www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
trallalla...
Miðvikudagur, 21. maí 2003

Ég náði öllum prófum. Skreið í einu með 5, slapp fyrir horn í öðru með 6 og fékk 9 og 10 í hinum. Ég er sátt. Nú fæ ég líka pening frá VR. Var hætt að reikna með því miðað við gengi mitt í prófunum svo þetta eru óvænt endalok.

Búin að búa til lúkkið á badabing.is og þá er bara eftir að html-a það. Það er svona eyðimerkur, nostalgíu lúkk. Akkúrat í stíl við Tóta.

Skrifborðið mitt er orðin lífrænn öskuhaugur og ég held að það fari að líða að því að ég moki ofanaf því og út í garð, með áherslu á "það fer að líða að"...

Ég hef aldrei getað vanið mig á að lesa þegar ég er inná baði. Af hverju ætli það sé? OG af hverju ætli það séu svona margir sem gera það? Eða er fólk að ljúga? Það væri sjálfsagt sniðugt og uppbyggilegt að hafa ljóðabók við hliðina á klósettinu og lesa eitt ljóð fyrir hverja klósettferð. Þá stæði maður upp, betri manneskja. En common. Þetta tekur mig ekki svona langan tíma. Þ.e. að sitja á klósettinu. Augljóslega get ég ekki lesið í baði. Eh.. það er kannski ekki augljóst... ég gleymi mér og fer með hendurnar í kaf.. þá er bókin öll blaut.. það er ekki gaman og gerir Tóta ekki hamingjusaman. -Það rímar.

Af hverju eru Laxnes bækurnar ekki gefnar út í vatnsheldri útgáfu? Af hverju er ekki hægt að kaupa sund-sokkabuxur? Af hverju klæjar mig svona í tánna?


| anna | 0:57 |
comments

Til hamingju!

Alan hefur tekið sitt síðasta próf. Hann hélt að það yrði óstjórnlegur léttir, en í staðinn fylltist hjartað söknuði. Hljómar afbrigðilega, en er satt.

Nr. 1 | posted by: AlanHudson | 21.05.2003 | 1:27:06 | [+] |

Já til hamingju með prófin! Vel að sér vikið.

Einhvern veginn kemur þetta ekki á óvart, að þú náðir öllu, þrátt fyrir að anna-punktur-is sinni fullri vinnu með náminu, haldi úti heimasíðu, sjái um heimilsstörf -- auk þess að ala upp tvo krakka og ungabarn. Svo maður tali nú ekki um furðurfugla eins og Organistann sem sogast að þér og halda fyrir þér vöku með needy, clinging spjalli fram til 4 á morgnana.

Ef þreytan vinnur einhverntímann á önnu-punktur-is þá er ekki nema sjálfsagt að Organistinn skrifi eins og eina bloggfærslu fyrir þig.

Er þetta fyrir stúdentspróf? Hvenær klárar þú það?

Nr. 2 | posted by: organistinn | 21.05.2003 | 4:32:39 | [+] |

Til hamingju með það![biggrin]

Það að ekki skuli vera vatnsheld útgáfa af verkum Laxness er bara plott hjá útgefandanum svo maður neyðist til að kaupa nýja bók ef manni verður á að fara með eina í sturtu (ég er ekki með bað).[weteyes]

Kláði í stórutá er algengt einkenni á of langri veru fyrir framan tölvuskjáinn sértaklega ef sjúklingurinn hefur einkum ,,nærst" á kóki og sígarettum [shades].

Hvað gerðist í gær, af hverju komst ég ekki inn á badabing.is eða anna.is? Varstu eitthvað að fikta í dns þjónunum?doubt

Ég fékk alvarleg fráhvarfseinkenni sick

Nr. 3 | posted by: beggi dot com | 21.05.2003 | 7:38:15 | [+] |

Til hamingju með prófin!
Við þurfum að hittast, mig langar svo að spyrja þig um nokkra hluti varðandi hvernig er hægt að gera ljóta vefsíðu minna ljóta. Tóti er orðinn frekar pirrandi í vinnunni. Hann talar allan daginn um Júróvision hitt júróvision þetta, hvort austurríska laginu gangi betur en því íslenska, hvernig kjól Birgitta verði í og Tatú hvort þær taki þetta á lólítu appílnum? Kom mér á óvart, ég hélt að Tóti væri ekki þessi dæmigerði júróvision nörd.toungue

Kveðja
Ingólfur

Nr. 4 | posted by: Ingólfur Júlíusson | 21.05.2003 | 10:50:11 | [+] |

Alan:

Mér finnst þetta ekki hljóma afbrigðilega. Það fylgir því ákveðin tómleiki að klára próf.

Organisti:

Eftir að hafa lesið upptalninguna frá þér finnst mér ég rosalega dugleg. Maður finnur nú samt ekki mikið fyrir þessu og ég verð að leiðrétta smá mis. Tóti er mjög duglegur á heimilinu inn á milli fyllería og sem dæmi má nefna að eftir að ég bannaði honum að þvo fötin mín þá á ég aldrei nein hrein föt. Ég held ég fari að aflétta því banni.. er búin að gleyma af hverju ég bannaði honum það in the first place.

Kannski bannaði ég honum það aldrei.. kannski er hann bara í verkfalli! Dísus! Ég þarf að skoða þetta nánar áður en ég klára allar nærbuxurnar!

Ég er allavega búin að rediscover takmörk mín á leti við að læra. Það var nú gott. Enda, ég sagði aldrei að ég væri ánægð. Ég er sátt.

Hvenær klára ég? Jah.. góð spurning... ég hef ekki hugmynd um það. Ég stefni á að vera minna en 10 ár og meira en 2 ár.

Beggi.com:

Ég prísa mig nú bara sæla að vera með baðkar. Gæfi lítið fyrir bækurnar hans Tóta ef við værum bara með sturtu!

Internetsamband ogvodafone var flöktandi vegna DoS árása á irc þjón ISNIC.

Alvarleg fráhvarfseinkenni er eitthvað sem ég vil ekki upplifa. Hef þessvegna aldrei prófað neitt sterkara en sígarettur og áfengi. Ætti ég að hafa health warning á síðunni?

Nr. 5 | posted by: anna | 21.05.2003 | 19:09:35 | [+] |

Biðst vægðar fyrir að saka Tóta um að hjálpa ekki við heimilisstörfin!

Svona er það þegar maður reiknar með að aðrir séu eins og maður sjálfur. Það er líka mjög erfitt að hugsa sér Soprano epidsódu þar sem Tony er að þvo og brjóta saman nærbuxurnar hennar Camillu.

Nr. 6 | posted by: organistinn | 21.05.2003 | 20:44:48 | [+] |

Þú sérð það í The Sopranos - uncut.

C'mon! Þetta er eins og að borða kjúkling. Þú endar með að nota puttana því hnífapörin virka bara ekki. Það er ekki nokkur leið að brjóta saman svona skimpy underwear, ekki einu sinni með hnífapörum...

Nr. 7 | posted by: anna | 21.05.2003 | 21:04:13 | [+] |

Sko, aftur var ég með Carmellu og hennar nærföt í huga. Ég var búinn að gleyma því að þú ert 52 kg og gengur bara í thongs, þ.e. í þau skipti sem þú ert í nærbuxum.

Ef þú værir með mynd af Önnu-punktur-is í bikini á síðunni þinni, í stað myndar af Madonnu, þá kæmu ekki upp svona ranghugmyndir.

Nr. 8 | posted by: Organistinn | 21.05.2003 | 22:00:26 | [+] |

Þú lest á klósettinu! Magnað...

Annars er Sopranos það eina sem ég horfi á í sjónvarpinu þessa dagana. Allt annað hlusta ég á, enda hef ég bara ekki tíma til að horfa... er alltaf að gera eitthvað annað.

Þessi mynd. Þú verður að hætta. Þetta kostar mig stórfé í sálfræðikostnað:

Anna: Já, það er þetta með myndina.
Sálfræðingur: á heimasíðunni þinni?
Anna: Já, sko, það er Organisti í bandaríkjunum sem segir að hún sé out of date, ég er ekki að höndla það.
Sálfræðingur: Eru draumarnir komnir aftur?
Anna: Já. Ég er í herbergi í stóru húsi og allstaðar eru lokaðar hurðir. Orgelleikur bergmálar um allt. Ég reyni að halda fyrir eyrun en hann smýgur í gegnum fingurna á mér.. ég get ekki lokað hann úti. Ég veit að ég þarf að velja hurð. Ég snýst í hringi en vel hurð að lokum. Þegar ég opna sé ég Bono.
Sálfræðingur: Í U2?
Anna: Já, hann stendur og horfir á mig í gegnum þykk gleraugu sem gera augun í honum ennþá minni en þau eru. Hann er í hvítum sumarkjól sem nær niður á hné með blúndu á ermunum.

Ég frýs og stari á hann. Eftir nokkra stund réttir hann mér tjakk og segir: "velkomin Anna, við erum búin að bíða eftir þér". Þá sé ég Madonnu innar í herberginu. Hún er í brúnum munkakufli og dansar í kringum jólatré sem er skreytt með bugles snakki. Skyndilega kviknar á black light ljósi og ég vakna öskrandi.
Sálfræðingur: Hvað viltu að sé á bak við hurðina?
Anna: Duran Duran

Nr. 9 | posted by: anna | 21.05.2003 | 23:38:33 | [+] |

Anna: þetta er fallegur óður til Tóta og Duran Duran sem þú hefur skrifað þarna!

Alan: Þetta er rétt hjá þér, en Stebbi or samband hans við aðra Innherja er bara þannig að Organistinn getur ekki setið á sér. En ekki ber ég illan hug til Stebba, svo mikið er víst. Það er hins vegar ekki rétt hjá Stebba að ég sé thornsteen.

En segður mér Alan, í hverju var síðasta prófið þitt.

Nr. 10 | posted by: Organistinn | 22.05.2003 | 0:06:26 | [+] |

Alan: Ísbjörninn, er það Loki -- eða þú?

Nr. 11 | posted by: Organistinn | 22.05.2003 | 0:10:35 | [+] |

Ég veit að þú ert ekki thornsteen. Ég veit líka að ég er ekki thornsteen eins og Stefán taldi mig vera fyrir nokkrum vikum.

Ég veit lítið um Stefán þennan en hef þó séð að hann trúir á hið góða í hverjum manni en er jafnframt afar lítill mannþekkjari. Það er afar slæm blanda.

Próf segirðu? Það var munnlegt próf í heimspeki. Í því prófi sannaði ég meðal annars hina takmarkaðri afstæðiskenningu Einsteins um að tími sé afstæður. Þær 3 klukkustundir sem prófið tók reyndust nefnilega heil eilífð og meira til. Hræðilegur tími.

Hvert var síðasta próf Organistans? Tókstu fúguna?

Heimspeki var kannski ekki rétta stefnan, eins gríðar vítt svið og hún nú annars er. Alan sér eftir að hafa ekki lært meiri sálarfræði, honum finnst nærbuxnaumræðan að ofan ákaflega fróðleg. Hvaða Freudísku tákn ætli búi þar undir?

Nr. 12 | posted by: AlanHudson | 22.05.2003 | 0:15:34 | [+] |

Alan er ekki ísbjörninn. Ég taldi hann lengi vera Alter Ego Loka, en er ekki lengur viss. Maður er aldrei viss. Það eru hins vegar önnur nikk þarna á ferðinni sem Loki á líklega.

Fyrir nokkru þá virtist einhver leggja fyrir sig að stela nikkum innherja. Einkanlega þeirra sem voru svo miklir kjánar að nota sama nikk og lykilorð. Í framhaldi af því prófaði Alan nokkur grunsamleg nikk sem voru með lík höfundareinkenni og skutu upp kollinum einu sinni, en svo aldrei aftur. Útkoman varð athyglisverð.

Nr. 13 | posted by: AlanHudson | 22.05.2003 | 0:22:23 | [+] |

Humm, munnlegt próf í heimspeki! Ja ef þú hefur starf við það svið þá ert þú mjög heppinn.

Hvað Organistann varðar þá er hann á þannig sviði að hann er ekki búinn að taka síðasta prófið sitt. Var einmitt að ræða þetta við frú Organista um daginn að þegar ég byrjaði í alvöru vinnu var ég sennilega búinn að vera í námi lengur en flestir mörlandar. Samt próf í framtíð Organistans!

Þetta með nærbuxurnar skaltu nú ekki velta of djúpt fyrir þér hér á síðunni (Tóti gæti átt það til að kíkja hérna), en þetta er auðvitað þræl sexuelt. Svo mikið er víst.

Nr. 14 | posted by: Organistinn | 22.05.2003 | 0:26:08 | [+] |

Sælir útlagar!

Hvar er refandskotinn, hef ekki séð hann í nokkra daga. Lenti sjálfur áðí fyrir rúmri viku, en er að ná mér. Var með gigg á fimmtudag og sunnudag, en hef varla lengur aldur í þetta ef kenning Loka stenst.

Skál!

tc

Nr. 15 | posted by: Tony Clifton | 22.05.2003 | 0:27:58 | [+] |

UCLA?

Nr. 16 | posted by: AlanHudson | 22.05.2003 | 0:29:10 | [+] |

Alan: Nei, en close. Þú ert overruled á frekari spurningar um slíkt efni.

TC: Skál líka. Ok, hvar er giggið? Á maður sjéns að sjá þig?

Anna: hvar ertu?

Nr. 17 | posted by: Organistinn | 22.05.2003 | 0:35:09 | [+] |

Sæll TéSi. Jú við vorum búnir að taka eftir fjarveru þinni þó enginn hefði orð á því. Við kunnum illa við að ræða um fjarstatt fólk hérna. Nema þegar okkur grunar að þeir séu að lesa það sem póstað er, en haldi sig til hlés.

Gigg segirðu? Notarðu bakraddir eða gerirðu þetta allt sjálfur? Ef maður er með frambærilegar bakraddir, þá þarf ekki að djöflast eins á sviðinu. Það má endast lengur í bransanum þannig.

Organisti, heimspeki hafði mun víðari merkingu áðurfyrr. Ef það er rétt að Organistinn á ennþá eitt próf eftir, þá eru talsverðar líkur á að það verði heimspekigráða. Forn merking orðsins var 'kennari'.

Nr. 18 | posted by: AlanHudson | 22.05.2003 | 0:36:17 | [+] |

Organisti, virði það. En hvað skrifarðu undir mörgum nikkum á innherjunum?

Nr. 19 | posted by: AlanHudson | 22.05.2003 | 0:39:37 | [+] |

".....wanted man in California...wanted man in Buffalo.....wanted man in Kansas City....wanted man in Ohio...."


Er bara að fíla Johnny Cash í ræmur þessa dagana. Einhver séð "One night at McCool's"?

tc

ps. sé um allt performance sjálfur! Er reyndar á leiðinni í sjálfskipað ríhab, en byrja á fullum krafti seinna í sumar.

Nr. 20 | posted by: Tony Clifton | 22.05.2003 | 0:42:20 | [+] |

Nei ég hef ekki séð hana. En ég sá konuna mína í morgun. Þar var mikið sánd og mikil tónlist. Og dramatík

Nr. 21 | posted by: AlanHudson | 22.05.2003 | 0:45:56 | [+] |

Alan: dramatík, háw?

Nr. 22 | posted by: Tony Clifton | 22.05.2003 | 0:49:41 | [+] |

Organistinn er að læra lýtarlækningar, ég er búin að semja við hann um að redda mér nýjum rassi þegar þyngdaraflið hefur borið minn ofurliði, enda hefur greyið ekkert support, eins og komið hefur fram á Freudískan hátt.

Já ég hef séð One night at McCool's. Held að það muni ekkert toppa willage people atriðið.

Alan: ha? ertu að tala dulmál núna?

Nr. 23 | posted by: anna | 22.05.2003 | 0:50:35 | [+] |

Anna: gleymdi að segja það, en síðan er flott! Broskallafítúrúrnar eru það sem gera herslumuninn. Ef Badabingið er samkvæmt sjálfu sér ætti Tóti að setja upp tilsvarandi íkón með best-of úr úrklippusafninu hans Hef' frænda.

Nr. 24 | posted by: Tony Clifton | 22.05.2003 | 0:51:29 | [+] |

TC: Það er stundum erfitt að skilja konur.

Hvað er annars hæft í því að þú hafir komið upp um Stefán á innherjum? Hann heldur því statt og stöðugt fram og telur að thornsteen hafi verið vitorðsmaður.

Nr. 25 | posted by: AlanHudson | 22.05.2003 | 0:52:31 | [+] |

TC: ég sá "One Night at McCool´s". Er það hint um hvar giggið þitt verður? En er þetta ríhab ekki planað full langt fram í tímann?

Allan: Fyrir langa löngu síðan, þegar þráðurinn byrjaði, skrifaði ég handrit um deCODE æðið á Innherjum undir mörgum nöfnum, aðallega úr Boiler Room. En síðan þá hef ég ekki nennt mikið að tala við sjálfan mig og eingöngu skrifað undir Organistinn, nema örsjaldan sem Indias, sem var nú bara gert til að líkjast Loka sem notaði held ég nafnið India (en kannski varst það þú?)

En hvað með ykkur TC og Alan, eruð þið líka lauslátir? Hversu mörg nikk?

Nr. 26 | posted by: Organistinn | 22.05.2003 | 0:54:34 | [+] |

Anna:

Já, þetta var frábær analógía hjá þeim, vel skrifað. Er ekki mikið gefinn fyrir Michael Douglas (reyndar góður í Wonderboys), en djöfull var hann góður sem Mr. Burmeister; vindlar, langur Lincoln, spilar bingó með gömlu kerlingunum, og er svo með ekki þessa litlu mömmu fyrir byssu í skottinu á Lincolninum.

Nr. 27 | posted by: Tony Clifton | 22.05.2003 | 0:55:59 | [+] |

Rassar og læknar eru áhugaverð pör.

Þetta heyrði Alan í dag:

Five surgeons are discussing who makes the best patients to operate on.

The first surgeon says, "I like to see accountants on my operating
table, because when you open them up, everything inside is numbered."


The second responds, "Yeah, but you should try electricians! Everything
inside them is colour coded."

The third surgeon says, "No, I really think librarians are the best;
everything inside them is in alphabetical order."

But the fourth surgeon shut them all up: "You're all wrong. Politicians
are the easiest to operate on. There's no guts, no heart, no balls, no
brains and no spine, and the head and the ass are interchangeable!"

Nr. 28 | posted by: AlanHudson | 22.05.2003 | 0:56:25 | [+] |

Organisti: aðeins eitt nikk.

Vísir hrundi einhvern tíma og þá þurfti TC að skipta yfir í Rakarakvartettinn um tíma (gat ekki loggað inn). Hef reyndar einu sinni notað I. P. Freely af sama tilefni fyrir langa löngu.

Það er það erfitt fyrir þann sem þetta skrifar að losa sig úr persónu TC í kjötheimum, að það væri óbærilegt að vera með mörg nikk.

Hvað með sjálfan þig - höfum við hist áður undir öðrum "kringumstæðum"?

Nr. 29 | posted by: Tony Clifton | 22.05.2003 | 0:58:58 | [+] |

Tony:

Broskallarnir flokkast undir "neat" or "cool" í heimasíðugerð og í öllum tilfellum á að forðast að hafa hluti úr "neat" or "cool" flokkunum á heimasíðum. Mér fannst hinsvegar að það yrði neat og cool að hafa þá. Ég verð hinsvegar fljótt leið á hlutum.. Hvað Tóta varðar þá mun ég aldrei setja broskalla á hans síðu.

Alan:

Það hefur komið fram að þú skiljir þær bara alls ekki. Ég er að reyna að ráða í þetta.. og skil ekki.

Nr. 30 | posted by: anna | 22.05.2003 | 0:58:59 | [+] |

Anna: Hef' frændi (aka. Hugh Hefner) safnar ekki myndum af brosköllum!wink

Nr. 31 | posted by: Tony Clifton | 22.05.2003 | 1:01:11 | [+] |

Alan skrifaði einu sinni undir nikkinu aurskriðan en hætti því eftir að TC þoldi ekki fágaðan stílinn og missti stjórn á sér í beinni útsendingu. Það er engin ástæða til að fara í taugarnar á TC. Loki gerði sér líka far um að úthrópa það ágæta nikk, svo ég gat ómögulega verið að standa í þessu. Skrifa lítið á innherja núorðið. Mér finnst þetta barnaleg samkoma og það sem er póstað bæði illa skrifað og lítið hugsað. Ég sakna góðra rökfastra penna líkt og tomase.

Ég er ekki mikið fyrir mörg nikk.

Anna: nei þetta er ekki dulmál.

Nr. 32 | posted by: AlanHudson | 22.05.2003 | 1:03:13 | [+] |

Tony:

Já.. það er kannski eitthvað til í þessu með að konur skilji ekki karlmenn og öfugt. Ég hef allavega ekki hugmynd um hvað þú ert að meina.

Nr. 33 | posted by: anna | 22.05.2003 | 1:06:34 | [+] |

TC: þar sem ég veit ekki hver höfundur TC er, þá get ég ekki svarað spurningunni. Hvorum meginn við Atlandshafið ert þú?

Allan: Hvað áttu við með sánd og tónlist frá konunni þinni?

Nr. 34 | posted by: Organistinn | 22.05.2003 | 1:07:19 | [+] |

TC, þyrftu 'broskallarnir' hans Hef's frænda ekki að vera stærri til að njóta sín almennilega?

Nr. 35 | posted by: AlanHudson | 22.05.2003 | 1:08:22 | [+] |

Anna: þetta er allt unilateral.

Ef Badabing á að standa undir nafni sem hinn últimatívi súlustaður þar sem mafíósar hittast og gráta saman, væri þá ekki ráð að Tóti yrði sér út um andlit af hirðinni og nokkrum dömum sem taka fatafátækt ekki nærri sér, öllu skelt í nokkur íkón??

Nr. 36 | posted by: Tony Clifton | 22.05.2003 | 1:12:35 | [+] |

Organistinn: átti við hvort TC hefði hitt Organistann undir öðru nikki (hins síðarnefnda)?

Er réttu meginn við Atlandshafið!

Alan: hmmm, er stærðin allt sem skiptir máli?

Nr. 37 | posted by: Tony Clifton | 22.05.2003 | 1:18:50 | [+] |

TC: Stærðin er mikilvæg til að blæbrigði hvers broskarls komist vel til skila.

Organisti: Næst þegar þú tekur tokkötuna á orgelið, þá skaltu skipta bassanum út fyrir meira trebb. Þá veistu hvað ég á við.

Var það bara ég sem lenti í því að anna.is dó um stundarsakir núna áðan?

Nr. 38 | posted by: AlanHudson | 22.05.2003 | 1:42:39 | [+] |

TC: Stærðin er mikilvæg til að blæbrigði hvers broskarls komist vel til skila.

Organisti: Næst þegar þú tekur tokkötuna á orgelið, þá skaltu skipta bassanum út fyrir meira trebb. Þá veistu hvað ég á við.

Var það bara ég sem lenti í því að anna.is dó um stundarsakir núna áðan?

Nr. 39 | posted by: AlanHudson | 22.05.2003 | 1:50:09 | [+] |

TC: Stærðin er mikilvæg til að blæbrigði hvers broskarls komist vel til skila.

Organisti: Næst þegar þú tekur tokkötuna á orgelið, þá skaltu skipta bassanum út fyrir meira trebb. Þá veistu hvað ég á við.

Var það bara ég sem lenti í því að anna.is dó um stundarsakir núna áðan?

Nr. 40 | posted by: AlanHudson | 22.05.2003 | 1:50:55 | [+] |

Anna.is, ég biðst afsökunar á margpóstuninni. Það virðist hafa verið stífla í pípunum, en mér tókst að losa hana með því að ýta nokkrum sinnum á enter. Eins og sjá má.

Nr. 41 | posted by: AlanHudson | 22.05.2003 | 1:53:44 | [+] |

Ha, ha, góð hugmynd að bók!

Varðandi Innherja: Nei, ég er ekki á bak við nein af þessum nikkum. Hvað Stebba varðar þá hef ég auðvitað sagt minn shjér af djókum um piltinn, en ekkert af því er illgjarnt og alltaf undir fullu nafni (he,he). Þó hef ég stundum fengið samviskubit og einu sinni var ég hundskammaður af eðalinnherjanum Keops. StebbiFr og Innherjar er náttúrulega klassískt eineltisdæmi. Það er því mesta furða að fólk eins og BB, Gísli Marteinn o.fl. skuli etja Stebba áfram og þannig í raun stilla piltinum upp fyrir aftöku.

Það var eins með Organistann og Allan að hann skrifaði eingöngu á viðskiptaþræðinum í langan tíma. Síðan varð það svo leiðigjarnt að ég fór að bulla á stjórnmálþræðinum. Ég les ekki Innherja mikið um þessar mundir og hef því ekki spáð í Loka þar, nema mér sýnist Ísbjörninn líkjast honum ískyggilega.

Það sárlega vantar viðskiptablaðamennsku á Íslandi. Þar eru vissulega góð tækifæri fyrir ambitious blaðamann að búa til nafn fyrir sig! Ég myndi byrja á greinaröð um Margeiri Pétursson og alla hans umsýslan. Hvílíkt og annað eins! En ekki fer pro-business Mbl að ráða viðskiptablaðamann, og Fbl augljóslega vill engar viðskiptafréttir. Það væri helst að útvarpið gæti unnið í þessu máli -- þeir eru að mínu mati með skásta frétta-outfittið á klakanum.

Nr. 42 | posted by: organistinn | 22.05.2003 | 5:56:26 | [+] |

Ditto á mestan hluta Innherjapælinganna. Vil árétta það, að ég hef ekki getu, þekkingu, innsýn né hæfileika til þess að standa á bakvið fleiri en eitt nikk (tvö incl. Rakarakvartettinn).

tc

Nr. 43 | posted by: Tony Clifton | 22.05.2003 | 6:57:17 | [+] |

Ísbjörninn segirðu. Það hafði hvarflað að mér, og ég bar það á hann hérna. Hann neitaði auðvitað. Þessi björn er í öllu falli ofvirkur og póstar slíkt magn að maðurinn getur ekki gert neitt annað á daginn. Frá honum persónulega kemur líka lítið, þetta er aðallega klippt og límt, sem var ekki beinlínis höfundareinkenni Loka. En maður veit náttúrulega aldrei.

Mér fannst/finnst Fortral69 mun sterkari kandídat.

Nr. 44 | posted by: AlanHudson | 22.05.2003 | 13:18:09 | [+] |

Eitt enn Organisti, ég held að þú hittir naglann á höfuðið með því sem þú segir um Stefán og BB. Hvernig Gísli Marteinn kemur inn í þetta veit ég ekki. Allir sjá þó að Stefán hefur ekki alveg tærnar þar sem Gísli hefur hælana. Það bætir hann upp með gríðarlegum skrifum. Stefán þessi er nú samt ekki sá áhugaverðasti þarna.

TC, þú ættir endilega að skrifa meira á innherjana. Þeim hefur hrakað illilega síðustu mánuði.

Nr. 45 | posted by: AlanHudson | 22.05.2003 | 13:23:57 | [+] |


recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web