www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
Kvart og kvein og kaffibollar
Föstudagur, 30. maí 2003

Á föstudögum kaupi ég mér stundum Twix súkkulaði og borða seinnipartinn í vinnunni. Mér finnst best að bíta vænan bita af og leyfi honum að bráðna uppí mér. Það vill hinsvegar þannig til að í hvert einasta skipti sem ég geri þetta þá hringir síminn. Ég þarf að tyggja súkkulaðið með hraði og svara símanum. Gjörsamlega óþolandi og gott dæmi um að það er ekkert réttlæti til á jörðinni.

Ég minntist á það um daginn, minnir mig, að þegar ég var lítil trúði ég að prinsinn á hvíta hestinum væri til og kæmi á þeysireið einn daginn að ná í mig í kastala Engihjalla nr 3, turn 6-A.

Átti aldrei séns.. mamma lét alltaf snoða mig, hefði þurft hár til að hann gæti klifrað upp á sjöttu hæð að bjarga mér. Grét mörgum fögrum tárum. Ég hafði alltaf lakið til taks just in case... prinsar fíla kannski ekki lök..

Ég trúði lika á guð og engla og galdramenn og spákonur og miðla og dverga og álfa og stokk og steina. Hef aldrei farið til spákonu. Ekki miðils heldur.

Sem barn var ég vitni að ótal seremóníum yfir skítugum kaffibollum og sá óteljandi ofna í eldhúsum sem voru oftar en ekki skreyttir mislöngum kaffitaumum. "Það er rosalega mikið af fólki í bollanum" var vinsæll frasi. Þetta er frá þeim tíma sem eldabuskur í leikskólum elduðu matinn með sígarettuna í munnvikinu og spáðu í bolla í kaffitímum.

"Noh! Þa'bar'ekkert annað! Þú ferð í hollívúdd um helgina og kemst á sjéns!" Enn einn ánægður starfskraftur leikskóla kópavogs á leið inn á deild að vinna með vonarglætu í hjarta innan um hor, slef, kúk og klessuliti.

Ég hef ekki náðargáfuna sem þarf til að skoða kaffileifar og sjá fólk, þó ég geti elda með sígarettuna í munnvikinu. Ég trúi ekki að kaffi geti sagt til um framtíð, fortíð eða nútíð. Finnst samt alltaf jafn heillandi að fylgjast með enda oft mikil tilþrif höfð í frammi.

Þó ég trúi ekki á spákonur þá trúi ég á undirmeðvitundina og ef ég hef í huga hvað ég er einföld og auðtrúa þá er ekki hollt fyrir mig að fá uppgefin spádóm hjá spákonu sem undirmeðvitundin gæti tekið alvarlega. Auk þess trúi ég ekki á örlög. Ég held að framtíðin sé óskrifað blað og ég vil ekki vita hvað aðrir halda að standi á mínu.


| anna | 15:02 |
comments


recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web