www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
MAMMA MIA
Fimmtudagur, 12. júní 2003

Að lesa Píkutorfuna er mögnuð upplifun og ég tek til baka allt sem ég hef sagt um femínista þar sem þau ummæli voru byggð á ignorance.

Ég las þangað til ég gat ekki meira, varð rosalega reið. Alveg öskurreið. Svo varð ég bitur og að lokum fann ég djúpstætt hatur á öllu karlkyns í heiminum og langaði að útrýma því. Neee.. bara djók. Varð bara öskurreið. Svo varð ég þreytt.. sofnaði og fékk femíniska martröð... sem ég ætla ekki að útlista hér... en það var magnað.

Það er ekki nokkur spurning. Ég er femínisti.


| anna | 7:29 |
comments

Einn týndur sauður er fundinn. Því ber að fagna.wink

Nr. 1 | posted by: Tóta pönk | 12.06.2003 | 10:52:03 | [+] |

Ég gaf Auði litlu frænku minni Píkutorfuna í jólagjöf þegar hún var 13 ára af því að Þórunn Hrefna sagði að hún vildi að hún hefði lesið hana sem barn, því þá væri líf hennar öðru vísi. Ég tók hana á orðinu því heimurinn rúmar aðeins eina Þórunni Hrefnu

Nr. 2 | posted by: ingolfur juliusson | 12.06.2003 | 11:03:38 | [+] |

Ég þarf greinilega að verða mér úti um Torfuna!!
Trúboð Tótu pönk ætlar engan endi að takacool

Nr. 3 | posted by: Harpa | 12.06.2003 | 12:02:12 | [+] |

Ég var að lesa hjá þér skrifin um femínisma og skrifin hjá Þórunni H. um litað hár og grátt hár.

Ég er sammála og ósammála.

Sammála því að Þórunn á að hafa hárið á sér á litinn eins og henni sýnist. Punktur.

Ósammála því að þetta hafi eitthvað með feminisma að gera. Þetta heitir á venjulegu máli í besta falli afskiptasemi og í versta falli stjórnsemi. Þetta er einhver ótrúleg hvöt/árátta hjá fólki að skipta sér af því sem því kemur ekki við. Þeir sem eru gráhærðir eru hvattir í tíð og ótíma að lita á sér hárið. Þeir sem eru ógiftir eru hvattir til þess í tíma og ótíma að gifta sig. Þeir sem eru barnlausir eru..., þeir sem eru sköllóttir eru spurðir hvort þeir geti ekki gert eitthvað í þessu, þeir sem eru að verða fertugir eru sífellt spurðir að því hvort þeir ætli ekki að fara að bjóða í afmælið, o.s.frv., o.s.frv.

En hvernig gæti þessi ruglingur við feminsma hafa orðið? Ein tilgátan gengur út á það að það er nánast eingöngu konur sem láta svona. Hvenær myndi karlmaður spyrja hvort maður ætlaði að fara að lita á sér hárið, eða fjölga í heiminum, eða gera eitthvað í skallanum, eða fara að gifta sig, o.s.frv.

Nei, eingöngu kvenfólk dettur í hug að spyrja svona spurninga. Ergó, feminsimi? Varla.

Igor Brezinski

Nr. 4 | posted by: Igor | 12.06.2003 | 23:55:25 | [+] |

Já. Ég er sammála þér með háralitinn. Það segir mér engin að lita á mér hárið og ég geri það samt. Er ekki einusinni gráhærð! Kannski er það vegna þess að ég er nýjungagjörn og/eða þrái tilbreytingu.

Mér finnst reyndar hæpið að fullyrða að konur myndu eingöngu spyrja svona spurninga. Ég þekki karlmenn sem ég hreinlega flokka sem kjafta-kalla. Af því að þeir eru það. Það skiptir hinsvegar engu máli því þetta er næstum allt hægt að flokka undir afskiptasemi eins og þú bendir svo réttilega á. Kannski þarf Þórunn bara að setja fólkinu sínu mörk. Flippa ærlega út á þetta lið og gera því grein fyrir því að þetta hár verði aldrei litað! Maður veit ekki.

Spurningin er: Ert þú sammála því að konur séu jafn gildir þjóðfélagsþegnar og karlmenn?

Held að það sem mér hefur alltaf fundist fráhrindandi er hvað femínistar virðast reiðir. Ekki það.. skil alveg að femínistar séu reiðir. Ég er það líka. Og væri ég að nota blogger væri ég fokking furious!

Það er bara.. Temper's the one thing you can't get rid of, by losing it... svo ég kvóti nú anger management.

At the risk of being flamed held ég að femínistar gætu haft gott af smá "andlitslyftingu" sem er auðvitað fyndið þar sem femínismi sponsar varla svoleiðis aðgerðir in real life. If you can't beat 'em join 'em. Femínistar ættu að skapa sér jákvæðari ímynd, ná athygli unga fólksins, bæði strákum og stelpum, kenna þeim að virða hvort annað og uppræta þannig reiðina. Mér finnst stígamót vera búin að finna sér farveg í þessum klikkaða heimi með bolunum sem þær eru með. Það er góð byrjun.

Nr. 5 | posted by: anna | 13.06.2003 | 0:48:04 | [+] |

Verst að ég get ekki litað mitt þar sem ég hef ekkert - eða lítið allavega og sennilega grátt ef maður hefti ekki útbreiðslu þess viljandi.

Ég þekki konur sem spyrja svona en enga karla. Eða kannski réttara að ég hef ekki heyrt þá karla sem ég þekki spyrja svona. Getur vel verið að þeir séu í raun "laumu" kjaftakallar einhverjir af þeim. Skal ekki útiloka það.

En bottom line; Þetta er ekkert annað en Afskiptasemi.

Svarið við spurningunni er; AUÐVITAÐ. Konur og karlar eru einstaklingar og eiga að hafa jafnan rétt. Annað er heimskulegt.

Ég er algerlega sammála með þér varðandi reiðina. En kannski mátti færa rök fyrir því að það hafi verið nauðsynlegt á sínum tíma. Reiðin getur verið ansi máttug en hún getur líka snúist upp í andhverfu sína. En þetta er eins og með allt. Maður má ekki staðna og þarf að þróast. Nú þegar mjög margt hefur áunnist í þessari baráttu þarf að endurskoða sig, fá "andlitslyftingu" eins og þú segir.

Igor

Nr. 6 | posted by: Igor | 13.06.2003 | 1:47:42 | [+] |


recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web