www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
Purrr-fect?
Mánudagur, 30. júní 2003

Kitty Goth



What Kind of Goth Are You?


| anna | 11:29 |
comments

Þetta bíður uppá svo marga orðaleiki....

.....en ég ætla að sleppa svona cheap skotum (einusinni er allt fyrst)

Nr. 1 | posted by: Dorinn | 30.06.2003 | 18:01:04 | [+] |

Þú ert að þroskast! wink

Nr. 2 | posted by: anna | 30.06.2003 | 19:48:09 | [+] |

.....thats the first I hear of that !

Nr. 3 | posted by: Dorinn | 1.07.2003 | 0:59:31 | [+] |

Anna.

Ég er dáldið spenntur fyrir þessari tímavél þinni því ég gæti notað hana til að útkljá mál sem ég hef verið að spá í. Um uppruna trúarinnar.

Ég var að velta því fyrir mér að ef ég ætti 120 þúsund kall (á hann reyndar) og fengi lánaða tímavéina þína og færi ca. 150.000 ár aftur í tímann. Þá myndi ég hitta forfeður homo sapiens - hins viti borna manns - skv. nýjustu uppgötvunum á uppruna mannsins (Morgunblaðið 24. júní 2003).

Ef ég færi síðan aftur til baka um ca. 120.000 ár þá myndi ég hitta neanderdalsmanninn sem hvarf í Evrópu fyrir ca. 30.000 árum.

Síðan færi ég enn nær og myndi hitta Faraóa, síðan Jesú, þar á eftir Ingólf Arnarson, síðan Jóhannes Pál Páfa og loks Gunnar í Krossinum. Þyrfti reyndar ekki tímavélina til þessarar síðustu heimsóknar og tæki bara bílinn og sparaði mér leiguna á tímavélinni.

Á þessari ferð minni um tímann kæmi í ljós að allt þetta fólk er síteiknandi eða smíðandi líkneski hverskonar og trúir á eitthvað en aldrei á nákvæmlega það sama. Sumt er líkt, annað gjörólíkt. Svona eins og gengur. En allir virðast hafa einhverskonar trúarbrögð og tilbiður guð eða guði.

En ef til er guð þá ættu væntanlega allir að trúa á það sama og trúarbrögðin ættu að vera eins. Nema til séu margir guðir. Hugsanlega.

En kannski er skýringin líkamleg og falin í þróun mannsins. Getur verið að trúin sé ein af frumþörfum mannsins? Þess vegna hafi hún alltaf verið til? Að trúin sé upprunin í heilanum og sé í raun bara tæki sem maðurinn þróaði með sér til þess að standast það álag að vera til.

Sé þetta raunin, skýrir það hin fjölbreyttu trúarbrögð. Því á hverjum tíma hafa ákveðnir einstaklingar uppgötvað þessa þörf mannsins og nýtt sér hana sér til framdráttar. Búið til trúarbrögð. Þannig náð valdi yfir hópum fólks. Galdrarlæknar, prestar, höfðingjar, konungar og svo mætti lengi telja hafa löngum tekið trúna í sína þjónustu og kúgað jafnvel heilu þjóðfélögin.

Trúarbrögðin eru því eitt öflugasta kúgunartæki veraldar vegna þessarar þarfar mannsins til að trúa. Dæmin eru endalaus en augljósasta dæmið er kúgun kvenna í gegnum tíðina og er jafnvel enn við líði í ákveðnum þjóðfélögum þar sem trúarbrögðum er beitt til kúgunar t.d. með klæðaburði.

En við sjáum að trúarbrögð láta undan þar sem upplýsingin er mest og samhliða því hverfur kúgunin (jafnrétti kvenna og karla). Þetta er að gerast á vesturlöndum og ef haldið væri inn í framtíðina í tímavélinni þangað sem fullkomin upplýsing er til staðar þá má færa rök fyrir því að maðurinn hafi þróast þannig að heilinn þarf ekki lengur á trúnni að halda. Trúarbrögðin eru fyrir bí.

Á sama tíma má færa rök fyrir því líka að margvísleg þjónusta sem framkvæmd er í nafni trúarinnar og af þjónum hennar t.d. brúðkaup, jarðafarir, áfallahjálp o.s.frv. er jafnvel nauðsynleg þjónusta þó trúarbrögðin hverfi.

Það getur komið sér vel að fá lánaða tímavél.

Nr. 4 | posted by: igor | 1.07.2003 | 1:20:08 | [+] |

Já. Vill svo skemmtilega til að ég hef skoðun á þessu máli, þ.e. trúarbrögðum.

Ég er *búin* að fara roundtrip í vélinni minni og get fullyrt að þetta er allt sama tóbakið eða svo til. Á tímum Jesú var sett saman nefnd til að steypa Rómverska keisaranum af stóli. Jesú átti að vera frelsari alþýðunnar eftir uppreisnina því hann var hippi og trúði m.a. á: "Power to the people" sem var einmitt skrifað með kirsuberjavíni á serkinn hans. Jesú fór stundum í eyðimörkina með hórunum sínum, reykti og droppaði sýru. Hann varð viss um að hann væri sonur Guðs. Jesú reykti hinsvegar svo mikið og var svo loose að hann svaf yfir uppreisnina og var krossfestur.

Rosalega fallegt á jörðinni á þessu tímabili annars.

Alla. Múhameð var bara drengur sem giftist gamalli kellingu til fjár og leiddist að geta ekki gifst mörgum konum eins og efnaðri samferðamenn hans gátu. Hann missti áhuga á kynlífi eftir nokkur ár með spúsu sinni, sem hafði afbrigðileg preference í kynlífi, og þróaði með sér þörf fyrir að koma í veg fyrir að menn lentu í hans sporum. Það var m.a. þessvegna sem hann bannaði útburð á stúlkubörnum. Með tímanum missti hann vitið og hélt, eins og margir trúarleiðtogar, að hann væri guð.

Áður en ég held lengra þá er mín skoðun að í framtíðinni, þegar konur og karlar eru orðin jöfn, þá fari fólk að trúa á peninga. Sem er ekki óeðlileg þróun þar sem maðurinn hefur alltaf trúað á eitthvað sem er "almáttugt" og peningar virðast einmitt vera það, í nútíma þjóðfélagi, ekki síst þar sem vísindamenn hafa sett fram kenningu um að peningar *geti* keypt hamingju og þeir gefa meira að segja upp nákvæma upphæð! Margir menn sem eru á undan sinni samtíð trúa nú þegar á peninga.

Áður en manneskjan fæst til að trúa engu þurfa að líða ca 300 - 400 ár. Ég held að annaðhvort verði alheimurinn fallin saman eða við búin að tortíma jörðinni áður en við náum þessu takmarki.

Það sem er hinsvegar magnað er að trúin virkar, fyrir þá sem trúa. Ég hafði sjálf mína barnatrú en tapaði henni fljótlega eftir að ég kynntist heiminum og *vitkaðist* þó Hodja hafi aldrei gert það. -vitkast þ.e.a.s.

Hvað kristna trú varðar eru þrjár grundvallarspurningar sem þú getur spurt þig til að komast að því hvort þú ert kristin:

1. Trúir þú að Guð hafi skapað heiminn?
2. Trúir þú að maðurinn sé komin af Adam og Evu?
3. Trúir þú að Jesú hafi risið upp frá dauðum?

Ef svarið er já við *öllum* spurningunum ertu kristin. Ef ekki þá geturðu slappað af því þú veist helvíti er ekki til og þegar þú ert dauður þá ertu dauður. Live and let live.

Það sem ég hef kosið að trúa er að það sé til gott og illt í hverri manneskju. Ég reyni hinsvegar að ala börnin mín upp í kristinni siðfræði þó að ég hafi trú á því að í framtíðinni muni þessi siðfræði annaðhvort aukast rosalega (engin nekt, ekkert blót, ekkert áfengi, allt bannað) eða hverfa með öllu (anything goes).

Siðferði Íslendinga er oft á mjög lágu plani, t.d. í viðskiptalífinu enda who are we kidding? Við erum heiðingjar og höfum alltaf verið.

Ef Noregskonungur hefði ekki tekið syni Davíðs og Ólafs Ragnars (síns tíma) hefðum við bara rekið framan í þetta lið miðfingurinn og haldið áfram að trúa á goðin, stokk og steina. (voru það ekki goð annars? Stokkur og Steinn?) Í staðinn lugum við að Noregskonungi (í takt við boðorðin) og lofuðum að vera kristin með fyrirvara um... bla bla bla

Það þarf hinsvegar engin að leggjast undir feld til að átta sig á að kristnin er á villigötum. Lútersk trú er þó skömminni skárri en Katólsk með einni undantekningu. Katólikkar hafa skriftarbox í sínum kirkjum.

Kirkjan á að sinna sáluhjálp. Það er úrelt að leggja höfuðáherslu á að kenna *kristinfræði* þeim sem eiga að sinna prestkalli. Kristinfræði er sagnfræði. Í guðanna bænum (hehehe) flokkið þetta rétt.

Verðandi prestar eiga að læra sálarfræði - ef þeir eiga að bjarga sálum. Spáðu að bara með því að taka upp skriftarbox í íslenskum kirkjum og hafa sálfræðimenntaða presta mætti bjarga mörg hundruð sálum á ári! Gunnar í krossinum er wuse miðað við hvað nútíma prestur með rétta menntun gæti gert. Já þeir verða að læra eitthvað um Jesú og fjölsk. líka en það verður bara til að þeir geti.. jah ég veit eiginlega ekki til hvers..

Það er til fólk sem hefur engan til að tala við og þó að prestar séu til taks á skrifstofunum sínum er oft erfitt að segja frá því (ef maður er t.d. 12 ára) að manni langi stundum til að myrða systkyni sín eða foreldra. Eða að manni langar til að hengja sig af því að maður er leiður því mamma er alltaf full, eða maður er feitur, ljótur, bólugrafinn, á ekki nógu flott föt, tölvuleiki eða hvað það er sem hrjáir ungdóm þessa lands. Ennþá erfiðara er að segja frá þessum hlutum ef maður er komin á fullorðinsár og þá er ekki amalegt að geta farið í dimman kassa og spillað ones guts.

Kirkjan þarf virkilega að endurskilgreina hlutverk sitt og mér finnst t.d. Joyce Meyers á Omega alveg frábær því hún tekur sinn söfnuð og kennir þeim grundvallaratriði í AA og það sem hægt er að lesa um dysfunctional fjölskyldur og setur Guð og djöfulinn í það samhengi. T.d. ef þú vilt drekka þá er DJÖFULLINN AÐ SEGJA ÞÉR AÐ DREKKA o.s.frv.

Nú er ég ekki að mæla með því að fólk lyfti höndum og lofi drottinn, eins og hún mælir með, næst þegar það er við kassann í Bónus og viðskiptavinurinn á undann er ein af þessum manneskjum sem er heila eilífð að finna veskið, telja peningana upp úr því, setja ofaní poka og drullast frá. (jú annars.. það væri frábært, þá vissi maður hverja maður á ekki að deita)

Meyers hefur hinsvegar oft mikið til síns máls ef þú tekur guð og djöfulinn úr jöfnunni þá meikar það sem hún segir sense. Annars sagði einn góður vinur minn einusinni: "Til að horfa á Omega þarf maður annaðhvort að hafa húmor eða túmor". (Ég fæ ekki spons fyrir þessi skrif frá Omega eða Joyce, því er nú andskotans ver og miður.)

Mér finnst Joyce Meyers líka hafa flott fashion sense og langar rosalega í glit-dragt og glit-skó í stíl eins og hún er oft í. Svo eru spólurnar sem hún selur oftar en ekki með óborganlegum titlum: "Keep on walking when the devil is stalking" er það sem ég sá síðast þegar sjónvarpið datt inn á Omega þegar ég var að leita að Playstation rásinni til að fara í Wolfenstein að drepa nasista.

Hvað trúarleiðtoga varðar þá skil ég fólk sem vill að aðrir hugsi fyrir sig. Það er ákveðið öryggi fyrir öryggislaust fólk þegar aðrir segja og láta það finna að það sé öruggt og þegar það hefur kynnst öryggi vill það frekar drepa sig og aðra fyrr en að tapa því. (örygginu, vitið er hinsvegar í vörslu lögreglunnar í tapað/fundið)

Að lokum hefur ótrúlegasta fólk fundið ættartengsl við mig í gegnum Íslendingabók og ég sé ekki fram á að geta byrjað að rukka fyrir tímaferðir fyrr en eftir 100 ár, sem er einmitt ástæðan fyrir því að ég er farin... hundrað ár fram í tímann. Bæjó. toungue

Nr. 5 | posted by: anna | 1.07.2003 | 17:37:36 | [+] |

Ég er komin aftur. Ég er allt of dysfunctional til að lifa í svona fullkomnum heimi.

Tímavélar eru á árinu 2104 eins og uppþvottavélar á árinu 2004. Þeir sem hafa það gott eiga þær. Enn eitt atvinnutækifærið farið í súginn... sad

Nr. 6 | posted by: anna | 1.07.2003 | 17:49:07 | [+] |

Ég hygg að það hafi verið Terry Pratchet sem sagði að helsti gallinn við að vera trúleysingi væri sá að maður getur ekki bölvað ef maður slær á puttana á sér.

Ef maður trúir ekki á guð trúir maður varla heldur á djöfulinn og getur því ekki ákallað hann þegar mikið liggur við.

Terry er stundum snjall.

Og það er rétt hjá þér við erum ekki komin af öpum, reyndar hefur aldrei neinn haldið því fram nema einhverjir dysfunctional trúarofstækismenn sem er á móti þróunarkenningunni.

Ég hef reyndar ekki trú á því að við séum komin af froskum, nema auðvitað einstaka kóngafólk, en við erum svosem komin af sömu amöbunum og froskar, en það er lengra aftur en Íslendingabók nær.

Má ekki vera að þessu, so long and thanks for all the fish.

Nr. 7 | posted by: beggi dot com | 1.07.2003 | 18:20:40 | [+] |

Thanks for all the fish?

Nr. 8 | posted by: anna | 1.07.2003 | 18:29:14 | [+] |

Hefurðu ekki lesið Douglas Adamsspeechless

Nr. 9 | posted by: beggi dot com | 1.07.2003 | 18:37:31 | [+] |

Nei maður! Gefðu mér upp titil svo ég geti náð mér í þetta á bókasafninu. Mig vantar nýtt efni.

Nr. 10 | posted by: anna | 1.07.2003 | 18:39:57 | [+] |

Ahhh... the hitch guide. Best ég lesi hann í eitt skipti fyrir öll. Get varla verið þekkt fyrir að humma það lengur af mér.

Ég efast ekki um að þetta efni sé to my liking.. wink

Nr. 11 | posted by: anna | 1.07.2003 | 19:29:35 | [+] |

Trúarbrögðin eru einfaldlega mismunandi vörur sem fundnar hafa verið upp til að uppfylla þörf. Þörfina fyrir að trúa.

Þetta er ekki ósvipað og þörfin fyrir hreyfanleika. Þess vegna var hjólið og síðar bíllinn fundinn upp. Þeir sem hafa mikla þörf fyrir hreyfanleika kaupa sér bíl. Aðrir fara í strætó, sumir hjóla, einhverjir labba.

Þetta er nú ekki flóknara en þetta. Hin mismunandi trúarbrögð eru mismunandi vörumerki. Sum hafa náð meiri markaðshlutdeild en önnur. Þurfa ekki endilega að vera betri en hafa augljóslega náð betri árangri. Og alltaf eru að koma ný vörumerki fram á sjónarsviðið.

Þú segir siðferði. Afhverju er það í tísku að segja að siðferði íslendinga sé á lágu plani? Hafa einhverjar rannsóknir verið gerðar á því? Er viðskiptasiðferði á Íslandi eitthvað verra en annað almennt siðferði?

Er það ekki fólk sem stundar viðskipti? Þetta er bara venjulegt fólk, eins og ég og þú. Það reynir bara svo sjaldan á siðferðið svo skipti einhverju máli nema viðkomandi sé t.d. í viðskiptum, stjórnmálum og því verður það mjög sýnilegt þegar siðferðirbrestir verða á þeim vettvangi.

Er þetta ekki bara eintóm helvítis hræsni í fólki þegar það hópast út á götur (netið) og vandlætingin vellur út úr því og síðan um leið og það kemst sjálft að þá myndi þetta sama fólk ekki hika við að láta reyna á gráa svæði siðferðisins. Voðalega hræddur um það.

Nr. 12 | posted by: igor | 1.07.2003 | 22:56:06 | [+] |

Sorry. Ýtti tvisvar á enter.

Nr. 13 | posted by: igor | 1.07.2003 | 22:57:13 | [+] |

hah! Það er ekkert sem GUÐ getur ekki lagað wink

Auðvitað er þetta hræsni í mér. Ég er ekki barnanna best. Sást best í Tívólíinu þegar gleymdist að rukka mig fyrir eina ferðina leiðrétti ég það ekki. Partly vegna þess að ég fattaði það ekki sjálf fyrr en ég var komin langt frá tækinu. Þá fannst mér málið fyrnt. hehehe EN ég á það hinsvegar til að leiðrétta fólk með svona lagað og þá þoli ég ekki þegar mér er ekki þakkað (eins og guð).

Besta dæmið er þegar ég borgaði pizzu með fimmþúsundkalli, fékk til baka þrjú þúsund og eitthvað en gæinn tók aldrei fimmarann. Skildi hann eftir á borðinu við hurðina. Ég hringdi á pizzustaðinn og lét vita, gæinn kom og hrifsaði peninginn úr hendinni á mér og sagði ekki svo mikið sem "takk herfa" við mig! Djöfull sá ég eftir að hafa leiðrétt það.

Ég tek nú samt bara dæmi um Íslendinga vegna þess að ég þekki ekki hvernig þetta gengur fyrir sig annarstaðar en á Íslandi. Sjálfsagt er þetta allt sama tóbakið líka þar.

Ég held hinsvegar að fólk hafi ekki fundið upp trúarbrögð. Ég held að þetta sé mannskepnunni eðlislægt. Ef ég stofna trúarflokk, get ég stólað á þig sem meðlim? Kostar ekkert, engir fundir og engar reglur. Þú trúir því sem þú vilt. smile

Ég ætla t.d. að trúa því að ég geti hætt að reykja og að ég muni verða 96 ára.

Finnst þér skriftarstóllinn ekkert sniðug hugmynd? Djö.. ég sem ætlaði að bjóða mig fram í nefnd til að bæta þjónustu kirkjunnar...

Nr. 14 | posted by: anna | 1.07.2003 | 23:39:12 | [+] |
post a comment


Muna upplýsingar?












smilie winky colgate happy boogie toungue wahahahaha

angel embarassed doubt silent sad guilty shy sour

hmmm evil gnasher sick drunk what cool wave

weepy melodramatic nerd clown chococat nightmare pirate








Tell me, yes or no.








recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web