www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
Nýja anna.is
Sunnudagur, 11. maí 2003

Niðurstöður úr "hvernig finnst þér nýja anna.is" pollinu eru eftirfarandi:

Alls nýttu kosningarrétt sinn 23 manneskjur.

69.6% finnst hún flott
13% finnst hún allt í lagi
8.7% finnst hún glötuð
4.3% finnst hún ömurð
og
4.3% neita að svara


| anna | 20:59 |
comments

Hæ Anna
Ég verð nú að viðurkenna að ég hef fylgst með "nýju" anna.is síðunni úr nokkurri fjarlægð uppá síðkastið vegna anna (eða annarloka). Þó verð ég að viðurkenna það, sem mikil áhugamenneskja á sviði vefsmíða og tjáningar almennt, (get svo svarið það að ég var ekki í framboði til alþingiskosninga) .....enívei...verð að viðurkenna það að ég tékkaði á því hvort væri hægt að vóta oftar en einu sinni í könnunni þinni (eftir að þú ásakaðir einhvern rivergæ um slíkt) og eftir að hafa komist að því að svo var hægt þá kaus ég í hvert sinn er ég sá að framsókn var að tapa fylgi!!!!! þ.e alltaf þegar ég sá að þú þurftir þess virkilega með smile

Ég hefði líka viljað sjá Pál Magnúss. Bjarnfreðssonar komast inn (þ.e. á þing) ásamt Herdísi Sæmundsdóttur, sem varð þess valdandi að ég hjassaðist á kjörstað í mínu kjördæmi.
Aldrei gengur neitt upp hjá manni.....nema maður einfaldlega stóli á sjálfan sig og engan annan.
Æm a lúser ;-(
grátur og gnýstan tanna...
Harpa

Nr. 1 | posted by: Harpa | 11.05.2003 | 23:33:38 | [+] |

Shitt maður! Þá hafa Alan Hudson og þú átt heiðurinn af öllum atkvæðunum, fyrir utan þetta eina sem kerfisstjórinn minn kaus. tíhíhí

Ég segi bara takk fyrir stuðninginn! wink

Já, ég er búin að vera gjörsamlega consumed af þessari síðu frá því um páskana. Ég ætlaði að gera vídeóverkefnið yfir páskana en svo var bara aldrei friður með allt gengið í fríi og ekki skánaði það þegar súkkulaðiátið byrjaði á páskadag. Hélt að börnin færu á límingunum um tíma þrátt fyrir óvenju fá egg í ár. Ég rek minimalisma stefnu í þeim efnum hehehe -og þau eru ekki ánægð með það!

Ég skilaði vídeóinu seint, Rakel var ekki kát með mig og ég dauðskammaðist mín fyrir að hafa ekki hent liðinu út í ca 4 klukkutíma til að klára dæmið. Ég er alltaf svo vitur eftirá. Annars fór þetta nú allt vel. Ég fékk systur mína í heimsókn kvöldið fyrir 1. maí, hún stíliseraði mig fyrir vídeóið og sat yfir mér á meðan ég hélt ræðuna ca 16 sinnum. Þá gafst hún upp en ekki fyrr en við höfðum staflað vídeóspólum í þá hæð sem cameran þurfti að vera. (fann þrífótinn náttúrulega daginn eftir.. classic) Ég hélt ræðuna í 20 skipti í viðbót og loksins tókst mér að koma henni frá mér án þess að hiksta eða stama. Var á tímabili að hugsa um að senda Rakel svona "out takes" enda voru viðbrögð mín oft ótrúlega fyndin þegar ég var að klúðra málum á bak við gerfi púltið mitt. Þorði náttúrulega ekki senda Rakel það. Ég fór inn á spjallvefinn í gær og skoðaði aðeins kveðjur frá samnemendum og sendi eina sjálf. Sá night-shot chrisis-inn hjá ykkur systrum og efast ekki um að hefði þetta komið fyrir mig væri ég á Kleppi núna. Allavega á geðdeild Landspítalans...

Ég lærði lítið fyrir íslenskuprófið og settist strax við tölvuna þegar ég var búin að því. Held að ég nái samt.. (sjö, níu, þrettán!) Tóti var einmitt að spyrja mig áðan: "Fyrirgefðu, ert þú ekki í prófum?" Í kvöld er síðasta kvöldið mitt í anna.is í bili. Annað kvöld fer ég að stúdera næringarfræði á fullu fyrir prófið.

En ég segi eins og þú, æm a lúser. Það er svosem ekkert nýtt og ég læt það ekki dampen my spirits! Ég stóla bara á mig, eins og þú stólar á þig, og er glöð. -Þangað til ég fell í næringarfræði! smile

Nr. 2 | posted by: anna.is | 12.05.2003 | 0:05:28 | [+] |


recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web