ekkert mál að safna. Ég hef oft safnað skeggi, jæja... ok... það er kannski ekki mjög kvenlegt. Ég hef líka safnað hári, það er oft gaman, mæli með því. Svo hef ég safnað ístru, það er ekki eins gaman, en hefur þann kost að hún er á vísum stað og fer ekkert. Svo hef ég líka safnað skuldum, mæli ekkert sérstaklega með því, það er eiginlega alveg hundleiðinlegt.

Nr. 2 | posted by: beggi dot com | 17.06.2003 | 20:56:55 | [+] |

Gleymdi draslinu, er ókrýndur heimsmeistari í greininni. Ein 10 ára gömul vinkona mín sem býr með foreldrum sínum hérna, segir alltaf þegar hún er beðin um að taka til í herberginu sínu: ,,En það er ekki nærri eins mikið drasl og hjá Begga"[eyebrows]

Nr. 3 | posted by: beggi dot com | 17.06.2003 | 21:00:35 | [+] |

Ég er einmitt drasl safnari en síðastliðin ár virðist ég einkum sanka að mér pappír og bókum og svoleiðis. Er með stafla af pappírum sem ég veit ekkert hvað ég á að gera við. Enda líklega eins og Viggó, inní blaða "bæli".

Ég hef safnað skeggi en þegar ég fékk atvinnutilboð frá sirkus í Amsterdam plokkaði ég það burt.

Að safna skuldum er eitthvað sem ég hef líka verið iðin við. Ábyrgðarsjóður launa hefur stutt mig dyggilega í þem efnum undanfarið og gert mér kleyft að borga svimandi upphæðir í kostnað og vanskilavexti. Nú er svo komið að þó þeir myndu borga dráttarvexti og verðbætur þá væri það ekki nóg helvítis %$@#*$!!

AAaahhhhhh..... nú líður mér betur [biggrin]

Nr. 4 | posted by: anna | 17.06.2003 | 23:59:19 | [+] |


recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web