www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
Based on a true story
Miðvikudagur, 18. júní 2003

Þegar ég tek mér mynd á leigu getur ein lítil setning orðið til þess að ég veit að ég mun horfa á myndina til enda.
Setningin er: Based on a true story.

Ég veit ekki af hverju en ég er true-story junky. Í ófá skipti hef ég dottið inn í mynd þegar ég hef verið að channel-hoppa á remótinu bara af því að ég sá þessa setningu á skjánum. Meirihluti þeirra mynda sem ég hef séð nánast eingöngu út af þessari setningu eru crap, og ég veit það.

Ég veit líka að sögunni er oft breytt, jafnvel dramatiseruð til að gera hana æsilegri og líklegri til að hala inn peninga. Ég hef hinsvegar alltaf reiknað með því að megin inntak sögunnar sé byggt á raunverulegum atburðum.

Ég sá myndina Behind Enemy Lines frá árinu 2001 fyrir nokkru síðan. Í júní árið 1995 var F-16 vél bandaríska hersins skotin niður suður af Bosníu. Kapteinn Scott F. O'Grady lifði á pöddum í sex daga áður en herinn gat bjargað honum. Myndin Behind Enemy Lines á að vera byggð á þessum atburðum.

Ég hélt að ég væri að fara að horfa á sex daga útgáfu af Róbinson Krúsó en þegar ég var búin að horfa á myndina áttaði ég mig á því að stundum er rosalega lítið af innihaldi bíómyndarinnar byggt á sannsögulegum atburðum. Eins og í þessari mynd. Jú, F-16 vél var skotin niður. Flugmaðurinn hrapaði til jarðar, behind enemy lines, og var sóttur sex dögum seinna. That's it.

Sama ár í Þýskalandi var gerð mynd sem er líka byggð á sannsögulegum atburðum og heitir Das Experiment. Hún er um sálfræðitilraun sem gerð var í bandaríkjunum árið 1971. Myndin er vægast sagt mjög ógeðsleg og maður á bágt með að trúa að þetta hafi í raun og veru gerst. Það kom mér þessvegna mikið á óvart þegar ég fann heimasíðu sem er tileinkuð þessari tilraun því ég komst að því að líklega er nánast allt sem gerist í myndinni, fram að síðustu 10 mínútunum, byggt á atburðum sem gerðust í raun og veru. Það er magnað.

Ég hefði alveg rosalega gaman af því að sjá Das Experiment í bandarísku útgáfunni. Ef hún verður þá einhvertíman búin til.


| anna | 23:03 |
comments

Þetta var ekki F-16, men F-18 Hornet sem var talað um í myndinni.
Ég er nörd
Ég er nörd
Ég er nörd
Hjááálp!

Nr. 1 | posted by: Ingólfur Júlíusson | 20.06.2003 | 14:35:42 | [+] |

Þar hafi þið það. Þeir höfðu ekki einusinni flugvélategundina rétta í bíómyndinni.

Nr. 2 | posted by: anna | 20.06.2003 | 15:12:58 | [+] |

En F-16 sem Kapteinn O'Grady flaug.

Nr. 3 | posted by: beggi dot comv | 20.06.2003 | 15:14:03 | [+] |

Svakalega erum vid samtaka [biggrin]

Nr. 4 | posted by: beggi dot comv | 20.06.2003 | 15:15:11 | [+] |

Þokkalega! smile

Nr. 5 | posted by: anna | 20.06.2003 | 15:16:26 | [+] |

Eini Kapteininn sem flýgur með mér er Kaptein Morgan og við höfum oft haft það helv.... gott saman.

F- 16 eða F-18, who cares cool

Nr. 6 | posted by: Harpa | 20.06.2003 | 21:18:27 | [+] |

Stóð ekki í trailernum af Silent Movie. ,,This was a true story", segir allt sem segja þarf um ,,based on a true story" myndir. Das Experiment hljómar hins vegar áhugaverð, þar sem tilraunin var mjög athyglisverð, svo ekki sé meira sagt.

Nr. 7 | posted by: beggi dot com | 20.06.2003 | 21:32:38 | [+] |

Aha.. en það er stór munur á "This is a true story" og "Based on a true story".

Nr. 8 | posted by: anna | 21.06.2003 | 0:51:13 | [+] |


recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web