www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
rewind
Sunnudagur, 29. júní 2003

Ég tók mér mynd á leigu í kvöld. Ég setti myndina í tækið áðan. Myndbandstækið var rétt búið að gleypa við spólunni þegar síminn hringdi og ég lenti á kjaftatörn.

Viðmælandi minn sendi mér m.a. slóð í tölvupósti sem ég fór og skoðaði. Eftir símtalið skrifaði ég tvö komment á síðuna mína, stóð upp og ætlaði að fara að hofa. Ég náði í appelsín og kom mér makindalega fyrir undir sæng í sófanum. Í þeirri andrá sem ég ætlaði að ýta á play á fjarstýringunni byrjaði myndbandstækið skyndilega að spóla til baka.

Time flies.

Ég er um það bil að fara að rúlla myndinni í gegn í annað sinn.
Ætla að horfa á hana í þetta skipti...


| anna | 1:34 |
comments

....þinn staður, þín stund ? hélstu á Mogganum alla þessa kjaftatörn ?oogle

Nr. 1 | posted by: Dorinn | 29.06.2003 | 1:46:57 | [+] |

Nei, reyndar ekki hahaha

Auk þess var þetta samtal innihaldsríkara en nokkuð dagblað smile

Nr. 2 | posted by: anna | 29.06.2003 | 2:41:09 | [+] |

Ertu að tala um Þráinn eða Eyvind?

Nr. 3 | posted by: anna | 29.06.2003 | 5:08:13 | [+] |

...Veit bara að ef það er ekki Þrái í morgunkorninu þá fær maður ey vind

Nr. 4 | posted by: Dorinn | 29.06.2003 | 12:08:23 | [+] |

Fáðu þér Husk. Fæst í betri apótekum toungue

Nr. 5 | posted by: anna | 29.06.2003 | 12:11:34 | [+] |

Var að velta fyrir mér hvernig þú ferð að því að horfa á videó spólu í kvöld áður en kvöldið kemur? Og klukkan enn rétt rúmlega sex. Snilld.

Er hægt að fá far í tímavélinni þinni?

Nr. 6 | posted by: Igor | 29.06.2003 | 18:24:11 | [+] |


recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web