www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
No hope
Föstudagur, 13. júní 2003

Ég rankaði skyndilega við mér áðan stödd á myndasíðu hjá manneskju sem ég þekki ekki neitt, búin að fletta í gegnum nánast allt albúmið hennar. Þekkti engan.

Er líf mitt orðið svona ömurlegt að þegar ég kem heim til mín á föstudegi fer ég að surfa myndaalbúm ókunnugs fólks? Ég var að hugsa um það af hverju ég myndi taka myndir ef ég ætti digital myndavél. Ég myndi byrja á að taka mynd af klósettinu mínu. Jafnvel nota þrífótinn og taka mynd af mér á því... "Anna að teygja sig í klósettpappír".

Mér dettur ekkert annað í hug sem mig langar að taka mynd af. Allavega ekki fyrir netið. Ég myndi taka ógrynni af myndum af krökkunum mínum.

Well. Best að fara að ræða við hana Betty Crocker og vippa upp einni köku með súkkulaði kremi og smarties skrauti eins og Doddi bað sérstaklega um.


| anna | 17:22 |
comments

Anna:
Come on, ég veit af hverju þú myndir taka myndir ef þú ættir digital- myndavél.

Manstu: Anna við bílinn, Anna á bak við tré, eða öfugt eða í kross, mitt minni er brigðult (en þú minntist ekkert á "Anna að teygja sig eftir klósettpappír" við mig, er eitthvað um þig sem ég veit ekki ???)

S.s. þú hefur full not fyrir digital myndavél. Skil hreinlega ekki hvernig þú hefur lifað án þessa þarfaTÓLS hingað til !!!

doubt

Nr. 1 | posted by: Harpa | 14.06.2003 | 0:01:54 | [+] |

Jú auðvitað myndi ég taka fullt af myndum af mér. Það var: "Anna *á bak við* bíl." og "Anna inní þessu húsi* og svoleiðis.

Ég get ekki lifað án þessa þarfatóls. Ég er að missa vitið.

Nr. 2 | posted by: anna | 14.06.2003 | 10:13:17 | [+] |


recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web