Sunnudagur, 11. maí 2003
Jæja. Í hádeginu í gær fór ég í próf í íslensku sem ég held að ég hafi náð. Var að djamma í gærkvöldi með vinnufélögunum og kom heim hálf tólf. Tóti var á framboðsrölti og skilaði sér heim rétt fyrir átta í morgun. -Og ég sem var að íhuga að aflétta the D curse.
Á meðan Tóti öskraði Doors lög á markaðmógúla var ég að setja upp heimasíðu fyrir mömmu.
Ég er nú samt aðallega að setja inn þessa færslu vegna þess að mig langar að benda fólki sem hefur áhuga á heimasíðugerð á þetta hérna: Color Scheme Designer Það er draumur að vinna með þessa litlu græju.
Annars sit ég bara hér að prufa að setja upp photolog, hætt við að hafa MT photolog og búin að ákveða að taka bara galleríið sem ég er með og tweak-a það til að fella það að síðunni minni. Fann tutorial um það áðan.
Af kosningarmálum finnst mér áhugaverðast af öllu að engin flokkur hafi séð ástæðu til að berjast fyrir afnámi vertryggingar. Sú aðgerð yrði án efa stærsta kjarabót heimilana í landinu. Í kjölfarið myndi geðheilsa ungs fólks stórbatna, ríkið gæti sparað helling í heilbrigðisgeiranum og prósakkneysla landans myndi minnka verulega.
Palli, gamli bekkjafélaginn minn úr barnaskóla - eins og eiginmaður minn, er úti núna skilst mér en á ennþá von. Ég vona að hann komist á þing. Ég held að hann sé búin að stefna að því frá unga aldri og held líka að hann myndi standa sig vel. Hefði jafnvel drattast á kjörstað til að kjósa hann væri ég skráð í það kjördæmi.
Tóti lá í sófanum til tæplega tvö en gafst upp og fór að sofa. Ég sit við tölvuna mína, eins og venjulega, og er að fikta.
Árni Snævarr fær hrósið fyrir:
"hver ætli sé að naga þröskuldinn á Alþingi núna?"
Ómar Ragnarsson fær dissið fyrir að reyna að ná Steingrími en mistakast hraparlega.
Bogi fær diss fyrir að gera kosningasjónvarpið að vettvangi til að senda kveðjur til vina og vandamanna og láta vita að maður sé að horfa á kosningarsjónvarpið.
Edda fær hrós fyrir að auglýsa diet kók.
Þorsteinn J fær hrós fyrir að vera fjallmyndalegur, hafa nef fyrir hvað maður nennir að hlusta á á milli talna og vera bara overall skemmtilegur.
Útsendari stöðvar tvö í Ráðhúsinu fær diss fyrir að kunna ekki að tala íslensku og já.. búin að vera soldil umræða um það á msn hvort Árni Snævarr sé á koffeini eða einhverju sterkara? Fíla hann regardless.
Að lokum langar mig að segja stutta sögu. Í barnaskóla kenndi mér maður sem heitir Haukur. Hann var kommi, geymdi söngbækur með baráttusöngvum á kennaraborðinu, stýrði málefnalegum umræðum bekkjarins og hvatti okkur til að rísa upp gegn kerfinu. Hann var með sítt hár og gekk í blárri mussu með hvítum röndum. -Alltaf.
Þegar ég var ca 18 ára rakst ég á Hauk. Þá var hann löngu hættur að kenna og komin í gott djobb hjá Námsgagnastofnun minnir mig. Ég ætlaði hinsvegar varla að þekkja hann því hann var með klassíska herraklippingu og í jakkafötum. Ég verð sjaldan kjaftstopp en ég var kjaftstopp þá. Þegar ég var búin að jafna mig spurði ég hann: "hvar er mussan og hárið?" og hann svaraði því til að hann hefði reynt að vera með síða hárið og mussuna, en þá hlustaði engin á hann á fundum. Hann varð að klæða sig rétt og klippa sig rétt til að mark væri tekið á honum.
Ég spyr. Hvernig stendur á því að fólk sem býður sig fram til að stjórna landinu sér þann kost vænstan að gera sig endalaust að fíflum í kosningabaráttunni? Vilja Íslendingar bara kjósa trúða á þing?