www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
Down in the dumps
Sunnudagur, 08. júní 2003

Hindsight is like foresight only without a future.

Þegar maður er down in the dumps þá þarf svo lítið til að vera sigurvegari. Að vakna á morgnanna, taka lýsið sitt, vera góður við börnin, fara í bað...

Ég er búin að blogga rosalega mikið um helgina. "Úttala" mig um ýmis mál. Ekkert af því birtingarhæft. Mér finnst það ekki þjóna neinum tilgangi að bera sál sína á Internetinu þegar manni líður svona illa. Fyrir utan að það myndi sjálfsagt boost the ratings og gera mér kleyft að selja auglýsingar út á my misery. Finnst það hálf morkið allt saman. Jafn morkið og að standa frammi fyrir því að áfengið vann. Morkið to say the least.

Mér er engin vorkun. Ég hefði átt að setja mörkin miklu fyrr eða átta mig á að það mun aldrei neitt gerast. Status quo er það besta sem manni er boðið og það er bara ekki nóg.

Ég veit ekki hvað maður gerir í ástarsorg. Það er svo langt síðan. Ég á eftir að spjara mig. Ég er bara ekki ennþá búin að sjá hvað maður gerir. Þar til ég fatta það held ég áfram að vakna á morgnanna, taka lýsið, vera góð við börnin og fara í bað.


| anna | 11:44 |
comments

Gott hjá þér að taka lýsi.
Það vinnur vel með kókinu cool

Nr. 1 | posted by: Harpa | 8.06.2003 | 16:56:12 | [+] |

Er hætt að drekka kók. Komin í vatnið...

Nr. 2 | posted by: anna | 8.06.2003 | 17:16:08 | [+] |

[weteyes]
Þú átt alla mína samúð

Nr. 3 | posted by: Tóta pönk | 9.06.2003 | 2:26:53 | [+] |


recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web