www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
Réttindi í nýju ljósi
Þriðjudagur, 13. maí 2003

Ég eyddi einhverjum klukkutímum í það á kosninganótt að setja upp heimasíðu fyrir mömmu. Hún eyddi síðunni í kvöld. Óvart. Tók hana innan við 30 sek. I have seen the power of the dark side.

Þetta er líklega lesson nr 1 í notendafræðum og réttindum þeirra og ég féll.

Auðvitað átti ég ekki að setja aðganginn hennar upp með þessum freistandi "Delete weblog" takka. Hvernig í fjandanum átti hún að reikna með því að hún gæti eytt öllu út bara með því að ýta á þenna takka? Hún veit að notendur hafa ekki slíkt vald, auk þess sem hún ætlaði bara að eyða út einni færslu!
Þessi mistök skrifast á mig. Not that strong, the power is, in that one...

Ég búin að setja síðuna upp aftur og fjarlægja takkann. Permanently.

Þetta atvik hefur opnað augu mín og dýpkað trú mína og skilning á að ég vinn með snillingum, enda hafa þeir ósjaldan predikað yfir mér að það bara má ekki láta notendur fá of mikil réttindi. Þá fer allt í fokk. Notendur eru og verða réttindalausir. Hjá þessum mönnum er ég notandi. Þeir meta færni mína og útdeila mér réttindum accordingly.

Í gær sendi ég póst á kerfisstjórann minn og bað um að fá aðgan að skrám sem mig langaði að fikta aðeins í. Ég tók fram að ég væri búin að taka backup sem ég gæti sett inn ef fiktið yrði ekki successful. Hann gaf grænt ljós og ég fékk aðgang að skránum. Ég semsagt þokast hægt og bítandi í áttina að -rwxrwxrwx og er talin traustsins verð.

Oh mighty root, lord of CHMOD 777, your power is emence. If only some day, by some divine intervention, you and I could become one!

Ég er fallin í næringarfræði. Það getur ekkert hjálpað mér núna nema full réttindi inn á kerfi skólans þar sem ég get skoðað prófið. Er ekki viss um að það myndi gagnast mér heldur... I'm beyond saving eins og heimasíðan sem mamma eyddi út í kvöld.. - eru það ekki annars sígarettur og kók sem gera kraftaverk fyrir neglurnar og hárið eða var það bjór?


| anna | 0:27 |
comments

CHMOD 777. Færir manni minningar um gamla PDP vél á stærð við ísskáp, og meðfylgjandi kæliuniti, einmitt líka á stærð við ísskáp. OG svo kill -9 sem alltaf virkaði glimrandi. Núna hefur maður bara Ctrl-Shift-Esc sem virkar bara stundum og yfirleitt aldrei. Þetta er allt á niðurleið.

Nr. 1 | posted by: AlanHudson | 13.05.2003 | 21:11:01 | [+] |

Ég nota iðulega kill -9 enda er ég stórhættuleg.

Þegar ég var lítil þá fór ég stundum til pabba í vinnuna og fylgdist með honum horfa á óskiljanlegt rugl á litlum skjá og hamra inn annað eins óskiljanlegt rugl með fornaldar lyklaborði. Mér fannst hann rosalega heppinn að hafa vinnu því í mínum augum gerði hann aldrei neitt og ef ég spurði: "pabbi, hvað ertu að gera núna?" Þá urraði hann bara á mig án þess að líta upp af skjánum.

Ég man hinsvegar vel eftir risastóru græjunum (sem í mínum augum voru eins og stórar þvottavélar) sem voru í VRII í gamla daga. Gerðist meira að segja svo fræg að vera viðstödd úrdrætti happadrætti háskólans nokkrum sinnum þegar notaðir voru tengingar í plast sívalning til að draga út númerin. Djöfull er maður farin að reskjast! Já þetta er allt á niðurleið. Helvítis þyngdaraflið leikur mann grátt...

Nr. 2 | posted by: anna.is | 13.05.2003 | 22:42:27 | [+] |

Finnst þér ekki CHMOD 777 gefa venjulegum notendum óþarflega mikinn aðgang?

kill -9 lifi!!

Nr. 3 | posted by: beggi dot com | 14.05.2003 | 21:43:19 | [+] |

Jú auðvitað er CHMOD 777 ekki fyrir hvern sem er. Ég er líka ekki hver sem er tíhíhí

Kill -9 lifi!! (stofnum klúbb þar sem þetta er leyni upphópið)

Nr. 4 | posted by: anna.is | 14.05.2003 | 22:35:55 | [+] |

Já væri ekki betra að hvísla leyniorðið. Hey, pant vera foringinn!

Nr. 5 | posted by: anna.is | 14.05.2003 | 23:34:58 | [+] |

gleymdi... kill -9 lifi! (sagt rosalega lágt)

Nr. 6 | posted by: anna.is | 14.05.2003 | 23:35:20 | [+] |


recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web