www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
blessað lýsið...
Mánudagur, 09. júní 2003

Vaknaði snemma og tók lýsið mitt. Síðan ég gerði það er ég búin að þvo þvott, þrífa eldhúsið, stofuna, bílinn og fara í Húsdýra- og fjölskyldugarðinn með krakkana. Ég held að þetta sé bara lýsið.

Við sáum öll dýrin. Rosalega gaman. Nei.. við sáum ekkert öll dýrin. Djöfull lýg ég! Við leituðum að svínunum og beljunum en fundum ekkert. Hugsuðum.. what the hell.. sjáum þau seinna og valhoppuðum yfir í fjölskyldugarð þar sem við grilluðum pulsu og drukkum svala.

Ég held ég hafi aldrei verið svona lengi í fjölskyldugarðinum í einni lotu. Við enduðum á ferð í kókópöffs lestinni og sáum öll dýrin úr lestinni. Ég mæli með Lucky Charms vagninum.


| anna | 17:05 |
comments

Er storkurinn Styrmir þarna ennþá?

Organistinn barðist skelegglega fyrir björgun hans á Innherjum. Löngu áður en DO fékk áhuga á verkefninu. Það væri sérlega ánægjulegt ef anna-punktur-is og Sopranobörnin hefðu náð að sjá Styrmi. Annars ætti nú að vera kominn tími til að senda hann til útlanda.

Nr. 1 | posted by: Organistinn | 9.06.2003 | 21:26:04 | [+] |

Enginn storkur í húsdýragarðinum?

Ef í húsdýragarðinum hefur aldrei verið storkur nefndur Styrmir, þá hefur Organistinn haft draum sem runnið hefur inní raunveruleika hans. Gæti svo sem vel verið, slíkt kemur fyrir fólk sem situr á grindverkinu milli raunveruleika og fantasíu.

Eða ertu bara að gera grín að Oganistanum?

Nr. 2 | posted by: Organistinn | 9.06.2003 | 23:12:18 | [+] |

Ég geri ekki grín að Organistanum. Ég veit bara ekki hvort það var Storkur í húsdýragarðinum eða ekki og því síður veit ég hvað hann heitir. Ég sá nýfæddan sel í dag og man ekki hvað hann heitir. Ég átti líka einusinni kærasta og man ekki hvað hann heitir. Sem er rassgat því ég á soda stream tæki hjá honum.

Það var náttúrlega týpískt að við sáum engan stork og nú þarf ég að fara aftur næstu helgi til að leita að honum! Ég man bara eftir svan á tjörninni sem tók ástfóstri við einhverja stelpu (segir maður svan eða svani?). Ég er líka skammarlega lítið inn í dýramálum borgarinnar. Þarf að laga það eitthvað.

Mér þykir Organistinn óhugnarlega vel að sér í þessum málum. Hvað veldur?

Nr. 3 | posted by: anna | 9.06.2003 | 23:35:47 | [+] |

Ef ég man rétt sá eitthvað um Styrmi stork á Mbl um daginn, gott ef hann var ekki eitthvað lasinn greyið. Íslendingar sem eiga að vera að læra undir próf eða ljúka verkefnum lesa allt sem kemur á Mbl.[shades]

Nr. 4 | posted by: beggi dot com | 10.06.2003 | 0:18:00 | [+] |

Anna:

Íslenskir fjölmiðlar, sérlega Mogginn, eru fullir af fréttum af dýralífi. Þetta er miklu meira en gengur og gerist meðal fjölmiðla almennt í heiminum. Organistinn hefur spáð í málið og komist að þeirri niðurstöðu að þetta sé til að draga athygli óbreyttra borgara frá arðráni fjármagnsaflanna í íslensku samfélagi.

Ég veit að Anna-punktur-is er í þannig hugarástandi að hún gefur ekki mikið fyrir sentiment Organistans, en honum fannst það óbærileg hugsun að storkur á austfjörðum frysi í hel fyrir augum lesenda Moggans. Kannski er auðveldara að láta sér þykja vænt um dýr en menn? A.m.k. virðist mér að enginn fái meiri ást á heimili Organistans en hvolpurinn Loki.

Nr. 5 | posted by: Organistinn | 10.06.2003 | 1:23:03 | [+] |

Innlent| 10.6.2003 | 12:19
Storkurinn Styrmir að braggast
Storkurinn Styrmir hefur verið að hressast óðum síðustu daga. Hann átti við veikindi að stríða um tíma, en eftir hafa fengið bað og fjölbreyttari fæðu hefur hann verið hinn sprækasti sammvæmt upplýsingum frá Fjölskyldu- og húsdýragarðinum.

Þetta er af mbl.is ....fannst þetta þurfa að koma fram...

Nr. 6 | posted by: Dorinn | 10.06.2003 | 13:57:12 | [+] |

Ég les hvorki Moggann né mbl.is. Ég er greinilega að missa af öllu bara...

Nr. 7 | posted by: anna | 10.06.2003 | 14:23:42 | [+] |

Storkurinn Styrmir er i Frettabladinu i dag.wink

Sorry engir islenskir stafir.embarassed

Nr. 8 | posted by: beggi dot com | 11.06.2003 | 9:02:25 | [+] |

Þessi storkur er.. mmm..við sáum stork. Djöfullinn sjálfur! Ég held að ég hafi verið að búa til minningu rétt í þessu! Mér finnst eins og ég hafi séð stork sem stóð á einum fæti í húsdýragarðinum! Magnað...

Nr. 9 | posted by: anna | 11.06.2003 | 9:52:33 | [+] |


recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web