www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
PS2
Mánudagur, 12. maí 2003

COOLNESS!!!

Ég var að fá þær fréttir að mér stendur til boða aukavinna við að spila PS2 leiki! Það finnst mér ekki leiðinlegt.


| anna | 18:02 |
comments

Hverning fær maður þannig vinnu?

Nr. 1 | posted by: beggi dot com | 12.05.2003 | 19:57:27 | [+] |

Jah.. í mínu tilfelli var einfaldlega leitað til mín þar sem ég er þekktur leikjafíkill. Vissi ekki að það borgaði sig að vera fíkill á einhverju sviði. Skil ekki hvernig manninum mínum datt í hug að leggja blessun sína yfir þetta!

Nr. 2 | posted by: anna.is | 12.05.2003 | 20:06:39 | [+] |

Er nokkuð séns fyrir mann á fertugsaldri að fá að vera aðstoðarmaður þinn? Ég á einn slíkan sem myndi borga fyrir að fá "bara að vera með!!!"
Hann bað mig að spyrja hvort það væri nokkuð hægt að skrá sig á biðlista eða eitthvað svoleiðis wink
Tilbúinn að hætta að vinna, slátra rollunum og hætta að vera baggi á þjóðfélaginu, bara ef hann má vera með!!
Sé ekki að ég myndi leggja blessun mína yfir það ;o)
Kv. Harpa

Nr. 3 | posted by: Harpa | 12.05.2003 | 21:10:12 | [+] |

Ég fer nú ekki að leggja stein í götu gæðastýringar á lamakjöti með því að halda að veslings manninum tímafreku afþreyingarefni á borð við tölvuleiki! -Auk þess sem þú leggur augljóslega ekki blessun þína yfir planið! Hver segir að konur séu konum verstar?

Það er auk þess alveg ótækt að fjarlægja bagga af þjóðfélaginu. Ég er hrædd um að Steingrímur Joð myndi aflífa mig á lækjartorgi með heygaffli ef það spyrðist út að ég væri að þurrka út landsbyggðina ein míns liðs! Those are my principles. If you don't like them I have others.

Annars er ég að fatta að þegar það er orðin kvöð að leika sér þá hættir það að vera gaman. Nú bíður mín leikur sem verður ekki spilaður fyrr en um helgina og þá er eins gott að ég klári helvítið til að standa undir nafni. Oh.. nú hellist yfir mig þunglyndi. Og ég er engu nær um kolvetni, sellulósa og hvað þetta nú heitir, þetta annars ágæta dót allt saman...

Nr. 4 | posted by: anna.is | 12.05.2003 | 21:35:19 | [+] |

Jæja Harpa. Þetta er búið. Málið er dautt, nema prófið verði svínslega létt. Borghildur, ertu að lesa þetta? hehehe

Þetta er staðreynd með kvöðina. Kauptu tölvuleik handa manninum þínum og skikkaðu hann til að spila hann í 12 tíma á dag með engum hléum. Alla daga. Alltaf. Líka um jólin. Ef hann endist leikinn kaupir þú annan og lengir tímann í 16 tíma á dag. Ég efast um að hann endist vikuna. eee.. tek það til baka ef byggja má á minni reynslu. ehm...

Ég ætti ekki annað eftir en að láta samfylkinguna flykkjast utan um mig. Ég myndi grátbiðja Steingrím Joð um gaffal og berjast til síðasta manns. Frekar Steingrím Joð en súperman-lógó-ripp-off-gengið.

Ég trúi því að allar manneskjur geti drepið ef þær eru settar í réttar aðstæður þar sem þeim fyndist lífi sínu ógnað. Having said that er ljóst að ég og Steingrímur Joð myndum bindast eilífum tryggðarböndum og dansa che che á blóði drifnu torginu... ok það er augljóst að ég er orðin þreytt og farin að röfla. Ekkert nýtt að ég röfli en þegar ég sé mig og Steingrím Joð sem herdeild á lækjartorgi þá er eitthvað að. Ég er farin að kúra við Tóta. PRAY FOR ME!!!

og akkúrat núna heyri ég hljóð sem hljómar eins og ofvaxin býfluga sem flýgur fram og aftur eftir Hofsvallagötunni... scary...

Nr. 5 | posted by: anna.is | 13.05.2003 | 1:14:10 | [+] |

Jeminn!

Nr. 6 | posted by: thors | 29.06.2004 | 20:13:21 | [+] |


recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web