www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
mánaðarmót.. tímamót
Sunnudagur, 01. júní 2003

Ég ætlaði að lýsa hörmulegu kvöldi mínu í Viðeyjarstofu þegar ég kæmi heim. Aðrir atburðir hafa hinsvegar sett mig úr jafnvægi.. hence the short version.

Ég mætti ég með 11 manna hóp.. okkur var vísað til sætis.. rúmum tveimur klukkutímum seinna kom ein úr hópnum með fordrykkina, sem hún fann á barnum, á bakka. Minn drykkur leit út eins og piss enda allir klakar bráðnaðir og gos farið.

Til allrar lukku var brúðkaup í Viðey í dag og aukaferðir til og frá landi. Við mættum klukkan 19:40 og fórum til meginlandsins klukkan 21:45 án þess svo mikið að hafa fengið fordrykk hvað þá eitthvað að borða.

Vildi svo heppilega til að ein af hópnum vinnur á Naustinu og gat komið okkur að í mat þar, ellefu manns.. enginn fyrirvari. Naustið á hrós skilið.

Kvöldið byrjaði illa og endaði... endanlega.


| anna | 4:19 |
comments

Alan þykir ákaflega leitt að lesa þetta. Einkum það sem stendur á milli línanna - vona að ég skilji það ekki rétt. silent

Nr. 1 | posted by: AlanHudson | 1.06.2003 | 16:26:57 | [+] |

eðlumaðurinn með klofnu tunguna togar fast, snærið er búið af keflinu, og ég get ekki gefið meiri slaka... það er hinsvegar ekki slitnað... ennþá.

Hope springs eternal?

Nr. 2 | posted by: anna | 1.06.2003 | 17:09:37 | [+] |

Mannlegt eðli er harður húsbóndi.

Nr. 3 | posted by: AlanHudson | 1.06.2003 | 17:16:31 | [+] |

Hvernig ferðu að þessu Alan, trekk í trekk.. kemur með eitthvað sem gerir mig kjaftstopp.

Vill til að ég veit ekkert um mannlegt eðli, verandi köttur, but I'm willing to learn.

Annars var ég að tala um eðlumann. Hafa eðlumenn mannlegt eðli? Fylgir eðlið mann-hlutanum? Hvar á mannlegt eðli upptök sín? Er bara eitt mannlegt eðli eða eru þau mörg? Eru þau t.d. mis-mikið mannleg? Hefur þetta með steríótýpurnar sjö að gera? Eða var það slæðudans? Eru konur með mannlegt eðli eða kvenlegt eðli? Og ef svo er.. er mikill munur á? Fæðist maður með mannlegt eðli eða verður það manni eðlislægt með tímanum? Er hægt að fara á námskeið?

Nr. 4 | posted by: anna | 1.06.2003 | 18:04:25 | [+] |

Anna þú ert nú alveg óborganleg!
Ég býð spennt eftir að fara með þér í heimspekina. Þú átt eftir að gera kennarann alveg snar....
[biggrin]

Nr. 5 | posted by: Harpa | 1.06.2003 | 18:44:39 | [+] |

sjís.. heldurðu það? Kannski ef ég vanda mig wink

Nr. 6 | posted by: anna | 1.06.2003 | 18:52:57 | [+] |

christ! Ég er græn!

Nr. 7 | posted by: anna | 1.06.2003 | 18:56:37 | [+] |

Anna:
Geimverur hafa gert þig græna.... ég hef bergmann sterklega grunaðan. Nei annars, ekki hann. Hann myndi aldrei standa fyrir því vegna þess að henn veit að mér finnst lituðu karlarnir flottari en þeir gulu. Hann hefur aldrei staðið fyrir neinu sem mér líkar. Könnum málið þegar við tékkum á smárunum í sumar wink

Nr. 8 | posted by: Harpa | 1.06.2003 | 21:01:56 | [+] |

Tí hí minn er líka grænntoungue

Nr. 9 | posted by: Harpa | 1.06.2003 | 21:03:10 | [+] |

Ég vil ekki rassskella. Man hvað mér fannst það vont! [weteyes]

Þó ég hafi dottið úr gír augnablik mun ég halda mínu striki, bulla og röfla tilgangslaust dægurlaga bull um rassgatið á sjálfri mér og klósettpappírinn sem ég nota til að skeina mér. (Lambi, fæst á betri Essó stöðvum) wink

Nr. 10 | posted by: anna | 2.06.2003 | 0:05:35 | [+] |

aha.. datt í hug að þessi væri gulur líka...

Nr. 11 | posted by: anna | 2.06.2003 | 0:05:55 | [+] |

You are just too nice. Það má aldrei rassskella börn, en það er open season á óþekka fullorðna. Hegningar eru nauðsynlegar.

Nr. 12 | posted by: organistinn | 2.06.2003 | 0:53:55 | [+] |

Double that... as long as I am not the subject!

Nr. 13 | posted by: AlanHudson | 2.06.2003 | 1:23:44 | [+] |

Í NYT í dag er grein (http://www.nytimes.com/2003/06/01/arts/television/01OBST.html) um nýja þáttaröð sem er að byrja á Showtime. Lítur mjög vel út og borðleggjandi að aðlaga þennan þátt um lífið í Hollywood yfir á vesturbæinn í Reykjavík. Blogg í stað screenwriting. Felicity Hoffmann semTóti, Eric Stoltz sem Anna, og stelpurnar sem vilja sofa hjá Eric Stoltz sem Organistinn, Loki, TC og Alan.

Ég verð að horfa á þetta á spólum. Er Showtime á klakanum?

Nr. 14 | posted by: organistinn | 2.06.2003 | 5:16:46 | [+] |

Nei helv. Showtime er ekki á klakanum. Það eru hinsvegar nokkrar framúrstefnulegar vídeóleigur hérna sem maður getur vonandi leigt þetta eðalefni hjá.

Á sama tíma er ömurð að fatta að maður er ekki meira unique en baunadós frá heinz, svipaða upplifun getur maður fengið með því að lesa random sjálfshjálparbók um co-dependence.

Það sem ég skil ekki er hvernig ég hef getað misst af þessari hot gellu í sundlauginni... best að taka fram kíkinn og skoða stemminguna í vesturbæjarlauginni. Skilst að kjötmarkaðurinn sé dauður hvort eð er og það sem bætist á hann.. er ekki á hann bætandi.. Nú er bara eftir að kynna sér hvað femínismi er.. hver veit nema maður finni góða konu með hring í naflanum sem er til í að koma með manni í sund innan þeirra samtaka...

Nr. 15 | posted by: anna | 2.06.2003 | 12:44:33 | [+] |
post a comment


Muna upplýsingar?












smilie winky colgate happy boogie toungue wahahahaha

angel embarassed doubt silent sad guilty shy sour

hmmm evil gnasher sick drunk what cool wave

weepy melodramatic nerd clown chococat nightmare pirate








Tell me, yes or no.








recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web