Sunnudagur, 15. júní 2003
Þessi mynd klikkaði ekki á neinu. Þú ert með góða gæjann, sem er 15 ára strákur, flottu gelluna sem er félagi hans, vonda kallinn og the evil henchman sem halda sig á leynistað inní fjalli. Við höfum góða vísindamanninn sem er búin að búa til hrikalegt vopn - alveg óvart og fallegu dóttur hans, reiða CIA yfirmanninn og heimska dyravörðin. Á smekklegan hátt voru kunnugleg stef úr James Bond ofin í tónlist myndarinnar. Á einum stað var meira að segja smart vísun í Indiana Jones.
Sprengingar, húmor og spenna. Mæli með þessari mynd fyrir alla í fjölskyldunni sem eru orðnir a.m.k. 10 ára.