Þriðjudagur, 06. maí 2003
Ég tók þá ákvörðun, þegar ég var að laga síðuna mína til, að hafa titla á þessu rugli sem ég skrifa hingað inn. Aðallega til að auðvelda achiving. Það sem verra er... -er að flest sem ég skrifa hefur engan sérstakan titil. Ég var að spá í að fara yfir færslurnar einhverntíman þegar sólin skín og ég hef ekkert betra að gera en áttaði mig á að titlarnir yrðu ca 5:
1. DJÖFULLINN!!!
2. Ég fór í bað...
3. Mér leiðist
4.
Já. Þeir yrðu bara þrír.
Þetta gæti valdið misskilningi fyrir þá sem eru að reyna að finna ákveðnar færslur. -Þó ekki þar sem ég efast um að það sem ég skrifa sé eitthvað sem fólk sækir í að lesa aftur og aftur og aftur... Nema kannski ég þegar ég þarf að athuga hvort ég sé búin að röfla yfir einhverju áður.
Ég hef þessvegna ákveðið að taka bara fyrstu orðin þegar ég er í óstuði, sem er mjög oft, og klína því á sem titil. Í kjölfar þessarar ákvörðunnar hef ég getað náð órofnum svefni þrjár nætur í röð.