www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
Barry Manilow
Fimmtudagur, 05. júní 2003

Þessi frétt er snilld.


| anna | 2:07 |
comments

Svo Copacabana greifinn þarf að fá sér nýtt nós-djobb; ekki vænlegt að heyra hann nefmæltan syngja "...she was a showgirl.......".

Afsökunin slær öll met. Er viss um að hann sé staurblankur, vanti smá PR og sé að reyna koma skilaboðum til lánardrottna að hann eigi mörg hús. PUuuuuuuuhhhhhhhhhhhh...............!

Gott að brosa til sjoppukellingarinnar. Stundum þarf svo lítið til að gera öðrum gott - og sjálfum sér í leiðnni.smile

Nr. 1 | posted by: Tony Clifton | 5.06.2003 | 4:16:36 | [+] |

Ég er í kasti. ...she was a showgirl.. nefmæltur! Ég segi eins og þú PUuuuuuuuuuhhhhhhhhh......!

Sé að þið, hirðin á badabing, eruð að kveðjast og mæla ykkur mót á víxl. Bið bara að heilsa úr netheimum og óska ykkur velfarnaðar. Þið komið kannski aftur með fyrstu frosthörkunum næsta vetur...

Hef eina spurningu til Alan. Hvað er þá málið með þvagfæraskurðlækna? Pissa þeir undir? Hvað býr að baki þegar menn læra þvagfæraskurðlækningar? Krónísk blöðrubólga?

Get real. Þó þú hafir lent á afdönkuðum geðlækni þá er soldið billegt að afgreiða þá alla sem klikkhausa.

toungue

Nr. 2 | posted by: anna | 5.06.2003 | 11:17:55 | [+] |

Ég er sammála þér að mörgu leyti. Ég trúi því hinsvegar að lyf hjálpi fólki að ná áttum þegar málin eru komin á það stig. Er orðin sick and tired af fólki sem heldur að "meira, meira dóp, meira dóp, meira fjörefni" sé málið. Liður í að fá bata er að horfast í augu við uppsafnaðar ranghugmyndir, skít í hausnum, komplexa, sársauka, reiði, biturð, ör á sálinni og finna eitthvað vitrænt út úr hrærigrautnum. Læra bara að láta sér þykja svolítið vænt um sjálfan sig! Svo er náttúrlega alltaf hægt að finna fólk sem finnst þetta allt saman vera aumingjaskapur og maður eigi bara að suck it up og "standa sig".

Ég hef sjálf mikla andúð á pilluáti almennt en stundum er það eina leiðin. Ég ætti t.d. líklega 18 börn ef ég hefði ekki verið dugleg að taka pilluna í gegnum árin hahahaha
Ég komst ekki hjá því að taka minn prósakk skammt gegn kvíðaköstum sem voru farin að gera líf mitt ömurlegt, to say the least. Ég er hinsvegar á góðri leið með að vinna mig útúr þessu helvíti í samtalsmeðferð hjá góðum sálfræðingi og hef ekki þörf fyrir meira prósakk.

Slökun er dásamleg og ég stunda hana. Frábært tæki til að ná sér niður og endurhlaða batteríið.

Ég held að þú sért ekkert verri maður þó að þú hafir ekki tekið lyfin sem þú fékkst uppáskrifuð. Þetta er meira spurning um hvort þér líði vel og ef slökun virkar fyrir þig og þú stundar hana, er það ekki allt í lagi? Virknin dofnar með árunum og líklega eru þetta jafn áhrifaríkar pillur og flórsykurtöflur í skápnum hjá þér. Learn to let go.. hentu þeim bara og haltu áfram í slökun. wink

Nr. 3 | posted by: anna | 5.06.2003 | 18:54:50 | [+] |

Anna! Veit svo sem ekki hversu langt "við" förum.

Loki hefur á réttu að standa, sísonið er búið í bili, við keyrum í sama farinu eins og forskrúfað bensínlok á Skoda Amigo.

Hringdum í 555 KACL og fengum aldeilis góð ráð um það að stoppa núna og byrja nýtt síson í haust. Við stefnum á Edduverðlaunin, íslensku barnabókaverðlaunin, bókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs og menningaverðlaun DV. Allt næsta haust.

Vonlausir pennar, of huglausir til þess að fá sér eigin bloggsíðu og halda að heim"dallur" sé nýtt brynningarkerfi fyrir tölvustýrð lausagöngufjós sem meira að segja tveggja sólarhringa kálfar tileinka sér.

Loki leiðir pennan fyrir hönd þessa rakarakvartetts Don Tóta, ákveður stílinn.

Ég pardóna böggið ef eitthvað var, það var ekki meiningin að láta ykkur bloggurunum né lesendum ykkar leiðast.

Adjö!

tc

Nr. 4 | posted by: Tony Clifton | 5.06.2003 | 21:59:20 | [+] |

Ég held að engum hafi leiðst og kveð aftur, með trega og söknuði.

Nr. 5 | posted by: anna | 6.06.2003 | 8:37:32 | [+] |

Er ekkert að fara, en get lítið látið á mér kræla vegna anna í kjötheimum.

Nr. 6 | posted by: alanhudson | 6.06.2003 | 21:40:20 | [+] |


recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web