www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
Hann á afmæli í dag
Sunnudagur, 22. júní 2003

Doddi er fimm ára í dag.

Ég talaði við mömmu áðan og hún sagði mér að krakkarnir væru búin að vera frábær, sem kemur mér ekki á óvart, og að hún myndi koma með þau heim um kaffileytið.

Af því að krakkarnir voru að fara í útilegu ákváðum við að halda afmælið hans Dodda næstu helgi en ég fór samt áðan og keypti smarties og er búin að baka köku sem er með vanillukremi öðru megin og súkkulaði hinu megin og smarties ofaná. Á maður ekki alltaf að fá köku á afmælinu sínu? Mér finnst það.

Annars er Doddi sallarólegur yfir þessu og hálf fúll yfir að vera bara fimm ára. Hann vill vera sjö. Snemma byrjar það.

Ég verð 32 í ágúst. Ég hef ekki logið um aldur síðan ég varð tvítug og þurfti ekki að plata dyraverði til að hleypa mér inn á skemmtistaði. Mér var hinsvegar hent út af skemmtistað með valdi 26 ára gamalli af því að ég hafði ekki skilríki. "Það er no fokking way að þú sért orðin tvítug" sagði dyravörðurinn þegar hann hálf grýtti mér út. Ég var brjáluð og vinir mínir stunned. Annars hefur aldur minn aldrei valdið mér hugarangri og oftast man ég ekki hvað ég er gömul.

Ég lenti einu sinni í slembiúrtaki hjá Gallup og svaraði einhverjum asnalegum spurningum. Í lokin spurði konan mig: "Hvað ertu gömul?"

Nú voru góð ráð dýr. Ég hafði ekki hugmynd um það. Ég var annaðhvort 26 eða 27 og jafnvel 28. Ég hefði getað giskað en fannst það asnalegt ef hún vissi hvað ég væri gömul og væri að kanna hvort konur segðu satt um aldur sinn. Ég taldi mig hafa leyst málið þegar ég sagði: "Ég er fædd 71".
-"Og hvað ertu þá gömul" spurði helvítis konan. Ég fór að svitna og reyna að muna hvaða ár var.. og mundi það ekki. Enda hefði það ekki komið að neinu gagni. Ég kann ekki að reikna. Svo ég sagði við konuna: "Veistu það að ég bara kann ekki að reikna út hvað ég er gömul og ef ég á að vera hreinskilin við þig þá er ég bara búin að steingleyma því". Það kom löng þögn en svo sagði þessi ágæta kona hálf klökk: "Mikið rosalega ert þú heppin". Þar með var þessi könnun búin. Ég spurði Tóta þegar hann kom heim hvað ég væri gömul og hann sagði mér að ég væri 27. I took his word for it.

Ég er að ljúga. Ég laug til um aldur þegar ég var 29 ára. Ég sleppti því að vera 29 og fór beint í 30. Var þrítug í tvö ár. Mér fannst það betra en að vera 29 ára í 5 - 10 ár.

Það er skrítið vegna þess að ég hef ekki heyrt um að konur séu 39 ára í svona mörg ár. Af hverju ætli það sé?

Annars held ég að ég líti út fyrir að vera 31 að verða 32. Og finnst það ekkert verra. Næsti "flotti" aldur finnst mér vera 34.. og hef ekki hugmynd um af hverju.


| anna | 14:06 |
comments

Til hamingju með stóra strákinn þinncool

Nr. 1 | posted by: Harpa | 22.06.2003 | 15:38:57 | [+] |

Takk fyrir Harpa!

Doddi fékk litla Legó öskju í afmælisgjöf frá foreldrunum. Þegar hann var búin að leika sér að þeim í heillangan tíma kom hann til mín til að fá meiri köku. Þegar hann var að borða hana sagði hann: "Mamma, ég er mjög ánægður með gjöfina mína".

Ég er búin að fá lánað tjald fyrir ferðina til þín! cool

Nr. 2 | posted by: anna | 22.06.2003 | 19:18:23 | [+] |

Vertu fegin að öldrun er ekki námsgrein...
....þú myndir falla !

Nr. 3 | posted by: Dorinn | 22.06.2003 | 19:39:34 | [+] |

Þegar ég var krakki í sveitinni þá var kall þar sem hafði að máltæki ,,betra er seint en snemma", í anda þessa míns framliðna sveitunga ætla ég nú, þótt seint sé, að óska þér til hamingju með drenginn.wink

Ég er algjörlega sammála þér í því að maður á að fá köku á afmælinu sínu.[eyebrows]

Hef verið að velta fyrir mér hvort ég hafi nokkurn tíma logið til um aldur, svona beint altsvo. Áður en ég var tvítugur var ég oftlega með alskegg og slapp iðulega þannig í Ríkið og inn á skemmtistaði, án þess að þurfa að tjá mig um aldur. Man að einverntíma skömmu eftir að ég varð tvítugur þá lennti ég í því að vera ekki hleypt inn í Klúbbinn. Ég hafði gleymt veskinu mínu heima og gat því ekki fært sönnur á aldur minn. Skondið í ljósi þess að ég hafði verið meira og minna fastagestur á staðnum í tvö ár eða svo.

Síðast þegar ég var beðinn um skilríki var í Ríkinu þegar ég var um þrítugt. Ég þakkaði afgreiðslumanninum kærlega fyrir, og sýndi honum síðan persónuskilríki, einhverra hluta vegna varð hann hálf aulalegur þegar hann sá hvað ég var gamall.[shades]

Nr. 4 | posted by: beggi dot com | 23.06.2003 | 23:36:37 | [+] |

sjís.. þegar ég varð tvítug vaknaði ég og fór beint í ríkið. Ég var *ekki* spurð um skilríki og var í fýlu í tvö ár á eftir. Aðallega út í sjálfa mig fyrir að hafa aldrei reynt að versla í ríkinu áður...

Nr. 5 | posted by: anna | 23.06.2003 | 23:44:40 | [+] |


recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web